27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1793 í B-deild Alþingistíðinda. (826)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Jón Sigurðsson:

Jeg skal ekki níðast á góðvilja hæstv. forseta og reyna að vera stuttorður.

Jeg vil benda á nokkur atriði, sem mjer finst, að ýmsum hv. þdm. sjeu ekki vel ljós, og er þá fyrst og fremst það, hver ástæða sje til þess, að fólkið leitar svo mjög úr sveitunum og til sjávarins. Margir segja, að það sjeu hin slæmu húsakynni í sveitum, en það er ekki rjett, því að það er ekki í betri hús að venda að fara úr húsakynnum eins og víðast er í sveitum og í kjallaraholur kaupstaðanna, þar sem margir verða að halda til. Nei, það er vegna þess, að fólkið vill eiga með sig sjálft, þegar það giftist; það óskar þá að stofna sitt eigið heimili, og þess vegna þarf að gera því kleift að koma sjer upp heimili. Að minsta kosti í öllum betri sveitum landsins er þetta ástæðan, og mjer er kunnugt um það, að ef eitthvert býli losnar, þá eru tugir manna um hvert býli. Það, sýnir best löngun fólksins til þess að geta átt með sig sjálft, og margir menn hafa sagt við mig: Ef jeg hefði getað fengið eitthvert býli, þá hefði mjer ekki dottið í hug að fara í kaupstað. Hitt er annað, að þar sem ýmsar jarðir leggjast í eyði, eins og t. d. á Rangárvöllum, þá stafar það af því, að menn eru hræddir við að missa eignir sínar af völdum náttúrunnar, svo sem vegna sandfoks eða af öðru, og er þá ekki von, að menn vilji leggja í mikinn kostnað við að byggja upp. Annað atriði vildi jeg líka benda hv. 2. þm. Rang. á, og þótti mjer hv. þm. þar heldur svartsýnn, þar sem hann var að tala um, að ekki þýddi að byggja nýbýli nema þar, sem góð væru markaðsskilyrði og góðar samgöngur. Vil jeg þar benda hv. þm. á eina sveit, Öræfin. Þar eru upp í fjögur eða fimm býli á sömu jörðinni, og er þar þó hvorki til að dreifa góðum samgöngum eða góðum markaðsskilyrðum. Og jeg get heldur ekki gert neinn mun á nýbýli, sem bygt er á ræktuðu landi, og fjölbýli á jörðum, því að mjer finst það alveg sama. Jeg þykist ekki þurfa að telja upp fleiri dæmi. Þau eru víða, bæði í Skaftafellssýslu og annarsstaðar, þó að þetta sje ef til vill ljósast, og jeg veit, að í mínu hjeraði er ekkert því til fyrirstöðu, að ýmsum jörðum sje margskift og að menn gætu þrifist þar vel þrátt fyrir það, aðeins ef ræktun landsins væri látin fylgja með fjölgun býlanna. Að sjálfsögðu eru góð markaðsskilyrði og samgöngur mikils virði, en jafnvel án þessa geta nýbýli þrifist hjer á landi, ef hyggilega er að farið, eins og þegar hefir verið bent á.