15.02.1928
Efri deild: 23. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (782)
10. mál, sundhöll í Reykjavík
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Þessu frv., sem nú hefir gengið gegnum þrjár umr. í Nd., hefir verið tekið vel þar, og vona jeg, að eins verði hjer í þessari hv. deild.
Eins og frv. ber með sjer, þá er það innihald þess, að heimila stjórninni að styðja að því, að sundhöll verði komið upp hjer í Reykjavík fyrir árið 1930. Gert hefir verið ráð fyrir, að fyrirtæki þetta kosti um 200 þús. kr. og að bærinn leggi til það, sem á vantar, að ríkisframlagið nægi. Það, sem ríkið legði til, gæti þá orðið alt að helmingi kostnaðar.
Rökin fyrir því, að nú er farið af stað með þetta mál, eru þau, að gert hefir verið ráð fyrir því, að heitt vatn verði leitt til bæjarins á næsta ári, til hitunar á landsspítalanum og barnaskóla bæjarins, sem þá er gert ráð fyrir, að verði fullgerður og tekinn til afnota haustið 1929. Felst þá til heitt vatn, sem hefir gengið í gegnum þessi hús og hitað þau, en er orðið of kalt til að hita fleiri hús, þótt það sje nægjanlega heitt til þess að nota það í sundlaug. Nú hefir bæjarstjórn og íþróttamönnum þessa bæjar komið saman um stað fyrir sundhöllina, og liggur hann lítið eitt lægra en barnaskólinn. Er þangað örstutt leiðsla, og má því telja alveg kostnaðarlaust að leiða vatnið í sundhöllina. Er því hjer um sjerlega mikil hlunnindi að ræða, að fá þetta heita vatn, sem ekki er hægt að nota til annars, alveg kostnaðarlaust, að telja má, til þessara afnota. Hjer er því aðallega um stofnkostnað að ræða. Erlendis er rekstrarkostnaðurinn víða aðalatriðið. Er því hjer um sjerlega heppilega aðstöðu að ræða. Frá almennu sjónarmiði eru það einkum þrjú atriði, sem mæla með þessu máli. Í fyrsta lagi er þetta mál mikils varðandi fyrir íþróttalíf bæjarins, og reyndar alls landsins, því hjer mun fólki víðsvegar af landinu gefast kostur á að iðka sund. Í öðru lagi mun eldra fólki gefast færi á að njóta þeirrar hollustu, sem sundið hefir að bjóða, og er það mikilsvert, þar sem eins hagar til og hjer, að erfitt er um allar útiíþróttir að vetrinum. Og þar sem fólkið býr yfirleitt í þröngum húsakynnum og á fæst aðgang að baðtækjum, mundi þetta mjög verða til þrifnaðar og heilsubóta.
Síðasta atriðið er það, að undirbúningur undir hátíðahöldin 1930 hefir ýtt á eftir þessu máli. Sundhöllin mundi, flestu framar, vekja eftirtekt gesta vorra þá og bera uppi orðstír okkar. Slík fyrirtæki sem þessi eru enn ekki komin upp nema í stærri borgum erlendis. T. d. eru fá ár síðan fyrsta sundhöllin kom í Danmörku, þó ekki í höfuðborginni. Nú mun verið að koma þessu máli í framkvæmd í Kaupmannahöfn. Í Osló er ein slík stofnun. Þessi framkvæmd myndi því sýna, að hjer er áhugi fyrir þessari grein menningarinnar, sem jafnvel margar stórborgir erlendis hafa enn ekki getað sint. Það vakti nokkra óánægju í hv. Nd. hjá sumum, að hjer er gert ráð fyrir öðru hlutfalli um styrkveitingu en því, sem áður hefir tíðkast og sem hefir verið 1/5 kostnaðar. En jeg tel, að mjer sje óhætt að fullyrða, að hv. fjvn. Nd. muni leggja til, að því hlutfalli verði breytt, svo aðrir njóti sama hlutfalls framvegis, og hefi jeg von um, að tillagið til þessara framkvæmda verði einnig hækkað nokkuð, því hjer er um nauðsynjamál að ræða.
Vona jeg svo, að máli þessu verði eins vel tekið í þessari hv. deild eins og því var tekið í hv. Nd. Legg svo til, að því verði að umr. lokinni vísað til mentmn.