27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1565 í B-deild Alþingistíðinda. (628)
25. mál, kynbætur nautgripa
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil leyfa mjer að mælast til þess af hv. 1. þm. N.-M. (HStef), að hann geymi dagskrártillögu sína til 3. umr. þessa máls.
Hv. þm. vjek að ýmsu og kom með ýmsar upplýsingar, sem hann gat þó ekkert fullyrt um. Alt það, er hv. þm. var að tæpa á, getur hann fengið fullnaðarupplýsingar um. Það er hægt að fá þær hjá Búnaðarfjelagi Íslands. Jeg vil geta þess, að þetta frv. er borið fram í samráði við Búnaðarfjelagið. Það er samið af Metúsalem Stefánssyni ásamt kynbótaráðunautnum. — Þetta mál hefir og verið rætt mikið og athugað undanfarið, að vísu ekki af bændum alment, heldur á Búnaðarþingi.
Jeg vil því mega mælast til þess, að hv. þm. geymdi dagskrána rökst. að minsta kosti til 3. umr., er við, hann og jeg, höfum sótt frekari upplýsingar í Búnaðarfjelag Íslands.