22.02.1928
Efri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (805)
26. mál, byggingar- og landnámssjóður
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Mjer þykir vænt um þá verulegu stefnubreytingu, sem orðið hefir hjá hv. 3. landsk. um efni þessa frv. frá því fyrst að það kom fram og þar til nú. Mjer finst mjög ánægjuleg sú stefnubreyting og tel honum það fremur til sóma en hitt.
Jeg vil ekki þreyta hv. deild með því að endurtaka eða rifja upp þau byrjunarátök, sem urðu um þetta mál. Það kom svo undarlega flatt upp á samherja hv. 3. landsk., að nú ætti að fara að styrkja bændur til þess að rækta upp sveitirnar, byggja upp bæina og gera heimilin á allan hátt vistlegri, að þeir rugluðust algerlega í ríminu og ljetu sjer sæma að draga út úr þessu þær fáránlegustu ályktanir, sem hægt er að hugsa sjer. Þá var meðal annars í blöðum þessara samherja útbásúnað, að með frv. og þeim styrk, sem eftir því átti að veita til viðreisnar sveitunum, væri verið að gera tilraun til að koma fólkinu í sveitunum, og þá sjerstaklega bændum, á hreppinn. Og ýmislegt fleira af líkum toga spunnið ljetu þeir sjer um munn fara, helstu íhaldssamherjarnir þá, til þess að koma á knje þessu þjóðþrifamáli, er þá skorti svo mjög skilning á. Þess vegna bjóst jeg alls ekki við, að slík stefnubreyting mundi verða svo fljótt sem raun ber vitni um.
Hv. 2. þm. Árn. (MT) , sem annars leist vel á þetta, spáði því þá, að eftir 10 ár mundi þetta verða mesta hitamál þingsins. Nú eru aðeins 4 ár liðin síðan; öll þessi ár hefir þingið haft málið til meðferðar og því altaf að aukast fylgi, enda býst jeg nú við, að það verði afgreitt í lagaformi frá þinginu í þetta sinn.
En að þetta verði síðasta orðið, sem um málið verður sagt, býst jeg alls ekki við. Jeg geri ráð fyrir, að reynslan komi hjer sem annarsstaðar til skjalanna, og hún mun kenna þjóðinni, hvað henni hentar best í þessu efni. Það, sem mest er um vert, tel jeg það, að málið er nú komið á þann rekspöl, sem vel má við una í bili. Að vísu skal játað, að lánum þeim, sem hjer er um að ræða, er öðruvísi fyrir komið í Noregi, en vegna fátæktar lands okkar og af fleiri skiljanlegum ástæðum hefir verið að því ráði horfið að hafa lánshlutföllin þessi til að byrja með.
Hv. 3. landsk. gladdist yfir því, að skattalöggjöf landsins væri ekki blandað inn í þetta mál. Jeg vil engu spá um það, hvað langvinn sú gleði verður, en þessar 250 þús. kr. verða þó að fást. Það er búið að taka svo mörg lán og há fyrir ríkisins hönd, að sú leið virðist tæplega fær. Til þess að sjóðurinn fái þessa upphæð sje jeg ekki betur en að hækka verði skattana á einhvern hátt.
Annars verð jeg að segja það, að það er ófyrirgefanleg ljettúð af þinginu, þegar það samþ. að skella öllum berklavarnakostnaðinum á ríkið, án þess að gera ráð fyrir, hvar taka eigi peningana til þess að greiða þann mikla kostnað. Jeg geri líka ráð fyrir, að nú verði að skipa milliþinganefnd í skattamálum. Því að þegar svo er komið, að lagðar eru 100 kr. á hvern mann í landinu, á barnið í vöggunni og örvasa gamalmenni, þá er óhjákvæmilegt að endurskoða skattalöggjöfina og leita uppi hin breiðu bök, sem borið geta gjöldin. Ef haldið verður áfram að leggja á öreigana, verður ekki hægt að komast hjá því að kveðja dyra hjá þeim, sem hafa talsvert fje. aflögu. Þeir verða líka beðnir að vera með og taka á sig byrðar ríkisins að sínum hluta. Jeg segi þetta ekki til þess að hryggja hv. 3. landsk., heldur bendi jeg á þetta til þess að sýna, að framhjá þessu er ekki hægt að komast.
Þungamiðja þessa máls er þörfin á að fjölga heimilum í landinu. Um þá þörf eru allir sammála, en um hitt skiftast skoðanirnar, hvort fjölga eigi heimilunum aðeins við sjóinn, eða líka í sveitunum.
Með þeirri mannfjölgun, sem búast má við að verði, er nú upplýst, að bæta verður við á ári heimilum fyrir 1 miljón króna, og öllum hugsandi mönnum um heill þjóðfjelagsins blandast ekki hugur um, að mestur hluti slíkra heimila mundi best kominn í sveit, eða þar, sem ræktunarskilyrði eru fyrir hendi. En fyrir tilstilli hv. 3. landsk. og hans flokksbræðra hefir heimilafjölgun síðari ára aðallega orðið í Reykjavík og 2–3 öðrum kaupstöðum. Þessum kaupstöðum var gefin 10 milj. kr. lánsheimild núna síðustu árin, sem uppjetin verður með öllu á þessu ári. (JÞ: 10 miljónir?). Það eru veðdeildarflokkarnir. Kannast hv. þm. ekki við það?
Alt þetta fje hefir farið að mestu leyti í ný hús í kaupstöðum, og sementskassarnir, sem þotið hafa upp í verstöðvunum, eru sú áþreifanlega sönnun þess, hvað gert hefir verið við þessar lánsmiljónir. Frá menningarlegu sjónarmiði er þungamiðja frv. þó mest virði. Það er mjög ófýsilegi að hugsa sjer þá framtíð þjóðarinnar, sem byggist á því, er nú tíðkast í verstöðvunum hjá því fólki, er sjóinn stundar, þar sem húsbóndinn kemur ekki heim nema endrum og eins, þrælkaður við svefnleysi, sem hvergi þekkist nema hjer við land, en konan alein heima með börnin, sem alast upp í loftlausum, köldum og rakafullum kjallaraíbúðum, þar sem heilsa og líf þeirra er í veði.
Hv. 3. landsk. virðist sjerlega óánægður með 9. gr., af því að þar er verið að koma í veg fyrir, að jarðirnar, sem sjóðurinn á að hjálpa til að rækta, og sveitabæirnir, sem hann hjálpar til að byggja, geti hækkað í verði eins og húsin og lóðirnar hjer í Reykjavík. Þetta er ekki nýtt þrætuefni milli mín og þessa hv. þm. Skoðanamunurinn er í því fólginn, að hann vill leyfa „spekulationum“ og fjárglæfrum að laumast inn í skjóli sjóðsins, en jeg vil leggja alt kapp á að koma í veg fyrir það.
Þetta frv. er til þess ætlað að verða þjóðinni til varanlegra heilla. Hv. 3. landsk. heldur því vafalaust fram í góðri meiningu og samkv. sinni lífsskoðun, að það sje best að láta menn hafa óbundnar hendur um að græða á hjálp sjóðsins. En ef það yrði leyft, mundi verða nákvæmlega það sama uppi á teningnum og með sölu kirkjujarðanna. Þau hagstæðu kjör, sem ríkið veitti um hana, urðu aðeins til þess að auðga fyrstu eigendurna, en nú eru jarðirnar að verða mylnusteinn um háls hinum næstu, vegna þess að þær eru orðnar óhóflega dýrar. Jeg þekki dæmi um eina kirkjujörð, sem upphaflega var seld fyrir 4 þús. kr., en eftir nokkur ár keypti hana nýr maður, að jeg hygg fyrir 44 þús. kr. Við getum nú gert okkur grein fyrir aðstöðu þessa manns. Ef hann á að greiða vexti og afborganir af þessu óhóflega verði, er honum sá kostur nauðugur að vinna mestan hluta æfi sinnar eins og þræll — til þess að borga „spekulationsgróða“ hins fyrri eiganda. Þess vegna hafa líka ungir bændur sagt við mig, að einmitt 9. gr. væri það, sem langmesta þýðingu hefði í frv., að hún væri meira virði en 250 þúsundirnar.
Fjárglæfrarnir eru langhættulegasti sýkillinn í íslenskum landbúnaði. Og fyrir þeim verður að stemma stigu. En eins og jeg tók fram, heldur hv. þm. þessu sjálfsagt fram í bestu meiningu. Hann er sjálfur kaupmaður og telur kaupmenskuna rjettmæta. Því er honum illa við, að hún sje takmörkuð. En jeg skal leyfa mjer að nefna dæmi þess, hve háskalegt hið háa jarðaverð er fyrir landbúnaðinn. Jeg átti fyrir nokkru tal við einhvern mesta búhöld í Árnessýslu. Hann sagði mjer, að jörðin sín væri metin á 9 þús. kr. og á henni væru byggingar fyrir ca. 16 þús. kr. En hann fullyrti, að ef selja ætti jörðina og húsin eftir fasteignamati, mundi hvert barna sinna, sem við tæki, þegar í stað verða gjaldþrota. Þetta fór svo, að hann afhenti syni sínum hluta úr jörðinni á lággengisárunum, og þó ekki með neinum ókjörum. Svo kom gengishækkunin og hennar erfiðleikar. Og svo fór, að jörðin reyndist unga bóndanum ofviða, og hann varð að flytjast hingað til Reykjavíkur.
Það sannast, að stærsta velferðarmál íslensks landbúnaðar er það, að jarðirnar og húsin, sem þeim fylgja, sjeu nógu ódýr. Og sú merkilegasta tilraun, sem gerð hefir verið til þess að það geti orðið, er 9. gr. í frv. Hv. 3. landsk. þarf ekki að brosa. Hann hefir sjeð hugmyndina um landnámssjóð vaxa fyrir framan sig, þó að hann hafi beitt öllu sínu bolmagni gegn henni. Mánuð eftir mánuð og ár eftir ár hefir hann rægt hana við bændur landsins, með aðstoð þjóna sinna, sem skrifa í íhaldsblöðin. Með öllu sínu fylgi, fje og blaðakosti hefði hann vel mátt verða þessu ágæta máli að liði. En hann hefir valið sjer þá aðstöðu að vera til spillis og eyðileggingar í málinu. Og nú ber hann afleiðingarnar af því að leggja lið sitt verstu meinsemdinni í þjóðlífinu. Ef hann fengi nú að ráða, yrði afleiðingin sú, að nú yrði leikinn á ný hinn sami leikur og fyrrum með kirkjujarðirnar. Og það verð jeg að segja, að þegar athuguð er öll framkoma hans til þessa máls og þetta síðasta og versta tilræði, þá öfunda jeg hann ekki af því að standa fyrir máli sínu eftir næstu 4 ár.