27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1792 í B-deild Alþingistíðinda. (824)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallason):

Mjer skildist, að hv. þm. væri að bera fram fyrirspurn um það, hvað liði Titansjerleyfi. Jeg get sagt hv. þm. það, að fram hefir komið umsókn frá fjelaginu, sem send var vegamálastjóra til umsagnar, en síðan var hún send rafmagnsstjóranum í Reykjavík, og þar er hún enn.