28.02.1928
Neðri deild: 34. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (709)
8. mál, ríkisrekstur á útvarpi
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Háttv. nefnd hefir gert nokkrar breytingar á frv., og hefi jeg ekkert við þær að athuga.
Út af 1. brtt. vil jeg taka það fram, að jeg álít það alveg nauðsynlegt að gefa ríkisstjórninni heimild til þess að taka lán, ef á að gefa henni heimild til ríkisrekstrar á útvarpi. Hinsvegar get jeg ekki af stj. hálfu lýst yfir neinu um það að svo komnu máli, hvort ráðist verður í þetta fyrirtæki eða ekki.
Það er vitanlegt, að það kostar mikið fje; bæði verður stofnkostnaður samkvæmt áætlun mikill, og líka dæmin til þess, að áætlanir standist ekki betur en svo og svo, þegar farið er að reka slík fyrirtæki.
Það, hvort ráðist verður í þetta eða ekki, verður algerlega að fara eftir því, hvort fjárhagur ríkissjóðs leyfir það eða ekki.
Út af orðum, sem fallið hafa hjer í hv. deild um þær heimildir í ýmsum lögum, sem þetta þing mun veita stj., get jeg lýst yfir því í eitt skifti fyrir öll, að þær heimildir verða alls ekki notaðar, nema því aðeins, að fjárhagsafkoman leyfi.
Þá hefir hv. nefnd bætt við frv. bráðabirgðaákvæði, sem aðallega er um aðbúð að því fjelagi, sem nú hefir útvarpið með höndum, og einnig heimilar stj. að taka að sjer útvarpsrekstur í minni stíl en annars er gert ráð fyrir í frv.
Jeg get heldur ekki, að svo vöxnu máli, lýst yfir neinu um það, hvort stj. muni þykja gerlegt að taka að sjer útvarpsrekstur í smærri stíl um stundarsakir. Jeg mundi fyrst og fremst ráðgast um það við þá menn í útvarpsnefndinni, sem hingað til hafa verið í ráðum með stj. um þessi mál.
Jeg heyri af ræðum háttv. frsm. (GunnS) og hv. 2. þm. Reykv. (HjV), að það eru skiftar skoðanir um það, hvað beri að gera í þessu efni, þótt báðir sjeu með því að samþykkja heimildina. Jeg get, sem sagt, ekkert sagt um það, hvað stj. muni gera, en svo mikið get jeg sagt, að jeg hefi enga tilhneigingu til þess að fara illa með þá menn, sem hingað til hafa brotist í því að gera fyrstu tilraunina í þessu máli. En hinsvegar mun þess verða gætt, að ríkinu verði engir óþarfir baggar bundnir vegna þessa.