14.03.1928
Efri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (793)

10. mál, sundhöll í Reykjavík

Páll Hermannsson:

Jeg þarf litlu við að bæta. Í sambandi við það, að bent hefir verið á, að sundhöllin kostaði meira en 200 þús. kr., vil jeg taka það fram, að fyrir mjer vakti, að framlagið yrði 1/3 af kostnaði, og því giskaði jeg á 75 þús. kr. sömuleiðis hefir verið bent á, að þingið, með því að samþ. 100 þús. kr. til sundhallarinnar, ákvæði þar með, að hlutfallið yrði það sama úti um land. Jeg veit, að þetta er rjett og hlýtur að sigla í kjölfarið. En jeg hygg, að 1/3 kostnaðar nægi úti um land. Mjer er kunnugt um það, að úti um sveitirnar geta ungir og áhugasamir menn lagt nokkuð af kostnaðinum fram með vinnu sinni án verulegra útgjalda. Að öðru leyti þarf jeg ekki að blanda mjer í umr.