23.01.1928
Neðri deild: 4. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (704)
8. mál, ríkisrekstur á útvarpi
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Þetta er þriðja frv., sem borið er fram samkvæmt áskorun þessarar hv. deildar í fyrra.
Það var eins og kunnugt er skipuð nefnd í þetta mál, og er frv. borið fram algerlega í þeirri mynd, sem hún gekk frá því.
Þetta er að mínum dómi eitt hið merkasta menningarmál. En jeg skal játa, að jeg hefi ekki haft tíma til að athuga það eins og vert væri. Það fór nokkuð framhjá mjer, þegar það kom til umr. hjer á þingi í fyrra, vegna þess, að í mörgu var að snúast, og eins og menn, sjá á nál., hvenær það er dagsett, hefir stjórnin ekki haft mikinn tíma til að athuga málið síðan.
Hinsvegar hefir málið fengið rækilega athugun í nefndinni. Um einstök atriði málsins ætla jeg ekki að ræða að þessu sinni, en vil sjerstaklega beina því til þeirrar nefndar, sem væntanlega fær málið til umsagnar, að hún athugi, hverja afstöðu skuli taka til þess fjelags, sem nú hefir rekstur víðvarps með höndum. Vitanlega er sjálfsagt við athugun málsins að snúa sjer bæði til þessa fjelags og eins til milliþinganefndarinnar.
Jeg skal geta þess, að mjer finst nokkur vafi geta leikið á því, í hvaða nefnd málið ætti helst heima. Eftir eðli málsins finst mjer það jafnvel helst ætti heima í mentmn., en það hefir áður verið í allshn., og mun jeg því, vegna venju, gera það að till. minni, að því verði vísað til hennar.