28.02.1928
Neðri deild: 34. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1662 í B-deild Alþingistíðinda. (718)
8. mál, ríkisrekstur á útvarpi
Magnús Torfason:
Það hefði sjálfsagt átt vel við að lýsa raunasögu þessa fyrirtækis frá því það var stofnað 1925, en hún er svo ömurleg, að lítil skemtun verður að, og því sleppi jeg því. Það hefir verið bent á, að á þinginu 1925 var því haldið fram í allshn., að stöðin ætti að vera stærri, en þeir urðu ofan á, sem ljetu sjer nægja, að stöðin yrði lítil, og því voru engin takmörk sett, hvað hún mátti vera lítil. En það má sjálfsagt rekja meginhluta þessarar raunasögu fyrirtækisins til þess, að stöðin var höfð of lítil.
Hv. 1. þm. Skagf. (MG) sagði, að hinir mörgu „dauðu deplar“ mundu ekki hverfa, þótt stöðin yrði aflmeiri. Jeg vil ekki neita því, en jeg er hræddur um, að á löngu liði þangað til almenningur getur fengið sjer þessi tæki, sem verða kostnaðarsöm, ef þau eiga að draga langt; yfirleitt eru það efnuðu mennirnir, sem fá sjer þessi tæki, en þeir una betur við sinn hag og flytja því síður úr sveitunum. Annars geri jeg ekki mikið úr því, að útvarpið verði til þess að halda fólkinu í sveitunum. Þó að þetta eigi að verða menningartæki, og verði það ef til vill, geri jeg ekki ráð fyrir, að svo fari fyrst um sinn. En hinsvegar er mjög undir því komið, hvað menningarstöðin Reykjavík hefir upp á að bjóða í tækin. Jeg hygg, að það sje æðimisjafnt. Frá mjer er það að segja, að jeg hefi ekki, keypt útvarpstæki vegna þess, að maður ekki óskyldur mjer varð fyrir illri reynslu í þeim efnum. Jeg hefi nokkrum sinnum hlustað á útvarp, og fyrir utan nokkrar góðar ræður af prjedikunarstóli var það ekki á marga fiska. Og því get jeg fyrir mitt leyti lýst því yfir, að jeg þykist ekki bættari, þó að jeg lægi í útvarpinu. Og víst er um það, að sumt af því, sem boðið hefir verið upp á í útvarpinu til þessa, hefir ekki verið til bóta. Mjer er sagt, að upphaf draugagangsins á Litlu-Þverá, sem nú er mest talað um, megi rekja til þess, að útvarpið flutti þangað draugasögur, þar sem getið var um, að draugar hefðu drepið kindur. Það er því sýnt, að áhrifin eru ekki ávalt sjerlega góð. Þá verð jeg að taka það fram, að verði ríkisrekstur á útvarpinu, er sjálfsagt, að settar verði rammar skorður við því, að öðru verði útvarpað en því, sem frambærilegt er og til bóta horfir. Jeg vil taka undir með hv. 1. þingmanni Skagf. (MG) og háttv. þingmanni Borgf. (PO), að það er best að fara að öllu varlega í þessu máli, og þó að jeg greiði atkv. með heimildinni, má á engan hátt skilja það svo, að jeg vilji ýta undir, að flasað verði að málinu á ný.