13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (775)

10. mál, sundhöll í Reykjavík

Einar Jónsson:

Það er fjarri mjer að efast um, að hjer sje gott og gagnlegt mál á ferðinni. En jeg var að bíða eftir því, hvort ekki kæmi fram við umræðurnar, að menn hefðu tekið eftir, hvað hjer er að gerast, sem sje, að strikaðar eru út úr fjárlögunum jafnháar upphæðir til verklegra framkvæmda, eins og hv. þm. Borgf. benti á. Í aths. við fjárlagafrv. stjórnarinnar er þess getið, að framlög til síma og brúa hafi verið lækkuð um 100 þús. kr. til hvors um sig. Þessar fjárhæðir eiga að ganga að hálfu leyti til þess, sem hjer liggur fyrir, og að hálfu leyti til letigarðsins.

Jeg tel alla sanngirni mæla með því, að bygging sundhallarinnar verði styrkt eftir sömu hlutföllum og sundlaugabyggingar annarsstaðar á landinu. En eigi að miða þau framlög við till. stjfrv., hlýtur að leiða af því stórhækkuð útgjöld. Jeg fyrir mitt leyti mun greiða atkv. með brtt. fremur en stjfrv. Það er ekki vegna þess, að jeg telji ekki málið gott og gagnlegt, heldur af því, að jeg tel ekki rjett, að skornar sjeu niður verklegar framkvæmdir til að hrinda því í framkvæmd. Jeg heyrði einhvern minnast á það í umræðunum, að það myndi ekki verða málinu til falls, þótt Reykjavík yrði að leggja fram meira en helming. En því var bætt við, að ríkissjóði bæri skylda til framlags að hálfu, vegna þeirra manna, er kæmu hingað utan af landinu. Reykjavík nýtur nú ýmissa hlunninda af ríkinu fram yfir aðra landshluta. Jeg fyrir mitt leyti get t. d. ekki sætt mig við, að ríkið kosti kirkjugarðinn hjer í Reykjavík. Ekki verður heldur sjeð, að bráður háski geti af því stafað, þótt þetta mál komist ekki í framkvæmd nú þegar. Þótt gömlu sundlaugarnar sjeu að vísu ónógar orðnar, eru þær þó til mikilla bóta. Og auk þess er sjórinn, sem er vafalaust hollasta heilsulaugin. Reykjavík er í þessum efnum betur stödd en ýmsir aðrir staðir á landinu.