13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1704 í B-deild Alþingistíðinda. (763)

10. mál, sundhöll í Reykjavík

Jón Auðunn Jónsson:

Það er alveg óþarfi að halda hjer langar ræður um nytsemi sundíþróttarinnar. Okkur flm. þessara brtt. er ekki síður en öðrum kunnugt um, að sund er einhver hin nytsamasta íþrótt, sem menn iðka, og jeg get bætt því við frá sjálfum mjer, að jeg fjekk heilsubót á unga aldri fyrir það, að jeg lærði þessa íþrótt.

Jeg ætti því síst að vera að hafa á móti ágæti þessarar íþróttar, enda er langt frá því, að svo sje. Það, sem hjer er um að ræða, er fyrirkomulagsatriði, það, hvert framlag ríkissjóðs á að vera. Jeg lít svo á, að Reykjavíkurbær muni alveg eins byggja sundhöll, hvort heldur sem hann er styrktur til þess með 65 eða 100 þús. kr. Ef hann gerði það ekki, þá mætti þar af draga þá ályktun, að nauðsyn sundhallar hjer væri ekki eins brýn og margir ætla. Annars er gott að eiga von á því, að hæstv. dómsmrh. beiti sjer fyrir, að meira fje verði lagt til sundlauga úti um land en hingað til hefir verið gert. Þó ber að líta á efnahag ríkissjóðs í þessu sem öðru.

Það er að sjálfsögðu rjett hjá hæstv. ráðh., að þörfin fyrir sundlaugar sje brýnni í kaupstöðum og kauptúnum landsins en til sveita, en þá verður maður jafnframt að gera ráð fyrir, að íbúar þessara staða leggi meira á sig til þess að fá þær umbætur en sveitirnar gera eða geta gert, og hvað bæjarfjelag Reykjavíkur snertir, þá finst mjer, að aðstaða þess sje að miklum mun betri en annara kaupstaða, að jeg tali ekki um sveitirnar. Að hætt verði að byggja sjúkrahús, þó að sundhöllin verði bygð, er jeg ekki viss um. En því get jeg aftur á móti trúað, að það dragi úr aðsókn að þeim.

Því, sem hæstv. ráðherra var að tala um reikninga Seyðisfjarðarkaupstaðar, ætla jeg ekki að svara. Jeg hygg þó, að byggingarkostnaður sjúkrahússins þar sje ekki talinn með, þegar talað er um, að bær þessi geti rekið sjúkrahúsið hallalaust fyrir bæjarfjelagið. Líka getur vistin verið seld svo dýrt í því sjúkrahúsi, að óhæfilegt sje. Auk þess ber þess að gæta, að sjúkrahús þetta er langt frá því að fullnægja kröfum tímans.

Hvað snertir heiður þingsins, sem hv. þm. V.-Ísf. var að tala um, þá held jeg, að hann sje mestur, ef það gætir fullrar sanngirni í öllum tillögum.

Eins og tekið hefir verið fram, hefir tillag ríkissjóðs til sundlauga úti um land verið 4 þús. kr. á ári, en nú á að veita til sundhallar hjer í Reykjavík á einu ári 100 þús. kr. Það sjá allir, hvílíkt ósamræmi er í þessu, enda þótt það sje rjett, sem haldið hefir verið fram, að þetta tillag til sundhallarinnar væri í eitt skifti fyrir öll; en svo er líka um tillag til annara hjeraða.

Ef maður leggur til grundvallar þörfina í hinum ýmsu hjeruðum landsins fyrir því að fá sundlaugar, þá myndi fje það, sem verja þyrfti til þeirra árlega, verða svo mikið, að á einum áratug skifti miljónum kr., ef það ætti að vera í samræmi við þetta tillag ríkissjóðs til sundhallarinnar í Reykjavík.

Að sjálfsögðu eiga íþróttamenn landsins alt gott skilið, og jeg er viss um, að hvorugur okkar flm. þessar a brtt. viljum leggja stein í götu þeirra. En við viljum, að gætt sje samræmis í þessum tillögum eins og öðrum og litið á getu ríkissjóðsins.