08.02.1928
Efri deild: 17. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

16. mál, búfjártryggingar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. meiri hl. landbn. fyrir undirtektir þessa máls, en sjerstaklega vil jeg þó þakka fyrir þá hugsun, sem lýsti sjer í rökum þeim, er komu fram í ræðu hv. frsm. meiri hl. (EÁ) fyrir nauðsyn þessa máls, því að það var sú sama höfuðhugsun, sem fyrir mjer vakti í máli þessu, þegar jeg ákvað að leggja þetta frv. fyrir þingið.

Hv. meiri hl. hefir skilið, að full þörf sje á, að hafist verði handa í þessu efni, að vátryggja búpening manna, og að ekki megi lengur dragast að hefjast handa í málinu. Um hitt verðum við að þreifa okkur áfram, hvernig þessu verði best komið fyrir í einstökum atriðum. Það verður reynslan að kenna okkur. Það er ekki meiningin að reisa hjer lagabálk, sem standi um aldur og æfi. En þetta frv. er fyrsta sporið til þess að geta reist þá stóru byggingu, sem á að tryggja búfjárræktina í framtíðinni. Við verðum að byrja strax að draga að efniviðinn í þá lagasmíð, sem gera má ráð fyrir að taki ein 5–10 ár að byggja að fullu.

Viðvíkjandi 5. gr. frv. skal jeg taka fram, að jeg er sammála háttv. frsm. meiri hl. (EÁ) og get fallist á athugasemdir hans. Og um þá heimild, sem þar er gefin atvmrh., vil jeg taka það fram, að ætti að koma til minna kasta sem atvmrh. að fjalla um það mál, þá mundi jeg telja mjer skylt að fara mjög gætilega af stað. Þegar þeir menn, sem að frv. unnu, báru þetta atriði undir mig, þá leit jeg svo á, að það mætti ekki fella niður, heldur ættum við að gera ráð fyrir, að búfjártryggingarnar yrðu almennar og næðu sem allra fyrst til alls búpenings. Hitt blandaðist mjer ekki hugur um, að hjer væri um það vandamál að ræða, sem ekki yrði skipað svo með lögum, að þau þyrftu ekki endurskoðunar og breytingar við þegar á næstu árum. Jeg vissi, að hjer var um frumsmíð að ræða, sem stendur til bóta, og nota þá tækifærið um leið til að lýsa því yfir, að jeg felst á brtt. hv. meiri hl. við 10. gr. og tel hana til bóta.

Því miður hefir hv. landbn. ekki getað orðið sammála um frv. Minni hl., hv. 6. landsk. (JKr), leggur til, að frv. sje vísað til stj. til frekari undirbúnings.

Jeg verð nú að segja það, eftir að hafa bæði lesið nál. á þskj. 109 og hlustað á framsöguræðu hv. 6. landsk., að mjer virðist afstaða hans í þessu máli að mestu leyti, ef ekki öllu, bygð á misskilningi. Hann segir í nál., að frv. sje „eigi þannig að undirbúningi eða frágangi, að forsvaranlegt sje, að það verði gert að lögum“.

Jeg skal viðurkenna, að þegar um er að ræða nýmæli sem þetta, þá er vitanlega byrjunin vandasöm. En jeg vil ekki þar með játa, að undirbúningur þessa frv. sje sjerstaklega flaustursverk eða lítið til hans vandað.

Fyrst og fremst hefir þetta mál legið fyrir tveim Búnaðarþingum í röð, sem bygðu á ritgerð, er birtist um málið í Búnaðarritinu og lesin hefir verið af þorra bænda í öllum sveitum landsins. síðan hefir verið dregið að efni úr nágrannalöndunum, fengnar þaðan fyrirmyndir í þessu efni, sem tveir af starfsmönnum Búnaðarfjelagsins hafa unnið úr: ráðunauturinn í búfjárrækt, sem frá upphafi hefir mest að undirbúningi frv. unnið, og búnaðarmálastjóri sá, sem þetta mál heyrir undir.

Þá hefir og frv. verið sent fjölda bænda hjer um nærsveitirnar og víðar og ýmsum hv. þm, nokkru fyrir þing, og þar á meðal hv. frsm. minni hl. Og frá ýmsum af þeim mönnum, er frv. var sent til athugunar, hafa borist ýmsar góðar bendingar, eins og t. d. frá skólastjóranum á Hvanneyri, og alt slíkt hefir verið tekið til greina við samning frv.

Þó var þetta ekki látið nægja, heldur var frv. borið undir einn mann úr milliþinganefndinni í landbúnaðarmálum, þann, sem hjer var þá staddur, sem taldi sig fyrir sitt leyti geta fallist á það. Að lokum var svo fenginn lögfræðingur til þess að yfirfara frv. og leggja síðustu hönd á það. Jeg verð því að álíta, að við samning þessa frv. hafi ekki verið kastað til höndunum, heldur hafi allur undirbúningur verið vandaður svo, sem kostur var á.

Hv. minni hl. segir í áliti sínu, að fram verði að koma „nauðsynleg gögn ... áður en endanleg ákvörðun yrði tekin um fyrirkomulag búfjártrygginganna“.

Þetta er undarlega að orði komist, þegar vitanlegt er, að þetta frv. á ekki að vera og getur heldur ekki á neinn hátt orðið „endanleg“ lausn á málinu. Með frv. er alls ekki um að ræða „endanlega ákvörðun búfjártrygginganna“, heldur er meiningin sú, að þreifa fyrir sjer um það, hvernig hinum ýmsu og margþættu atriðum málsins verði best komið fyrir í framtíðinni.

Þá telur hv. minni hl. „varhugavert, að lög ákvarði skyldutrygging sumra búfjáreigenda, án þess leitað hafi verið álits rjettra hlutaðeigandi búfjáreigenda um það atriði“.

En til þess ætlast lögin ekki, heldur er það tekið fram með berum orðum, að tryggingarsjóður verði ekki stofnaður nema meiri hluti lögmæts fundar samþ. það.

Hinsvegar er jeg fús á að taka til athugunar bendingu hv. 6. landsk. um það, að stærra atkvæðamagn en einfaldur meiri hl. skuli ráða um stofnun vátryggingarsjóða. Má vel vera, að rjettara sje að miða það við 2/3 atkv. á lögmætum fundi, og mun jeg ekki gera það atriði að kappsmáli, ef hagfeldara þætti að breyta því.

Loks segir hv. minni hl. í nál. sínu, að það sje „varhugavert, að lögin sjeu lögð óbundin í hendur eins manns, atvmrh.“ En ef það er varhugavert, þá er ótal margt fleira, sem lagt er undir úrskurð atvmrh., það ekki síður. Enda er jeg fullviss um, að hver, sem er atvmrh., mundi aldrei upp á sitt eindæmi ákveða fjárframlög þeirra, er tryggja vilja búfje sitt. Atvmrh. hefir svo marga góða ráðunauta sjer við hönd til að fá bendingar hjá, enda mun hver einasti atvmrh. telja það skyldu sína að leita bæði til bænda sjálfra úti um sveitir, svo og Búnaðarfjelagsins. Þess vegna held jeg, að hjer sje mjög lítil hætta á ferðum og svo um búið, að fjárframlögin verða aldrei ákveðin fyr en fyrir liggja till. um það utan úr sveitum, og þá frá Búnaðarfjelaginu. Auk þess verður þessu ekki hraðað svo mjög; þetta mál verður að hafa sinn jafna gang. Og þó að frv. yrði nú að lögum, geri jeg ráð fyrir, að eftir 3–4 ár þyrfti kannske að endurskoða þau.

Annars vildi jeg skjóta því til hv. frsm. minni hl., af því mjer fanst anda hlýtt frá honum um nauðsyn þessa máls, hvort hann gæti ekki, ef dagskrártill. hans fellur, fylgt frv. a. m. k. til 3. umr. Verði þetta frv. afgreitt nú, er þessu stórnauðsynlega máli hrundið í framkvæmd. Þá getum vjer þegar byrjað á því að láta reynsluna kenna oss.