22.02.1928
Efri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (803)
26. mál, byggingar- og landnámssjóður
Frsm. (Einar Árnason):
Hugmyndin, sem liggur bak við þetta frv., er ekki komin fram í fyrsta sinn á þessu þingi. Það mun hafa verið núv. hæstv. dómsmrh., sem flutti þessa hugmynd fram í frumvarpsformi í fyrsta sinn hjer á þingi 1925. Það frv. varð ekki útrætt á því þingi. 1926 er það aftur flutt af sama manni, en í nokkuð breyttri mynd. Heldur ekki þá var málið útrætt. Þá var það á síðastliðnu þingi, að hv. 1. þm. N.-M. (HStef) flytur málið á ný, og þá verður sú meðferð málsins í hv. Nd., að það er afgr. með rökst. dagskrá, þess efnis að fela málið milliþinganefnd í landbúnaðarmálum til undirbúnings undir þetta þing, sem nú situr.
Það er þess vegna eftir beinum fyrirmælum síðasta þings, að þetta mál liggur nú hjer fyrir sem stjfrv.
Það er óhætt að segja það, að frá því þessu máli var fyrst hreyft hjer á þingi, hefir því altaf aukist meir og meir fylgi. Það er altaf að fjölga þeim mönnum, sem betur og betur hafa sjeð það, að hjer var nauðsynjamál á ferð og stefnt var að rjettu marki. Má því vænta, að þegar málið liggur nú fyrir sem stjfrv., þá geti sú hugsjón, sem felst í frv., orðið að veruleika.
Um skipulag og hlutverk þessarar lánsstofnunar, sem í frv. heitir byggingar- og landnámssjóður, er það að segja, að það er ætlast til, að tekið sje 5 milj. kr. lán og því varið á þann veg að veita lán til þess aðallega að endurbyggja sveitabýli og byggja nýbýli. skilyrðin fyrir að geta fengið þessi lán eru tekin fram aðallega í 3. gr. frv. Sje jeg ekki ástæðu til að fara nánar út í það; þykist vita, að hv. þdm. hafi kynt sjer þau atriði rækilega.
Um lánskjörin er það að segja, að þau eru þrennskonar. Dýrustu lánin eru veitt til þess að endurreisa íbúðarhús á jörðum í sveitum, og eru kjörin þau, að lánin á að greiða með 5% af allri upphæðinni í 42 ár.
Næsti flokkur lána er ætlaður til þess að reisa nýbýli á ræktuðu landi, eða þar, sem ræktað land fylgir að einhverju leyti, en ekki hefir verið bær fyrir. Þau eru nokkru ódýrari og eiga að greiðast með 3½% á 50 árum.
Þá er þriðji flokkur lána, sem ætlaður er til nýbýla, sem reist eru á algerlega óræktuðu landi og ekkert ræktað land fylgir. Þar eru lánin vaxta- og afborganalaus fyrstu 5 árin, en annars á að greiða þau með jöfnum afborgunum á 50 árum. En vaxtalaus skulu þau altaf vera.
6. gr. frv. mælir fyrir um upphæð hinna einstöku lána, sem menn geta fengið til bygginga, og er upphæðin aðallega miðuð við verð á aðfengnu byggingarefni, sjerstaklega útlendu, og þar að auki við nokkurn hluta af kaupi nauðsynlegra steinsmiða og trjesmiða við byggingarnar.
Í 9. grein frv. eru svo lagðar einskonar kvaðir á þær jarðir og býli, sem sjóðurinn lánar til. Þetta er gert til tryggingar því, að lántakendur geti ekki gert sjer þessi ódýru lán að fjeþúfu og braskað með þær jarðir eða þau býli, sem lánin hafa verið veitt til.
Jeg hefi hjer talað aðallega um tvennskonar lán, til byggingar á nýbýlum og til að húsa upp bæi á ný. En í frv. er talað um þrennskonar tegundir lána: að einnig sje heimilt að lána bæjarfjelögum og kauptúnum, sem eru sjerstakur hreppur, til að koma upp nauðsynlegum byggingum á ræktuðu landi bæjar- eða hreppsfjelagsins. Nánari fyrirmæli um lán til þessara bygginga eru svo sett í 3. grein frv. og jafnframt í 7. grein.
Þegar nú þess er gætt, að þessi lán, sem talað er um í frv., eru ákaflega ódýr, þá liggur í augum uppi, að það hlýtur að verða allmikill vaxtamunur á því fje, sem sjóðurinn fær að láni, og á þeim lánum, sem hann lánar aftur út. Þennan vaxtamun verður sjóðurinn sjálfur að greiða, og því er sett það ákvæði í 1. grein frv., að ríkissjóður leggi árlega fram nokkra fjárfúlgu í byggingar- og landnámssjóð. Því verður ekki neitað, að þetta hlýtur að verða allmikill baggi á ríkissjóði; en í það má ekki horfa, þar sem sjóðurinn mundi án þess alls ekki geta unnið það hlutverk, sem honum er ætlað, — það hlutverk sem sje, að gera það fjárhagslega kleift að byggja sæmilega boðleg býli í sveitum landsins. Því að það er nokkurn veginn sýnilegt, að það er ekki hægt fyrir efnalitla menn að byggja upp með þeim lánskjörum, sem nú eru fáanleg hjá lánsstofnunum, eins og nú er ástatt.
Jeg verð því að líta svo á, að ef þessu máli er ekki sint á líkan hátt og þetta frv. gerir ráð fyrir, þá getum við eins vel gefið upp vonina um bætt heimili og fjölgun heimila í sveitum. Landbúnaðarnefndin, sem hefir athugað málið, flytur á þskj. 243 nokkrar brtt. við frv. Jeg skal aðeins minnast á þær örfáum orðum.
Þar sem í 1. gr. er ákveðið, að ríkissjóður leggi árlega fram 250 þús. kr. til sjóðsins, þá leggur nefndin til að lækka það framlag niður í 200 þús. kr. Það er ekki af því, að nefndin viðurkenni ekki, að það sje nauðsynlegt fyrir sjóðinn að fá sem allra mest fje, að hún leggur til lækkun, heldur af því, að hún lítur svo á, að sem stendur eigi ríkissjóður erfitt með að leggja fram mjög stóra upphæð. Þó skal jeg geta þess, að nefndin vill alls ekki gera þessa brtt. að neinu kappsmáli. Ef hv. deild vill yfir höfuð sinna málinu svo vel að halda því, sem er í frv., þá mun nefndin ekki standa á móti.
Þá er það við 3. gr. I. a., að nefndin vill fella burt orðin „Standi ekki í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk“. Nefndin sjer ekki ástæðu til að binda þetta þannig, að þeir, sem kynnu að standa í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk, skuli útilokaðir frá lánum úr þessum sjóði til þess að byggja yfir sig. Það er því síður ástæða til að halda þessu ákvæði, þar sem í næsta lið á eftir er tekið fram að nokkru leyti, hvað menn þurfi að hafa til brunns að bera til þess yfir höfuð að fá að koma til greina með lán úr sjóðnum. Þar er sem sje tekið fram, að hver maður sanni með vottorði, að hann sje duglegur, reglusamur og sparsamur. Hafi maðurinn nú þessa kosti, er svo mikið fengið, að ekki virðist ástæða að útiloka hann, enda þótt hann hafi sveitarstyrk þegið, sem vitanlega getur verið af óviðráðanlegum orsökum.
Þá er 3. brtt. nefndarinnar, við 3. gr. II, 6, lið. Liðurinn er orðaður upp, en jeg geri ráð fyrir, að það sama hafi vakað fyrir þeim, sem sömdu frv., eins og kemur fram í brtt. okkar, aðeins að hjer sje skýrar ákveðið og orðað. Það stendur sem sje í frv., að sá maður geti ekki fengið lán, sem áður hefir fengið lán til húsagerðar eða nýbýla. Ef á að taka þetta bókstaflega, þá getur það verið mjög ósanngjarnt. Hitt er annað mál, að það gæti verið vel rjettlætanlegt, að sá maður, sem stendur í skuld fyrir lán, er hann hefir áður fengið undir þessum kringumstæðum, geti ekki fengið lán í viðbót. Jeg hefi líka borið þetta undir einn af þeim mönnum úr milliþinganefndinni, sem undirbjó þetta frv., og hann hefir fallist á, að þessi brtt. væri til bóta.
Þá er það 4. breytingartillaga nefndarinnar, við 7. grein. Það er um lán til bæjarfjelaga og sveitarfjelaga til að byggja hús yfir nautgripi. Er gert ráð fyrir í frv., að þau lán megi nema alt að 4/5 hlutum kostnaðar. Nefndin leggur til — eða rjettara sagt meiri hl. —, að þetta sje lækkað niður í 3/5, og virðist það vera meir í samræmi við ákvæði 6. gr. frv. um lán til bygginga á býlum í sveitum, því eftir því sem þar er ákveðið, geta þau ekki orðið 4/5 hlutar kostnaðar.
Í sambandi við þessa brtt. nefndarinnar leggur hún líka til, að 40 þús. í sömu grein verði færðar niður í 30 þús., en það er hámarkið af þeirri upphæð, sem megi lána til þessara bygginga.
Þá kemur 5. brtt. nefndarinnar, sem ætlast er til, að verði ný grein. Það vakti fyrir nefndinni með brtt., að þegar svo er komið, að lánað er fje til bygginga til 50 ára með mjög aðgengilegum kjörum, þá verði þó að tryggja það að minsta kosti, að þær byggingar verði svo vel af hendi leystar, að þær standi eins langan tíma og lánið stendur.
Það er erfitt að hafa það eftirlit með byggingunum, sem þörf er á, og það eftirlit hlýtur að kosta talsvert fje. Raunar væri það eðlilegast, að kostnaðinn við þetta eftirlit greiddu báðir aðiljar, bæði sá, sem lánið veitir, og hinn, sem þiggur það. En það er kannske erfitt á báða bóga að koma því fyrir.
Eins og 5. brtt. ber með sjer, hefir nefndin orðið sammála um, að stjórn sjóðsins hafi byggingarfróða menn til eftirlits á þeim stöðum, sem sjóðurinn lánar fje til bygginga. samhliða er gert ráð fyrir, að lánþegi greiði 1% af lánsupphæðinni upp í eftirlitskostnaðinn, þegar síðasta afborgun fer fram. Það má að vísu um það deila, hvort þetta hundraðsgjald sje nógu hátt. En nefndin lítur svo á, að það megi ekki gera þennan kostnað mjög tilfinnanlegan fyrir lánþega, enda sjálfsagt að haga eftirlitinu á þann hátt, að það verði eins ódýrt og kostur er á.
Fleiri brtt. flytur nefndin ekki, þótt hún hinsvegar játi, að um ýms önnur atriði frv. kunni að mega deila. Sje jeg því enga ástæðu til að hafa þessi orð fleiri að svo stöddu. Jeg hafi reynt eftir föngum að skýra frá, hvað vakir fyrir nefndinni, en hún leggur til, að hv. deild fallist á frv. með þeim breytingum, sem nú voru nefndar.