27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (823)
26. mál, byggingar- og landnámssjóður
Einar Jónsson:
* Það hefir margt verið sagt hjer í umr., sem jeg er fyllilega samþykkur, enda skal jeg reyna að vera stuttorður. Þetta frv., sem hjer liggur fyrir, er ekki nýtt, þótt það komi nú ekki alveg í sömu mynd og áður, og finst mjer það betra eins og það nú liggur fyrir. Á jeg þar sjerstaklega við það, sem sagt er í 2. gr. Áður var meira hugsað um nýbýlin á óræktuðu landi, en minna um að halda
við býlunum, og tel jeg því ákvæði 2. gr. til mikilla bóta.
Jeg get sjerstaklega tekið undir það, sem hv. samþm. minn sagði, að jafnframt þessu máli yrði að sjá fyrir bættum samgöngum. En þegar við austanmenn eigum í hlut, vildi jeg leyfa mjer að spyrja hæstv. stjórn: Hvað líður hinni langmikilvægustu samgöngubót — járnbrautarmálinu? Vona jeg að fá fræðslu um það áður en þingi lýkur, hvar því máli er komið, og eins vænti jeg þess, að stjórnin veiti því stuðning sinn. Í sambandi við nýbýlamálið er járnbrautarmálið afarmikilsvert fyrir okkur.
Hvað þetta mál snertir, sem nú er á dagskrá, þá minnir mig, að það í fyrra væri falið milliþinganefnd í landbúnaðarmálum, og ætti því að vera sú nefnd, en ekki sjerstök þingnefnd, sem hefir þetta mál með höndum.
Í Ed. var málið afgreitt með svofeldri rökstuddri dagskrá:
„Þar sem deildin hefir ákveðið að skipa milliþinganefnd í landbúnaðarmálum, þá telur deildin rjettast, að sú nefnd taki einnig þetta mál til meðferðar og geri tillögur um það. Þess vegna sjer deildin ekki ástæðu til, að málið gangi lengra að þessu sinni, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá“. (HStef : Þetta var annað mál). Jeg tek ekki að mjer, að þetta sje ekki sama málið. Jeg vil samt taka því án þrætu, að málið fari til landbn., en þó kann jeg að leggja heldur til, að landbn. afgreiði ekki málið, heldur milliþinganefndin. Í þá nefnd höfum við valið menn í fullu trausti þess, að þeir geri það, sem best er og rjettast, og hafa þeir að sumu leyti betri aðstöðu til þess að leysa þetta mál en þm., sem bundnir eru öðrum störfum, sem sagt, jeg legg til, að málið fari til landbn., en helst ekki lengra.
*Ræðuhandr. óyfirlesið