29.02.1928
Neðri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1630 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

9. mál, menntamálaráð Íslands

Magnús Jónsson:

Jeg skrifaði undir nál. með fyrirvara, sem á við frv. í heild. Í því felst nú það, að jeg hefi unnið með nefndinni og ekki sjeð ástæðu til að kljúfa hana nje leggjast þungt á móti frv., þó mjer hinsvegar virðist ekki stefnt til mikilla bóta í meðferð þeirra mála, sem frv. nær yfir. Þetta verk hvílir nú að mestu á landsstjórninni.

1. liðurinn er um úthlutun á þeim styrk, sem þingið veitir til skálda og listamanna. Um þessa úthlutun hafa nú margar leiðir verið prófaðar. Fyrst gerði sjálft Alþingi það, en slíkt þótti fljótt óviðkunnanlegt, þar sem ræða varð um verðleika styrkþeganna, og úrslitin þóttu líka oft nokkuð vafasöm. Þá var næst tekinn sá siður að láta stjórnina fara með þetta. Þá tók við nefnd, er starfaði nokkur ár. Og þótt jeg vilji nú naumast lasta hana, þar sem jeg var í henni sjálfur, þá verð jeg þó að segja, að henni þótti ekki takast betur en stjórninni, og þótti því rjettast, að landsstjórnin tæki við því starfi aftur. Stjórninni er nú einu sinni borgað fyrir að taka á móti skömmum fyrir opinberar framkvæmdir, og þá var rjett, að hún bætti þessu við sig líka. Samkv. þessu frv. á það nú að verða nefnd, kosin af Alþingi, og því pólitiskt lituð sennilega. Jeg geri því naumast ráð fyrir því, að nefnd þessari fari þetta betur úr hendi en stjórninni, sem getur kvatt færustu menn í hverri grein til ráðuneytis við sig, og þar með máske fengið hæfari starfskrafta heldur en þetta „ráð“ hefir yfir að ráða. — Annars tel jeg það enga hættu að fela slíkri nefnd eða ráði þetta, og legg því ekki neitt fast á móti því.

Svipað er að segja um b-liðinn. Stjórnin hefir það starf nú með höndum, að kaupa listaverk handa landinu, og getur þar skipað á hverjum þeim, sem hún treystir best.

Þá er c-liður, það að hafa yfirumsjón með listaverkasafni landsins og undirbúa byggingu listasafns í Reykjavík. Það kann nú að vera, að eitthvert lið geti orðið að þessu. En jeg held nú, að bygging listasafnshúss hjer í Reykjavík sje ekki svo ákaflega aðkallandi, að það geti ekki vel dregist eitthvað og verði að bíða eftir því, að ýmsar aðrar byggingar komist upp. Og jeg hygg, að þegar að því kemur, að slík bygging verður reist, þá væri nógur tími að ráða fram úr með umsjón þess.

Þá er það d-liðurinn, að kaupa altaristöflur handa kirkjum. Þetta er nú, að því er jeg best veit, alveg frumlegt. Jeg veit ekki til, að löggjafarvaldið hafi neitt skift sjer af þessu hingað til. Nefndinni þótti nú of sterkt að orði komist, að skylda sóknarnefndir til þess að láta nefndina kaupa altaristöflur í kirkjurnar. Og ef einhver vildi gefa kirkju altaristöflu, þá hefði hann orðið að gefa peningana og láta nefndina ráða kaupunum. Nefndin vissi ekkert hliðstætt dæmi og þótti þetta of langt gengið. Það getur að vísu komið fyrir, að kirkjur sjeu óprýddar með illa gerðum altaristöflum, en það má þá líka gera með mörgu fleira, meðan engin umsjón er með því, hvernig þær eru gerðar að öðru leyti. En jeg veit nú ekki til, að þær altaristöflur, sem keyptar hafa verið, sjeu þær ómyndir, að þetta sje, sjerlega aðkallandi. Jeg hefi að vísu heyrt, að þetta eigi að vera til þess að útiloka erlendar altaristöflur, en halda því fje, sem til þeirra gengur, til íslenskra listamanna. En í frv. er engin trygging fyrir því, að keypt verði af íslenskum mönnum, svo sá tilgangur þarf ekki að nást. Getur verið, að þetta sje fram komið af því biskup hefir útvegað eitthvað af útlendum myndum, en jeg sje ekki, hvaða trygging er fyrir því, að ráð þetta sje altaf og verði svo miklu þjóðlegra en biskup. Og þegar ekki eru til nógu hugþekkar altaristöflur eftir íslenska menn, þá er hart að mega ekki kaupa útlendar. Altaristöflur eftir íslenska menn hafa, sannast að segja, lánast misjafnlega vel. Þeir hafa ekki náð þeim stíl eða blæ, sem gefendurnir vilja hafa. Eins og nefndin hefir gengið frá þessu, er þetta nú að vísu gagnslítið, en getur þó verið til bóta, að menn viti, að þeir geti snúið sjer til þessarar nefndar með kaup á altaristöflum. En það er svo smátt atriði, að varla er þess vert að ómaka löggjafann með því.

E-liðurinn í frv. er langumfangsmesti og erfiðasti liðurinn. Nú er þessum styrk úthlutað af nefnd manna, sem stöðu sinnar vegna eiga að vera kunnugir. En það er engin trygging fyrir því, að þetta ráð verði það. Að vísu gæti það farið í smiðju til rektors mentaskólans eða prófessoranna við háskólann. En jeg sje ekki, að sú krókaleið sje betri, því þá eru ráðin komin í hendur sömu manna og nú hafa þau. Niðurlagsákvæði þessa liðs eru í sjálfu sjer þörf og sjálfsögð, að veita þessa styrki eftir því, sem þörf þjóðarinnar krefur um störf, og að litið sje eftir þeim, sem styrksins njóta. En þetta gæti sú nefnd eins vel gert, sem nú úthlutar þessum styrk, og með aðstoð sendiherrans. Hitt er ekki nema gott, að hæstv. ráðh. (JJ) sýnir, að hann hefir áhuga á þessum málum.

Um f-liðinn nægir að geta þess, að þar sem líklegt er, að landsstjórnin eigi einatt frumkvæði að slíkum utanferðum, sem þar greinir, þá er hálfóviðkunnanlegt, að stjórnin verði að sækja til nefndarinnar um ókeypis far handa slíkum mönnum. Heppilegra, að hún hefði þessa úthlutun sjálf í hendi sinni.

Um meðferð sjóða þeirra, sem um getur í g-lið, sýnist vera óþarfi að gera ráðstafanir, meðan þeir sjóðir eru ekki stofnaðir. Að vísu er eitt frv. um sjóðstofnun á ferðinni hjer í þinginu, en því mætti hæglega ráðstafa öðruvísi.

Afstaða mín til þessa frv. er því sú, að það sje fremur gagnslítið, en tiltölulega meinlaust. Þetta er smámál, hálfgert hjegómamál. En jeg sje þó ekki ástæðu til að beita mjer mikið á móti því, að þetta verði gert.