14.03.1928
Efri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (733)

8. mál, ríkisrekstur á útvarpi

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Út af ræðu háttv. frsm. vil jeg taka fram, að jeg er honum alveg sammála um, að fullkomið hlutleysi verði að ríkja við útvarpið. En þótt ef til vill hafi þótt nokkuð á bresta í því efni, þá hefi jeg fyrir mitt leyti litið á það eins og önnur bernskubrek, sem ef til vill stöfuðu meðfram af fátækt útvarpsfjelagsins. Jeg hefi ekki sjeð ástæðu til að amast við þessu hjá tilraunafjelagi. Hinsvegar mætti ekki þola það stofnun, sem ríkið ræki til almenningsheilla. Í nefnd þeirri eða ráði, sem veldi verkefni handa útvarpinu, væri ástæða til að hafa fulltrúa fyrir hvern þingflokk, svo að engin þjóðmálastefna hefði meiri aðgang að stöðinni en aðrar.

Vegna orða hv. 3. landsk. (JÞ) skal jeg taka fram, að jeg er hræddur um, að því vandaðri sem stöðin á að verða, því lengri tíma taki að undirbúa hana. Verkinu má ómögulega flaustra af. Það skiftir minstu, hvort stöðin kemst upp missirinu fyr eða síðar. Aðalatriðið er að stefna í rjetta átt. En ef fullnægja ætti ósk hv. 3. landsk., sem er að vísu ekki með öllu óeðlileg, um að starfsemin fjelli aldrei niður, gæti svo farið, að landið yrði að binda sig við smástöð, sem hefði svo mikinn aukakostnað í för með sjer, að ekki gæti talist verjandi að greiða hann af opinberu fje. Það er mikið vafamál, hve miklu má til kosta, að þessi starfsemi falli ekki niður í hálft eða heilt ár, enda þótt gott væri, að hún gæti haldið áfram óslitið. En þetta er framkvæmdaratriði, sem á sínum tíma mun tekið til athugunar. En jeg óttast, að rekstur smástöðvar mundi leiða af sjer mikinn aukakostnað og tefja fyrir viðunandi lausn málsins.