13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (772)

10. mál, sundhöll í Reykjavík

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Háttv. þm. N.-Ísf. hjelt því fram, að ef nú yrðu veittar 100 þús. kr. til Sundhallar í Reykjavík, myndi það leiða af sjer fjárveitingar svo miljónum skifti til annara landshluta. En þótt fjárveitingar væru veittar í hlutfalli við fólksfjölda í þessu skyni, yrðu það þó ekki nema 400 þús. kr. En jeg vona samt, að hv. þm. reynist hjer sannspár og þetta verði gert með tímanum. Jeg ætlast ekki til, að það verði gert í ár eða að ári. Jeg býst við, að það taki eina öld að koma böðum og sundi meðal landsmanna í æskilegt horf. Jeg get tekið undir með hv. þm. um það, að í þessa þörf á að eyða miklu fje, en það á að gera það á löngum tíma. Það er ekki rjett að blína á upphæðina eina, heldur á hve löngum tíma hún er veitt til framkvæmda. Jeg hygg, að 10–20 þús. kr. á ári til annara landshluta en Reykjavíkur nægi til að byrja með.

Hv. þm. Borgf. talaði um, að stj. væri að skera niður verklegar framkvæmdir um leið og hún bæri fram till. sem þessa. Jeg vil benda honum á, að hjer er um verklega framkvæmd að ræða, og síst óveglegri en margar aðrar. Gildi verklegra framkvæmda á að miða við það gagn, sem af þeim leiðir. Þessi sami hv. þm. var gramur út af því, að nú, þegar hlutfallinu um framlag ríkissjóðs til sundlauga væri breytt, þá er það Reykjavík, sem upphafinu veldur. Við, sem unnum Reykjavík góðs, og öllu landinu, hljótum að gleðjast yfir því hvorutveggja, að hagur Reykjavíkur og annara landshluta hækkar, en hinir, sem draga taum annara landshluta, hljóta að gleðjast yfir því, að af þessu leiðir, að hlutfallið breytist einnig í öðrum landshlutum, eins og fram hefir komið í umræðunum, að allir eru ásáttir um.

Önnur brtt. við frv. myndi auka kr. 1.50 gjaldi á hvern mann í Reykjavík og hin till. kr. 3.00 gjaldi. Þetta myndi að líkindum nema 10–20 kr. skatti á okkur lægri gjaldendurna. Að þingmannsins dómi eiga þessar krónur að standa á bak við þessar fjárheimtur úr ríkissjóði. Jeg held, að hv. þm. hafi ekki athugað, hvað hann var að segja. Hann var svo harðorður í garð okkar Reykvíkinga, að jeg held, að jeg verði ekki of harðvítugur við hann, þótt jeg líki honum við Cato gamla, sem elskaði fornar dygðir eins og hv. þm. Mjer kom það í hug út af því, sem hann sagði um sjóböðin. Cato, sem elskaði fornar dygðir, eins og hv. þm., talaði eitt sinn um það í Senatinu, að menn væru nú orðnir svo góðir og mjúkir við þræla sína, að til vandræða horfði, og væri það munur eða í gamla daga, þegar þeir voru barðir til óbóta. En fyrst þessi hv. þm. elskar svo mjög fornar dygðir, eins og jeg veit, að hann gerir, og að hann hefir líka margar þeirra til að bera í ríkum mæli, þá ætti hann að gera sitt til þess að endurreisa þessa fornu dygð; sundkunnáttuna. Þeir, sem elska forna hreysti og hetjuskap, eiga að styðja þetta mál vegna framtíðarinnar og landsins í heild.