29.02.1928
Neðri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

1. mál, fjárlög 1929

Haraldur Guðmundsson:

Nú er orðið langt síðan jeg kvaddi mjer hljóðs, og er margt búið að segja síðan. — Ástæðan til þess, að jeg bað um orðið, var ekki sú, að mig langaði til að taka þátt í eldhúsumræðunum. Skal jeg þó taka fram, að það er ekki fyrir þá sök, að jeg og flokksbræður mínir sjáum ekki sitthvað, er aflaga fer hjá hæstv. stjórn, og þó enn fleira hjá fyrv. stjórn, er hjer hefir einnig verið dregin fram í eldhúsið. Frá sjónarmiði okkar jafnaðarmanna horfir þannig við um stjórnirnar báðar, þessar eldabuskur þjóðarinnar, að þær líta alt öðrum augum á aðferðir við eldamenskuna en við gerum. En mikill er þó munurinn, hvað hæstv. núv. stjórn hefir reynst fremri fyrirrennara sínum, að síðari eldabuskunni alveg ólofaðri þó. Hlýt jeg að segja, að hún hefir verið svo mikið skárri sinn stutta vistartíma, að hún á fulla sanngirniskröfu á að fá að reyna sig lengur.

Eins og áður er sagt, eru það ekki eldhúsverkin, sem freista mín, heldur var það háttv. þm. N.-Ísf. (JAJ), sem gaf mjer tilefni til að standa upp. Hann flutti fyrir hv. deild sára kveinstafi út af meðferð hins vonda manns, hæstv. dómsmrh., á honum sjálfum sjerstaklega og kjósendum í Norður-Ísafjarðarsýslu yfirleitt. Jeg hefði álitið það skynsamlegast og heppilegast af þessum háttv. þm. að hreyfa ekki þessu máli nú. Það hefði verið mennilegra af honum að reyna að bera harm sinn í hljóði. Í sambandi við kveinstafi háttv. þm. koma mjer í hug orð eins málsnjallasta flokksbróður hans um annan háttv. íhaldsþingmann hjer í hv. deild, að framkoma hans hafi verið mannleg, en ekki stórmannleg. Þessi orð eiga mjög vel við um þennan höfund hinnar nýju Píslarsögu.

Hv. þm. byrjaði á því að skýra frá, að um þingtímann í fyrra hafi hann skrifað nokkrum kjósendum í Norður-Ísafjarðarsýslu og spurt þá um kosningahorfur. Hafi þeir talið víst, að hann fengi 300–400 atkvæða meiri hluta. Mjer dettur ekki í hug að bera brigður á þessa frásögn, en jeg sje bara ekki, hvað hún kemur málinu við.

Hæstv. dómsmrh. hefir minst á brjefaskriftir hv. þm. (JAJ) til kjörstjórnanna, þar sem hann brýnir svo mjög fyrir þeim að fylgja bókstaf laganna, því að annars kynnu vondir menn að kæra kosninguna. (JAJ: Þetta er slitið út úr samhengi). Ekki af mjer. Jeg segi aðeins orð hæstv. dómsmrh. — Annars benti hæstv. ráðherra á aðra hlið á umsögn hv. þm. um þessar brjefaskriftir. Þær sýna sem sje það, að hann hefir haft nokkurn grun um, að kjörstjórnirnar hefðu tilhneigingu til að hirða lítið um bókstaf laganna. Og mig furðar ekki á þeim grun hans. En jeg hlýt að samhryggjast yfir árangrinum af brjefaskriftum hans, og jeg held jafnvel, að hann ætti að leggja þær niður. Ekki síst, ef þær skyldu bera Hnífsdalsávöxt. (JAJ: Jeg skrifaði aðeins í nýjar kjördeildir). Það var þá bagalegt, að hann skyldi ekki koma brjefi til Hnífsdalshreppstjórans líka. Ekki hefði af veitt.

Hv. þm. sagði ennfremur, að hann hefði gert alt, sem hann gat, til að knýja fram frekari rannsókn í málinu. Kveðst hann hafa sent hæstv. landsstjórn skeyti þess efnis, er sýslumaður var farinn í þingaferðir. Jeg leyfi mjer að bera brigður á, að þessi hv. þm. hafi gert það, sem hann gat, til að knýja fram rannsókn í málinu( JAJ: Hægt að sanna það!). Jeg held nú þvert á móti, að hægt sje að sanna, að það sje ósatt.

Fyrsta sönnunin er sú, sem nú skal greina. Við talningu atkv. hjá yfirkjörstjórn var henni afhent símskeyti frá bæjarfógetanum á Ísafirði, sem jeg, með leyfi hæstv. forseta, skal lesa klausu úr. Þetta símskeyti er útdráttur úr gerðabók yfirkjörstjórnarinnar í Vatnsfirði, ekki orðrjett eftirrit, heldur eitthvað breytt að orðalagi. Þar segir svo (eftir að fundur hafði verið settur):

„Annar frambjóðandinn, Finnur Jónsson, krafðist þess, að bókað væri svo hljóðandi símskeyti, er borist hafði yfirkjörstjórninni frá sýslumanni, dags. 14. þ. m. á Þingeyri: Vegna rannsóknar svonefnds Hnífsdalsmáls óska jeg, ef hægt er, að kjörseðlum úr þeim hreppum, sem kosið hefir verið utan kjörstaðar í Hnífsdal, verði haldið aðskildum.

Sýslumaður.

Gerði frambjóðandi F. J. kröfu til, að þetta yrði gert. Yfirkjörstjórnin taldi sig ekki geta sint þessari kröfu“.

Eins og hv. þdm. sjá, er það eftir ósk annars frambjóðandans, F. J., að símskeytið er bókað. Yfirkjörstjórnin sá ekki ástæðu til að bóka það, og hinn frambjóðandinn, sem nú segist hafa verið fullur af brennandi áhuga fyrir því, að rannsókn málsins hjeldi áfram og gæfi einhvern árangur, hann sjer heldur ekki ástæðu til þess einu sinni að óska eftir, að símskeytið sje bókað. Hann andmælti því og beinlínis, að kjörstjórn yrði við þeim tilmælum að halda atkvæðum, greiddum hjá hreppstjóranum í Hnífsdal, sjerstökum. Og hún varð heldur ekki við þeim. Í kjörstjórn þessari eru einungis fylgismenn þessa hv. þm., og hann fær með andmælum sínum kjörstjórnina til að neita að verða við þessari sjálfsögðu beiðni bæjarfógeta. En ef það hefði verið gert, — ef þessum 20–30 atkvæðum hefði verið haldið aðgreindum frá öðrum atkvæðum, þá hefði það orðið margfalt auðveldara fyrir rannsóknardómarann að grafast fyrir rætur fölsunarinnar. Nú þurfti hann að rannsaka öll utankjörstaðaatkvæðin í sýslunni, en ella þurfti hann aðeins að rannsaka 20–30. Það voru fleiri seðlar, sem komu frá Hnífsdal, en þeir, sem grunur ljek á, að falsaðir hefðu verið. Leynd kosningarinnar var því ekki raskað með þessu. Það hefði mátt leggja öll þessi atkv. í sjerstöku umslagi í atkvæðakassann.

Ef hv. þm. N.-Ísf. kallar þetta að vinna að því, að rannsókn sje framkvæmd og að hún nái tilgangi sínum, þá er það sama og að kalla svart hvítt, vil jeg segja.

Þá er annað. Þegar Steindór Gunnlaugsson, fulltrúi í stjórnarráðinu, sem var sendur vestur til að rannsaka þetta mál, hafði lokið sinni rannsókn, slepti hann föngunum úr varðhaldi og hjelt aftur suður. Ljet hann svo um mælt, að hann sæi ekki ástæðu til að halda föngunum lengur í varðhaldi, jafnvel þó svo kynni að fara, að rannsókn yrði eitthvað haldið áfram, sem hann sjáanlega ekki hefir búist við þá og alls ekki ætlast til. Í raun og veru var það þá alment talið víst, að með þessu væri lokið allri rannsókn.

Mjer er nú ekki kunnugt um, að hv. þm., sem auðvitað var vel kunnugt um þetta, hafi gert nokkurn skapaðan hlut þá til þess að vinna að því, að frekari rannsókn yrði framkvæmd í þessu máli. Framhald rannsóknarinnar var áreiðanlega gerð að honum fornspurðum og gersamlega án hans tilverknaðar.

Þá er loks að minnast á þriðja atriðið. Þegar hv. þm. mætti fyrir rjetti hjá rannsóknardómara þ. 11. nóv., að jeg ætla, þá kemur hann með skjöl upp á vasann, þar sem hann „úrskurðar“, að þessi rannsókn beri á sjer „pólitískan“ lit ; með öðrum orðum, að þetta sje „pólitísk“ ofsókn, — ekki kannske beinlínis á hann sjálfan, heldur á hans flokksbræður. Ef hann kallar þetta að ljetta rannsóknina og hjálpa rannsóknardómara, þá veit jeg ekki, hver orð á að hafa um hans andlega ástand.

Þrír úrskurðir, sem feldir hafa verið á síðasta tíma, eru frægir orðnir. Það er úrskurður Einars sýslumanns Jónassonar í Barðastrandarsýslu, þar sem hann úrskurðar sjálfan sig í embætti, — Pjeturs Oddsonar, þar sem hann úrskurðar, að ekki sje ástæða til að setja mann í gæsluvarðhald, — og síðast en ekki síst úrskurður þessa hv. þm. N.-Ísf., þar sem hann gerir sig að einskonar yfirdómara yfir rannsókninni og úrskurðar, að hún sje „pólitísk“ ofsókn. Enginn af þessum úrskurðum er rökstuddur á nokkurn hátt, nema þá helst úrskurður Einars sýslumanns. Allir eru þeir sjáanlega af svipuðum toga spunnir, enda er erfitt að gera mun á skarpleika þessara þremenninga, ef dæma skal eftir úrskurðunum eingöngu. Hugsunarháttur þeirra allra virðist nauðalíkur.

Hv. þm. vildi telja það sönnun þess, að hann hefði reynt að gera eitthvað til þess að rannsókn næði fram að ganga, að hann hefði sent íhaldsstjórninni sáluðu brjef eða símskeyti. Mjer er ekki kunnugt um neinn árangur af því skeyti, nema ef vera skyldi sendiför stjórnarráðsfulltrúans, Steindórs Gunnlaugssonar, er vægast sagt upplýsti lítið. Hann gat einnig um það í sambandi við mótþróann í Hnífsdal gegn handtöku Hálfdáns og fulltrúa hans, að þegar mennirnir komu heim, sem voru viðstaddir í Hnífsdal, þá hafi hann „heimtað“ einn þeirra á sinn fund og tekið af honum skýrslu undir eiðstilboð um það, að enginn mótþrói gegn rannsóknardómaranum hefði átt sjer stað. Hvað af skýrslu þessari hefir orðið, skal jeg nú ekkert segja um; en hv. þm. fer alveg villur vegar, ef hann heldur, að hann hafi átt að vera rannsóknardómari í málinu og taka eiðfestar skýrslur af mönnum. Nei, hv. þm. hefir enn ekki verið skipaður rannsóknardómari í Hnífsdalsmálinu, og mitt álit á hæstv. dómsmrh. mundi mikið rýrna, ef hann útnefndi þennan háttv. þm. til þess starfs. Þó að hv. þm. setji á sig valdsmannslegan svip og heimti skýrslur, þá skil jeg ekki, hvað það kemur málinu við. Hann getur náttúrlega gert slíkt sjer til skemtunar, en hann upplýsir málið ekki með þessu.

Jeg drap á það áður, að svo liti út, sem ýmsir þeir menn, sem háttv. þm. kvaðst hafa skrifað og brýnt fyrir að halda kosningalögin, hafi daufheyrst við þessum tilmælum. Jeg hefi í huga mínum verið að leita að ástæðum til þess, að þeir virða svo lítið skrifleg orð þessa hv. þm. um þessi efni. Jeg hefi við þessa rannsókn fundið eitt atriði, sem mjer sýnist upplýsa mjög skýrt og greinilega. Enginn maður á þessu landi — að undanteknum þeim, sem atkvæðin fölsuðu vestra — hefir greinilegar þverbrotið kosningalögin en einmitt hv. þm. N.-Ísf. Það er ekkert leyndarmál, heldur á allra manna vitorði og skráð í þingtíðindum, að þessi hv. þm. hefir gerst svo ósvífinn og ófyrirleitinn að brjóta kosningalögin, og það á Alþingi í votta viðurvist. Á þinginu 1923 gerðist hann til þess að opna að minsta kosti eitt — jeg ætla tvö — atkvæðaumslag, sem sent var lokað til Alþingis. (JAJ: Var það jeg, sem opnaði þau?). Jeg ætla, að hv. þm. hafi opnað þau, að minsta kosti var hann með í ráðum, og einmitt hann skýrði frá því í sameinuðu þingi, hvernig kosið var á þessa miða. Nú er það vitað af öllum, að fullkomin leynd á að hvíla yfir því, hvernig menn kjósa og stór víti liggja við að hnýsast í atkvæði eða skýra frá, hvernig kjósandi notar atkvæði sitt. Hv. þm. hefir orðið til þess að skýra frá því, að nafngreind kona og nafngreindur maður hafi kosið nafngreindan mann. Hann opnaði eða var með í ráðum þegar atkvæðin voru opnuð, hafði framsögu og sagði frá þessu ófeiminn og blygðunarlaust í áheyrn alls þingheims.

Jeg sje ekki, hvernig greinilegar er hægt að brjóta kosningalögin. Mig furðar ekki, þótt kjósendur þessa hv. þm. sjeu seinir til að fylgja bendingum hans um framkvæmd kosningalaga. Hann er þar að kenna siði, sem hann sjálfur hefir virt að vettugi, ef hann áminnir þá um að fylgja lögunum.

Þetta er nú alt um ræðu hv. þm. alment. En hann veittist líka nokkuð að ákveðnum ummælum, sem jeg hafði, er kosningin í Norður-Ísafjarðarsýslu var hjer til umræðu á dögunum. Þarf jeg að svara því nokkrum orðum.

Hann gat fyrst um það, að 1923, þegar þeir Jón Thoroddsen keptu um þingsætið í Norður-Ísafjarðarsýslu, þá hefði sá frambjóðandi að leikslokum sagt, að hann hefði ekki getað óskað sjer drengilegri andstæðing en hann hefði verið. Jeg skal ekki bera brigður á þetta beinlínis, en vil benda á, að hann er hjer einn til frásagnar. Jeg sagði ekkert og ætla ekkert að segja nú um kosninguna í Norður-Ísafjarðarsýslu 1923, enda mun nóg annað umræðuefni hjer í kvöld.

Þá sagði hv. þm., að jeg hefði sagt í umræðunum um kosninguna í Norður-Ísafjarðarsýslu, að mjer væri ókunnugt um, að nokkur hafi borið jafnaðarmönnum á brýn 1923, að misfellun hefðu verið á kosningabaráttu þeirra. Þetta hefi jeg ekki sagt; jeg hefi flett gegnum ræðu mína til þess að athuga þetta. Jeg sagði önnur orð svipuð, en annars eðlis þó, sem jeg skal láta hann heyra, með leyfi hæstv. forseta:

„Hann (þ. e. 3. landsk. JÞ) dirfðist að hafa þau ummæli, að framkoma flokkanna á Ísafirði mundi hafa verið svipuð í kosningunum. Þetta er svívirðilegur áburður á Alþýðuflokkinn. Enginn hefir hingað til þorað að bendla hann við svipuð kosningabrögð og íhaldsmenn hafa gert sig seka í.“

Þetta var það, sem jeg sagði, og átti það eingöngu við kosninguna 1927. Mjer er vel kunnugt um, að íhaldsmenn vestra reyndu að telja fólki trú um, að við hefðum 1923 á Ísafirði notað sömu kosningaklækina og sjálfir þeir. Ljetu þeir t. d. blað sitt Vesturland flytja dylgjur og óhróðurssögur þess efnis. Að þetta er svona, má hv. þm. sannfærast um, því að jeg hafði einmitt áður í einni ræðu minni, þegar rætt var um kosningu hans, tekið fram, að ein af ástæðunum fyrir því, að jafnaðarmenn á Ísafirði 1924 kröfðust rannsóknar á kosningunni 1923, var sú, að íhaldsblaðið á Ísafirði, Vesturland, hafði borið þá brigslyrðum um ósæmilegt framferði í kosningabaráttunni. Þeir kröfðust rannsóknar, svo að hægt væri að hnekkja ámæli, sem þeir vildu ekki liggja undir.

Hitt er rjett, að enginn hefir ennþá þorað að bera jafnaðarmönnum á Ísafirði á brýn, að athæfi þeirra hafi verið neitt svipað því, sem nú má telja sannað um íhaldsmenn vestra. Þessu mun hv. þm. ekki þora að mæla á móti.

Út af þessu fór hann að tala um bletti á kosningabaráttu jafnaðarmanna á Ísafirði 1923 og sagði frá því, hvernig heimakosning hefði farið fram. Geri jeg ráð fyrir, að háttv. þm. sje þetta kunnugt. En hvort hann hefir sagt þar rjett frá, er annað mál. Hann sagði, að annar læknirinn, íhaldslæknirinn, hefði verið svo samviskusamur, að hann hefði fylgst með fulltrúa bæjarfógeta í húsin og grandskoðað kjósendur og að hann hefði vísað tveimur frá til þess að kjósa á kjörstað. Jeg ber ekki brigður á þessa sögu hv. þm.

Til þess aftur á móti að sýna, hvernig var í herbúðum jafnaðarmanna, sagði hann, að hinn læknirinn, sem er jafnaðarmaður, hafi ekki verið svo samviskusamur, heldur hafi hann án þess að líta á sjúklingana gefið vottorð, sem fulltrúi bæjarfógeta hafði með sjer handa þeim, sem kusu heima.

Hv. þm. vildi leggja þetta framferði læknisins nokkuð að jöfnu við brögð þau, sem íhaldsmenn vestra notuðu við síðustu kosningar. Jeg læt hv. þdm. um að dæma um þennan fáránlega samanburð. En til viðbótar skal jeg benda á, að þetta, sem hann taldi lögbrot hjá lækninum, er alls ekkert lögbrot. Í lögunum um heimakosningar eru fyrirmæli um það, að lasleiki eða sjúkdómur, sem hamli mönnum frá að mæta á kjörstað, skuli sannaður með læknisvottorði, en enginn stafur er um það, að læknir eigi að skoða hvern mann um leið og hann neytir atkvæðisrjettar síns.

Jeg get dæmt um það af kunnugleika — og hv. þm. er þetta kunnugt líka —, að hjeraðslæknirinn á Ísafirði er áreiðanlega svo kunnugur í kaupstaðnum, að hann veit nákvæmlega um — það, hvernig er heilsufar þeirra manna, sem hann stundar á hverjum tíma. Hv. þm. sagði, að læknirinn hefði gefið vottorð löngu áður og ekki vitað um heilsufarið. Þetta er auðvitað tilhæfulaus fullyrðing, eingöngu til þess gerð að reyna að ófrægja þann mæta mann, sem hjer á hlut að máli. Jeg skora á hv. þm., í stað þess að vera með dylgjur til fjarverandi manna, að tilfæra dæmi þess, að vottorð hafi verið gefið að ástæðulausu.

Ekki vissi jeg, að hv. þm. var svo leikinn í skáldsagnalist, sem sagan um þvottakonuna bar vott um. Hann sagði, að hún hefði staðið við þvottapottinn, og hefði þá verið komið með vottorð um, að hún yrði veik næsta dag og þyrfti því að kjósa heima strax. Það er gersamlega tilhæfulaust, að þetta hafi átt sjer stað um nokkurn, sem kosið hefir að tilhlutun jafnaðarmanna. Sje þetta ekki tómur skáldskapur, er hv. þm. áreiðanlega að segja frá viðburðum úr eigin herbúðum. (JAJ: Jeg ætla að sanna þetta). Við skulum bíða þangað til sönnunin kemur; en hv. þm. sannar ekki með Vesturlandi, því að hann afneitaði því hjer.

Þá get jeg verið hv. þm. (JAJ) þakklátur fyrir það, er hann drap á um ýmsa atburði, sem gerst hafa í sambandi við kosningar í Norður-Ísafjarðarsýslu 1927. Jeg ætla það væri hv. 3. landsk. (JÞ), sem ljet orð falla í þá átt við umr. um kosningarnar í Norður-Ísafjarðarsýslu, að þær sögur, sem verið væri að segja, væri ekkert að marka, því að sá eini maður, sem þekti til vestra, fengi ekki sæti í deildinni; ef hann væri þar, mundu leiðrjettast þær sögur. Hv. þm. hefir nú fengið að sleppa inn í deildina, en ekki ber mikið á leiðrjettingum frá honum. Hann leiðrjettir ekki, heldur staðfestir. Það skal þakkað. En nú vill svo til, að það þarf ekki hans staðfestingu á þessu. Staðfestingin er hjer á öllum sögunum, sem jeg flutti, nema einni, — það er útdrátturinn úr gerðabók yfirkjörstjórnarinnar í Vatnsfirði.

Hv. þm. viðurkendi það rjett, að ekki hefði verið samin kjörskrá í þeim kjördeildum, sem jeg mintist á um daginn, og að kjörstjórnin í Hafnakjördeild hefði byrjað kjörfund með því að semja kjörskrá fyrir deildina. Aðeins bar hann það fram til málsbóta, að ekki hafi verið kosið eftir þeirri kjörskrá. Hvað átti þá að gera með hana, ef ekki var kosið eftir henni? Ekki hefi jeg vanist, að kjörskrár væru til augnagamans aðeins.

Út af því, sem hann sagði um hjeraðslækninn á Ísafirði, að hann hefði gefið vottorð án þess að koma heim til manna á kjördegi, vil jeg taka fram, í viðbót við það, sem jeg áður hefi sagt, að til þess liggja sjerstakar ástæður. Eins og jeg áður benti á, er það engin lagaskylda að fara heim til kjósenda á kjördegi; vottorð skal aðeins gefið af kunnugleika. Ástæðan til þess, að þessi læknir, sem er einn sá ágætasti embættismaður, er jeg þekki, og ekki vill vamm sitt vita, ekki fór heim til kjósenda um leið og þeir neyttu þar atkvæðisrjettar síns, er sú, að mikill fjöldi þessara kjósenda stendur í stórri þakklætisskuld við hann. Því miður verð jeg að játa, að talsvert hefir þótt bera á því, að betri borgarar þar vestra, sem hafa þótst eiga hönk upp í hrygg kjósenda, hafa ætlast til launa á kjördegi. Fyrir þessum hjeraðslækni hefir það vakað, að ef hann heimsækti fólk á kjördegi, þá yrði það kannske misskilið og tekið svo, að hann ætlaðist til, að þeir, sem eru í þakklætisskuld við hann, mintust þess, er þeir sæju hann, og kysu honum til geðs. Mjer er kunnugt um það, að ekkert væri fjær skapi þessa manns heldur en ef einhver kjósanda hefði látið það hafa áhrif á atkvæði sitt. Jeg veit, að allir, sem þekkja þennan mann, trúa þessu og skilja það vel. Hvort hv. þm. N.-Ísf. skilur þetta, læt jeg ósagt.

Þá sagði hv. þm., að jeg hefði notað alveg óviðurkvæmileg orð um hreppstjórann í Bolungarvík, nefnilega að hann hefði gefið falsaða skýrslu. Hann sagði, að hún hefði kannske ekki verið í rjettu formi, en ómögulegt væri að kalla það falsaða skýrslu. Jeg skýt því til hv. þdm., hvað þeim sýnist um það, þegar opinber embættismaður undirskrifar drengskaparvottorð um, að nafngreindur kjósandi hafi kosið í einrúmi, en svo sjálfur upplýsir í rjetti nokkru síðar, að hann hafi sjálfur aðstoðað kjósandann við að kjósa, þ. e. að kjósandi hafi eigi kosið sjálfur. Þetta er falsvottorð og ekkert annað. Hv. þm. segir frá því með mesta alvörusvip, að þessi sami hreppstjóri, sem staðfest hefir fyrir rjetti, að hann hafi gefið falsvottorð, hafi nú kært rannsóknardómarann fyrir, að hann heimtaði tryggingu fyrir nærveru hans. Væri hjer ekki um stórkostlegt alvörumál að ræða, mundi þetta aðeins aðhlátursefni.

Hv. þm. fórust orð á þá leið, að tortrygni kjósenda margra hverra væri orðin geysilega mikil gagnvart þeim, sem stjórnuðu kosningum. Hann tók sem dæmi, að sendur hefði verið mótorbátur inn í Djúp til að sækja konu, sem kaus utan kjörstaðar, og fá hana til að taka aftur atkvæði sitt og láta athuga hjá bæjarfógeta á Ísafirði, hvort það væri óbrjálað. Það er rjett, að fyrir mitt tilstilli var þetta gert. Það taldi jeg sjálfsagt að gera eins og málum var komið.

Hv. þm. (JAJ) sagði, að þegar þetta atkvæðaumslag var opnað, hafi komið í ljós, að á seðlinum stóð nafn Haralds Guðmundssonar, ritað með hennar eigin hendi. Það var ekki tekið sýnishorn af rithönd konunnar. Rannsókn Hnífsdalsmálsins var enn ekki svo langt komin, að okkar mönnum gæti dottið í hug sá leikur að tvífalsa atkvæðaseðla, eins og nú virðist ástæða til að ætla, að gert hafi verið. Menn voru svo einfaldir þá í skrifstofu bæjarfógeta, að úr því að rjett nafn stóð á seðlinum, grunaði þá ekki frekar. Konan tók síðan umslagið og ónýtti seðilinn.

Jeg lít svo á, að það hafi verið beinlínis skylda okkar, sem ekki vorum grunlausir um, að atkvæðinu hefði verið breytt, að ganga til fulls úr skugga um það, hvort svo væri eða ekki, bæði vegna okkar og andstæðinganna. Þess vegna ljet jeg sækja konuna. Jeg get vel skilið, að hv. þm. N.-Ísf. hafi ef til vill þótt það óþörf tortrygni hjá Hnífsdælingunum að vilja ekki láta hreppstjórann geyma atkvæðin. Hefði þessi „óþarfa tortryggni“ ekki vaknað hjá mönnunum, þá hefði það óneitanlega orðið notalegra fyrir hv. þm. og flokk hans. Þá hefði aldrei komið til rannsóknar á Hnífsdalsmálinu og hann hefði ekki þurft að vera vonbiðill hjer fyrir utan dyrnar í 14 daga.

Jeg veit ekki, hvort það er gustuk að auka meira á raunir þessa marghrjáða hv. þm. Jeg vil því segja honum það, að jeg er honum alveg samdóma um, að Alþingi hafi farið illa með hann. Alþingi fór illa með þennan hv. þm., þegar það tók kosningu hans gilda; jeg álít, að engum hefði átt að vera meira áhugamál en einmitt honum sjálfum að láta kjósa upp í Norður-Ísafjarðarsýslu, og engum hefði átt að vera meiri greiði gerður en honum með því að láta skörulega rannsókn fara fram út af kosningasvikunum. Það var því sannarlega illa gert við þennan hrjáða mann, þegar þingið með 1 atkv. meiri hluta samþykti kosningu hans. Það besta, sem hægt var fyrir hann að gera, úr því sem komið var, var að senda hann heim og lúta kjósendur dæma um mál hans. Ef hann hefði náð endurkosningu á sæmilegan hátt, hefði hann getað kinnroðalaust tekið sæti hjer í hv. deild, og þá sennilega unað sjer hjer betur en hann nú virðist gera.

Þá vildi jeg segja fáein orð út af tilboði, sem þessi háttv. þm. gerði hæstv. dómsmrh., án þess þó, að jeg vilji fara að blanda mjer inn í deilur þeirra eða bera hönd fyrir höfuð hæstv. ráðh., því að þess gerist heldur engin þörf; hæstv. ráðh. er fullkomlega fær um að svara fyrir sig.

Hv. þm. gerði hæstv. ráðherra einkennilegt tilboð. Mjer skildist það vera á þessa leið: Dómsmrh. skyldi láta rannsaka afstöðu þingmannsins til Hnífsdalsmálsins, og ef þm. sannaðist sekur annaðhvort um brot gegn hegningarlögunum eða kosningalögunum, þá skyldi hann borga allan málskostnað og auk þess leggja niður þingmensku, gegn því, að dómsmrh. legði niður embætti sitt og greiddi allan málskostnað, ef hann (JAJ) reyndist sýkn saka.

Jeg verð nú að segja, að mjer finst slíkt tilboð sem þetta í alla staði ótilhlýðilegt og ósamboðið virðingu Alþingis að flytja það hjer. Ennfremur sýnir tilboð þetta ljóslega, að háttv. þm. (JAJ) er enn ekki farinn að skilja, hvað hafi í raun og veru gerst í Norður-Ísafjarðarsýslu í sambandi við kosningu hans síðastl. sumar, að stórglæpir hafa verið framdir honum til framdráttar. Þetta tilboð, að bjóðast til að leggja niður þingmensku, ef það sannist, að hann hafi gert sig sekan um brot gegn hegningarlögunum, er sú endemisósvífni eða óvitaskapur, að mig undrar stórlega, að slíkt skuli geta komið frá meðalgreindum manni, því að það er beint tekið fram í kosningalögunum, að enginn hafi kosningarrjett eða kjörgengi nema hann hafi óflekkað mannorð. En enginn er talinn hafa óflekkað mannorð samkv. þeim lögum og öðrum, sem sekur er orðinn um nokkurt það verk, sem svívirðilegt er að almenningsáliti, nema því aðeins, að hann hafi fengið uppreisn æru sinnar. Það er því skýrt, að hver sá þingmaður, sem brotlegur gerist gegn hegningarlögunum, er rjett rækur úr þinginu, því að um leið og hann missir kjörgengi sitt, missir hann og þingsætið. Hv. þm. virðist leggja að jöfnu þátttöku í kosningaglæpum og ef fyrirskipuð er rannsókn á einstaka menn án þess full sönnun fáist fyrir sekt þeirra. Hann ætlast til, að hæstv. ráðh. leggi niður embætti, ef rannsókn sannar ekki sekt hv. þm., og býður á móti, ef sekt hans sjálfs sannast, að leggja niður þingmenskuna, sem hann þá hefir mist, ásamt með kosningarrjetti og kjörgengi og æru sinni.

Jeg fæ ekki sjeð nokkra aðra skýringu á þessu dæmalausa tilboði, sje því ætlað að vera nokkuð annað en vottur um ósvífni og fávisku hv. þm., en þá, að hann sje ennþá ekki farinn að skilja, að athæfi það, sem beitt var við kosningu hans, var glæpsamlegt, að það er stórglæpur að falsa atkvæði.