28.02.1928
Neðri deild: 34. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

8. mál, ríkisrekstur á útvarpi

Hjeðinn Valdimarsson:

Ástæðan til þess, að þetta frv. er fram komið, er, eins og menn vita, hið mikla ólag, sem verið hefir á útvarpinu hingað til.

Það yrði of löng saga að rekja það hjer, bæði hvernig útvarpinu hefir verið stjórnað af h/f „Útvarpi“ og afskifti fyrv. stjórnar af því fjelagi.

Menn eru alment sannfærðir um það, að aldrei komist gott lag á útvarpið hjer á landi, fyr en h/f „Útvarp“ hættir rekstrinum og ríkið hefir tekið hann í sínar hendur, og að eina ráðið til þess að útvega stóra og góða stöð sje, að ríkið taki þá framkvæmd að sjer.

Þetta frv., sem hjer liggur fyrir, fer í þá átt, að stofnuð verði stór og öflug stöð, sem dragi um land alt, í stað þeirrar, sem nú er og aðeins dregur mjög takmarkað. Útvarpsnefndin, sem samið hefir frv. og kynt hefir sjer málið sjerstaklega, áætlar, að til þess að koma á fót slíkri stöð þurfi ekki að taka nema um 300 þús. kr. lán, því að stöðina er líka hægt að fá að láni hjá þeim, sem búa hana til. Þetta er ekkert afskaplega mikill kostnaður, samanborið við það, sem fæst í aðra hönd.

Jeg vil leyfa mjer að benda hv. þdm. á, að þetta mál er fyrst og fremst stórmál fyrir sveitirnar, og að mínu áliti er það eitthvert stærsta málið af mörgum, sem fyrir þessu þingi liggja og sveitirnar varða. Að minsta kosti er það miklu meir mál sveitanna en kaupstaðanna.

Og þeir, sem vilja láta fólkið tolla í sveitunum, og vilja til þess veita menningarstraumunum um sveitirnar, svo að fólk þurfi ekki að sækja þá til höfuðstaðarins, þeir ættu að fylgja þessu máli fast og stuðla að því, að það komist sem fyrst í framkvæmd. því að það, sem hjer er verið að gera, er að tengja menningu sveitanna við höfuðstaðinn.

Jeg tel það ekki aðalatriðið í þessu máli, sem hv. frsm. (GunnS) taldi, að útvarpinu verði haldið áfram, svo að ekki verði hlje á. Jeg álít það aðalatriðið, að nú á næstunni komist upp svo stór stöð, að hún nái til flestra býla á landinu.

Hinsvegar er jeg auðvitað ekki á móti því, ef það hefir ekki óþarfan kostnað í för með sjer, að vel verði farið með h/f „Útvarp“, en jeg held, að það hafi haft svo góð sjerleyfisskilyrði, að það hefði átt að geta bjargað sjer sjálft.

Mjer skildist á háttv. frsm., að hann væri ekki fráhverfur því, að fjelagið hjeldi áfram rekstri sínum með einkarjettindum þeim, sem það hefir, ef ríkið tæki ekki útvarpið í sínar hendur. (GunnS: Nei, jeg vildi, að fjelagið hjeldi áfram heldur en að útvarpið legðist niður). Jeg get ekki talið bað líklegt, að svo fari. Ríkið ætti að hafa svo mikið lánstraust, að því væri innan handar að fá það lán, sem þarf til að koma stöðinni upp og reka hana.

Það hefir komið til mála, að h/f Dansk Radio gerði samninga við útvarpsfjelagið eða Stjórnina um að taka að sjer rekstur útvarpsins hjer að einhverju eða öllu leyti. Jeg vil taka það fram hjer, að jeg er því algerlega mótfallinn, að danskt fjelag fái sjerleyfi til útvarpsrekstrar hjer á landi, og mjer finst, að þeir, sem mest hafa talað um þá hættu fyrir sjálfstæði landsins, sem stafaði af framlögum dansks verkalýðs til styrktar íslenskum verkalýð ættu að leggjast fast á móti því, að danskt fjelag fengi einkarjett hjer á landi til slíkrar starfsemi sem útvarpsrekstur er, hvort heldur sem það stæði eitt eða gengi inn í h/f „Útvarp“ og fengi yfirráð þess.

Viðvíkjandi bráðabirgðaákvæðinu um heimild handa ríkisstjórninni til að taka að sjer útvarpsrekstur nú þegar með minni stöð en í frv. sjálfu er gert ráð fyrir til bráðabirgða, þá vil jeg taka það fram, að jeg mun ekki leggjast sjerstaklega á móti því, að ríkið keypti þá stöð útvarpsfjelagsins til þess, en með því skilyrði aðeins, að það væri aðeins um stuttan tíma, sem sú stöð yrði rekin, og að það væri fyrirfram trygt, að ríkið gæti selt þá stöð upp í aðra stærri.

Það er skoðun margra, sem vel vilja fara með h/f „Útvarp“, að þetta beri að gera, og ef hægt væri að fá þá skilmála hjá því fjelagi, sem seldi væntanlega stærri stöð, að litla stöðin gæti gengið upp í hina stærri, þá er jeg meðmæltur því, að það verði gert, en aðeins með þessum skilyrðum. Ef hinsvegar er farið út á þá braut, að ríkið keypti stöð útvarpsfjelagsins til þess að reka hana um lengri tíma, þá er jeg alveg viss um, að það mundi verða svipuð óánægja út af rekstrinum og nú er, og sje jeg enga ástæðu til þess að gera það, nema þá til þess að hjálpa því fjelagi út úr kröggunum. En það væri of langt gengið að halda útvarpsmálinu óleystu um langan tíma aðeins í þeim tilgangi.