21.01.1928
Neðri deild: 3. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (746)
10. mál, sundhöll í Reykjavík
Bernharð Stefánsson:
Jeg hafði ekki ætlað mjer að taka til máls nú, en þar sem hv. 1. þm. Reykv. fór rangt með orð mín frá í fyrra, þykir mjer rjett að leiðrjetta það.
Hann sagði, að jeg hefði látið þá skoðun í ljós þá, að eins rjett væri að breyta stjórnarskránni og taka fjárveitingarvaldið alveg af Alþingi eins og að þingið, heimilaði stjórninni að verja fje til framkvæmda með lögum, án þess að fjárveiting væri sett í fjárlög. En þetta er ekki rjett. Jeg hjelt þessu ekki fram, heldur spurði jeg aðeins hv 1. þm. Reykv., hvort hann vildi ekki flytja tillögu í þessa átt, því mjer fanst það í fullu samræmi við kenningar hans þá.
Annars verð jeg að segja það, að ekki lítur út fyrir, að þakklæti hv. þm. til stjórnarinnar fyrir flutning þessa frv. hafi komið frá hjartanu. Jeg fæ ekki skilið ræðu hans öðruvísi en að hann sje að kalla fram mótstöðu gegn þessu máli, sem þó er til hagsbóta fyrir hans kjördæmi. En að blanda saman heimavistarmálinu frá í fyrra og þessu máli, þá er ólíku saman jafnað, og sje jeg ekki, að þessi tvö mál komi hvort öðru neitt við.
En hvað mína skoðun á þessu máli snertir, þá sje jeg enga ástæðu til þess að fara að skýra hv. þm. frá henni fyrirfram. Hún kemur í ljós síðar. Jeg mun leitast við að forsvara mínar gerðir, og þarf hv. þm. engar áhyggjur að bera mín vegna um það. Og hv. þm. hefir enga sönnun fyrir því enn, hvernig jeg mun greiða atkvæði um þetta mál. Var því fullsnemt að gera ráð fyrir ósamræmi frá minni hálfu.