29.02.1928
Neðri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1637 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

9. mál, menntamálaráð Íslands

Magnús Jónsson:

Jeg ætla aðeins að svara hæstv. ráðh. (JJ) nokkrum orðum. Það er yfirleitt ósköp lítið, sem skilur okkur í þessu máli. Jeg álít, að það eigi að vera takmörk fyrir því, hvað mál þurfi að vera mikilsvert til þess að vert þyki, að Alþingi setji um það lög. Og mjer finst það vera svo um þetta frv., að það sje fremur neðan við en ofan við þau takmörk.

Hæstv. ráðh. gat um þörfina á að koma upp listasafni, og get jeg mjög tekið undir það með honum. Það verður ekki ofsögum af því sagt, að á því er hin mesta þörf, úr því við erum að burðast með málverkasafn. Málverkin eru nú sum látin óprýða þennan sal, sem við nú erum staddir í. Þau njóta sín hjer alls ekki. Þeim er tylt svo hátt á vegg, að birta fellur ekki á þau nema snjór sje á jörð. Hefir Kjarval málari rjettilega skrifað um það, hve illa fer á því að rugla samræmi salsins með því að hengja í hann málverk, sem ekki eiga við hann. Það á vitanlega vel við að hengja upp myndir af þektum stjórnmálamönnum í reitina neðan til á veggjunum, en hin stærri málverk, sem hjer eru hengd upp undir lofti, njóta sín alls ekki og eru ekki til neinnar prýði. Auk þess er þörfin á húsum hvarvetna mikil. Háskólinn er húsnæðislaus og er hjer á neðri hæð þessa húss og eyðileggur með því húsrúm þingsins, og svo mætti halda áfram að telja. Það skyldi þá vera, að frv. um menningarsjóð gengi fram og að einhvern stóran hvalreka bæri að landi, smyglaraskip eða annað því um líkt „lán í óláni“. Annars hefir hann nú lýst því hjer, hvernig búið væri að ganga milli bols og höfuðs á bannlagabrjótunum, svo að menn skyldu halda, að ekki væri mikilla tekna að vænta úr þeirri átt. Það er nú svo yfirleitt, að það verður ekki bæði slept og haldið. En eins og jeg benti á áðan, get jeg ekki sjeð, að úrlausn þessa máls sje neitt nær með skipun þessarar nefndar en án hennar. (Dómsmrh. JJ: Hún „agiterar“ fyrir málinu). Agiterar hún fyrir bannlagabrotum?

Viðvíkjandi því, hvort eigi að á. kveða nefndarmönnum þóknun, vil jeg skjóta því fram, að mjer finst mjög óviðfeldið að leggja á menn störf, sem þeim er þröngvað til að taka að sjer, án þess að launa þeim nokkuð fyrir. Þar að auki er ekki meiri munur en það á frv. og brtt. nefndarinnar, að það er alveg eins hægt eftir frv. að ákveða nefndinni þóknun.

Jeg efast ekki um, að íslenskir málarar sjeu færir um að mála eins góðar altaristöflur eins og þær útlendu, sem fluttar hafa verið hingað, en þeir eru aðeins ekki búnir að finna það snið, sem á þeim þarf að vera, eða öllu heldur hafa ekki viljað leggja sig eftir því. En ef þeir vildu brjóta odd af oflæti sínu og taka upp þennan stíl eða „copiera“, þá efast jeg ekki um, að þeirra verk yrðu ekki síður keypt. Jeg viðurkenni fullkomlega tilgang hæstv. ráðh. með því að vilja ekki taka við smekklausum altaristöflum í kirkjur landsins. Hann mintist í því sambandi á kirkju, sem hefði verið bygð af miklu fje en lítilli smekkvísi, og er jeg honum alveg sammála um það, að það er hróplegt að eyða svo miklu fje í þessa byggingu án þess að nokkurt eftirlit væri haft með því, að hún væri smekkleg að gerð. Jeg hefi að vísu ekki sjeð þessa kirkju, en eftir myndum að dæma sýnist mjer, eins og hæstv. ráðh., hún vera mjög ósmekkleg. — Hinsvegar kann jeg ekki við þessi höft, sem hjer á að leggja á frelsi manna þeirra, sem gefa vilja altaristöflur, og jeg viðurkenni heldur ekki þörfina á því að taka þannig fram fyrir hendur þeirra. Það munu fá eða engin dæmi til þess, að keyptar hafi verið altaristöflur án þess að fengin væri til þess leiðbeining hæfra manna.

Viðvíkjandi úthlutun námsstyrks, þá má vera, að þingið viti betur, hver þörf er á mönnum í hinum ýmsu greinum, en jeg býst við, að nefnd sú, sem nú hefir þetta með höndum, muni sjerstaklega afla sjer upplýsinga um það.

Þá fór hæstv. dómsmrh. nokkrum orðum um f-liðinn, um úthlutun á ókeypis fari til útlanda. Kvað hann mikils virði fyrir einstaka menn að geta komist utan og tók til dæmis um það Matthías heitinn Jochumsson. Þetta er vitanlega alveg rjett, og býst jeg við, að enginn ágreiningur sje um slíkt. En þetta kemur bara ekki málinu við. Því að í frv. er ekki útvegað neitt ókeypis far. Jeg skal verða manna fyrstur til að styðja að því, að slíkum mönnum sje hjálpað í þessu efni.