22.02.1928
Efri deild: 29. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1776 í B-deild Alþingistíðinda. (810)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg vil leiðrjetta eitt atriði hjá hv. 3. landsk. Hann heldur, að hjer sje verið að skapa eitthvert eigandalaust verðmæti, sem ekki geti átt sjer stað í þjóðfjelaginu. Hann aðgætir ekki, að landssjóður á að leggja fram þessa ákveðnu upphæð á hverju ári, til þess að gera fólkinu, sem á jörðunum býr, kleifara að komast fram úr lífsbaráttunni. Auðvitað á landið þetta fje, en eins og það borgar nú peninga til að breiða yfir axarsköft fjárbrallslýðsins, eins geymir það þetta fje til afnota fyrir þá, er jarðnæðanna njóta, til þess að ljetta þeim lífsbaráttuna. Þegar ábúandi getur ekki staðið í skilum og fer af jörðinni, getur sjóðurinn leyst úr læðingi fje sitt, með því að selja jarðirnar. En jeg býst ekki við, að sú verði jafnaðarlega aðferðin í framkvæmdinni.

Ef jeg skil rjett þá möguleika, sem frv. hefir fólgna í sjer, þá er það beinlínis borið fram í þeim tilgangi að vinna á móti hinu lokkandi aðdráttárafli, sem hv. 3. landsk. hjelt, að hin ágæta stjórn hefði gefið þessum bæ. Þessi gamli bæjarfulltrúi og forstöðumaður framkvæmda bæjarins færði annars ekki fram nein rök gegn máli mínu. Hann gerði ekkert til að sýna fram á, að húsaleigan og lóðaleigan væru ekki alt of háar. Jeg held, að hann hefði komist rjettilegar að orði, ef hann hefði sagt, að þrátt fyrir óstjórnina streymdi fólk jafnt og þjett til bæjarins.

Fje bankanna hefir undir áhrifum „Spákaupmannanna“, sem háttv. 3. landsk. nefnir svo, verið notað hjer í Reykjavík af braskarahópnum. Þeir hafa leikið svo laglega á bankana, að nú nýlega hafa tveir af eigendum Morgunblaðsins fengið uppgjöf á ½ miljón króna, sem skapþungir skilamenn verða að borga fyrir þá á löngum tíma í háum vöxtum.

Jeg ætla alls ekki að fjölyrða um það, hversu vel stjórnin á bæjarmálefnunum hefir tekist. Verkin tala. Dýrtíðin í bænum er ægileg og vegna hennar hafa á undanförnum árum ótaldar miljónir króna farið í tekjuhalla atvinnuveganna. Það er búið að koma yfir á landið miklu af þessu tapi. Þegar það er að fullu greitt, geta hv. 3. landsk. og hans nótar risið upp og sagt, að spákaupmenskan í Reykjavík hafi gefist ágætlega. En fyr held jeg, að þeir ættu ekki að kasta steini að öðrum.