21.01.1928
Neðri deild: 3. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1692 í B-deild Alþingistíðinda. (752)
10. mál, sundhöll í Reykjavík
Hjeðinn Valdimarsson:
Það er aðeins ofurlítil leiðrjetting til hv. 3. þm. Reykv.
Þetta mál var nægilega upplýst fyrir ári síðan. Þá lá frammi í bæjarstjórn bæði uppdráttur af sundhöllinni og kostnaðaráætlun. Hefði þá verið vilji íhaldsliðsins í bæjarstjórn og íhaldsstjórnarinnar, er þá fór með völdin, að byggja sundhöllina, þá hefðu þeir getað borið þetta frv. fram á síðasta þingi, og þá hefði verið byrjað á sundhöllinni nú.
Það er því mesti misskilningur hjá hv. 3. þm. Reykv., að íhaldsmennirnir í bæjarstjórninni hafi verið málinu hlyntir. Þeir hafa frá byrjun verið því andvígir og reynt að tefja fyrir framgangi þess á alla lund. Reki maður málið frá því það kom inn í fjárhagsnefnd bæjarstjórnar, þá sjest, að íhaldsmenn vildu láta sjer nægja aðeins að tala við Alþingi og stjórn, án þess að ákveðið yrði, að Sundhöllin skyldi komin upp fyrir 1930, sem þó var metnaðarmál, ekki aðeins allra helstu íþróttamanna hjer í bæ, heldur og fjölda annara borgara bæjarins.
Hitt er annað mál, að eftir að bæjarstjórn og íhaldslið hennar heyrði, að frv. þetta mundi á döfinni hjá hæstv. dómsmrh. og að íþróttamenn bæjarins mundu fylgja því fast eftir, þá sneru þeir við blaðinu, íhaldsmennirnir, og gengu inn á að heimila borgarstjóra að taka lán fyrir bæinn, til þess að fullnægja skilyrðum þeim, er Alþingi mundi heimta gegn styrknum úr ríkissjóði. Má því búast við, að málið komist nú í höfn, enda þótt heppilegra hefði verið, að ákveðið hefði verið af bæjarstjórn að leggja kostnaðinn við Sundhöllina á í útsvörum 2–3 ára, eins og við jafnaðarmenn vildum, heldur en að eiga á hættu, hvort lán fáist í þessum tilgangi handa bænum.