13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (760)

10. mál, sundhöll í Reykjavík

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þar eð hæstv. dómsmrh. er bundinn við umræður í Ed., ætla jeg að segja nokkur orð fyrir hans hönd.

Bæði hv. þm. N.-Ísf. og hv. 1. þm. N.-M. hafa þegar gert grein fyrir brtt. sínum. Jeg er þeim alveg sammála um, að ekki beri að leggja fram tiltölulega meira fje til sundhallar í Reykjavík en til sundlauga úti um landið. En það er til önnur leið til lagfæringar á því atriði en sú, sem hv. þm. vilja fara. Þeir vilja lækka framlag til sundhallar í Reykjavík, en jeg álít miklu betra að hækka framlag til sundlauga úti um land. Mjer finst þetta mál yfirleitt vera eitthvert hið allra þýðingarmesta, sem nú er á dagskrá þjóðarinnar, vafalaust enn þýðingarmeira en spítalamálin. En jeg álít sjálfsagt, að um leið og styrkt er bygging sundhallar í Reykjavík verði í sama hlutfalli lagt fram fje til eflingar sundíþróttinni úti um sveitir landsins. Ef aðrir verða ekki til þess, mun jeg gera það. Jeg skal geta þess, að það er af tilviljun einni, að ekki er í fjárlögunum sama hlutfallið í framlagi til Reykjavíkur og annara landshluta. Það var talað um það í stjórninni, en fyrir óaðgæslu komst það ekki inn í fjárlögin.

Jeg vil leyfa mjer að leiðrjetta eitt atriði í ræðu hv. þm. N.-Ísf. Hann sagði, að bæirnir þyrftu að leggja á sig þungar byrðar til þess að geta komið sjer upp og rekið sjúkrahús. Jeg veit, að til dæmis á Seyðisfirði er, samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins, sem birt var í blaði eystra, gert ráð fyrir ágóða af rekstri sjúkrahússins.

Hinsvegar er það alveg rjett, að þar sem margmenni er, eins og hjer í Reykjavík, er miklu betri aðstaða til verklegra framkvæmda en annarsstaðar á landinu. En bærinn á í mörg horn að líta, og eins verður að gæta þess, að ef bæjarlífið er óhollara en sveitalífið, verður að leggja áherslu á að bæta úr því eins og hægt er. En að því miðar hin fyrirhugaða sundhöll. Mjer finst sem sagt, að hjer sje um svo mikið menningarmál að ræða, að ríkið verði að láta það verulega til sín taka. Þeir menn, sem aðallega berjast fyrir þessu máli, íþróttamennirnir, eiga líka skilið að fá rösklegan stuðning, því að þeir hafa sýnt mikinn dugnað og einlægan vilja á að hrinda því í framkvæmd. Jeg vil eindregið mæla með því, að hv. deild samþykki frv. eins og það er nú.