27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1795 í B-deild Alþingistíðinda. (827)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Jörundur. Brynjólfsson:

* Það verða aðeins örfá orð, sem jeg ætla að segja, enda þótt jeg viðurkenni, að það væri ástæða til að fara mörgum orðum um þetta mál, en jeg ætla aðeins að drepa á lítið eitt.

Jeg ætlaði að leiða hjá mjer þessar umræður, ef mjer hefði ekki fundist kenna nokkuð mikils misskilnings hjá einum eða tveimur hv. þm. um þann frágang, sem milliþinganefndin hafði á þessum tillögum, og þá jafnframt á því, hvernig stjórnin hefir lagt þetta mál fyrir þingið. Mjer hefir virst svo, sem sumir hv. þm. hefðu helst óskað, að þetta mál hefði ekki komið fyrir þingið eins og nú er, og heldur verið vel frá því gengið og því endanlega skipað. En síðasta þing gekk svo frá þessu máli, að það skipaði fyrir um, að það kæmi að einhverju leyti undirbúið fyrir þetta þing. Jeg hefði vænst þess, að hv. þm. hefðu lesið þá greinargerð, sem fylgir þessu frv., og það er þess vegna ennþá minni ástæða fyrir mig til að fara að taka til máls, þar sem vikið er greinilega að því í nefndri greinargerð, hvað nefndinni gekk til með að gera þessar tillögur. Jeg veit ekki, hvort þessir hv. þm. leggja meira upp úr því, sem jeg nú kann að segja, heldur en því, sem stendur prentað sem greinargerð fyrir þessu frv. Jeg verð þó að skoða það þannig frá þeirra hendi, að þeir hafi annaðhvort ekki lesið greinargerðina, eða þá að þeir sjeu búnir að gleyma því, hvernig hún hljóðar. Það er sem sje fleirum sinnum tekið fram af nefndinni, að þessar tillögur sjeu aðeins til bráðabirgða, og hvers vegna milliþinganefndin skilar málinu svona. Skal jeg, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mjer að lesa nokkur atriði upp úr greinargerð nefndarinnar, þessu til sönnunar:

„Því miður getur milliþinganefndin ekki, að svo vöxnu máli, gert endanlegar tillögur um það“.

Ennfremur segir hjer, og lýtur það að því atriði, hvers vegna nefndin vill bíða með að gera ákveðnar tillögur um endurbyggingu bæja og byggingu nýbýla:

„Nú er því miður þannig ástatt fyrir oss, að vjer höfum ekki fjármagn til þess að annast byggingu nýrra býla í stórum stíl í mörgum hjeruðum í senn, auk endurbóta og viðhalds allra þeirra býla, er fyrir eru“.

Svo er sagt hjer nokkru síðar í þessari greinargerð:

„Það er ekki einu sinni hægt, án mikils undirbúnings, að fá vitneskju um stærð óræktaðra landa í öllum kauptúnum landsins, og þá auðvitað enn síður um stærð landa til sveita, og er það þó nauðsynlegt fyrir nefndina að fá að minsta kosti nokkra vitneskju um það, áður en hún gengur til fulls frá tillögum sínum um þetta mál“.

„En að nefndin samt sem áður skilar nú tillögum frá sjer um málið, stafar sumpart af því, að síðasta þing sýnist beint að hafa ætlast til þess, en þar við bætist ennfremur það, að nefndin telur athafnir í þessu máli svo brýnar, að ekki megi slá þeim á frest, ef nokkur tök eru á framkvæmdum. En það vill nefndin þegar taka skýrt fram, að þessar tillögur hennar eru aðeins til bráðabirgða, og býst nefndin við að málið komi frá henni síðar í nokkuð breyttri mynd“.

Jeg vona nú, að þegar þeir hv. þm., sem talað hafa, hafa athugað þessi ummæli nefndarinnar um það, hvers vegna hún kemur með málið, ásamt mjög mörgu öðru, sem stendur hjer í þessari greinargerð, þá þurfi þeir ekki að efast um, að það er ekki tilgangur nefndarinnar, að þetta sje hin endanlega skipun.

En þessum tillögum fylgir ennþá frekari greinargerð, sem ekki er prentuð hjer, og þarf sjálfsagt ekki til þess að ætlast, að þeir hv. þm., sem ekki hafa sjeð það, geti bygt skoðanir sínar á því, en þar er að því vikið, hvernig nefndin hugsar sjer endanlega að láta stofna sjerstakan sjóð, er veiti styrk til nýbýla, og svo annan sjóð, er varið sje til að veita styrk til bygginga, þar sem ræktað land er fyrir. Og auk þess er svo ræktunarsjóðurinn. Jeg held, að það sje ekki hægt að ætlast til þess, að fyrir þetta þing hafi verið unt að gera endanlegar tillögur um slíkt mál sem það, hvernig haga skuli byggingu nýbýla hjer, þar sem aðalgrundvöllinn vantar. Þau fáu frv., sem flutt hafa verið um það efni, hafa aðeins verið bendingar í þá átt, hvernig heppilegt væri að fara að, en enganveginn bygð á þeim undirbúningi, sem nauðsynlegur má heita til endanlegra tillagna. Aðrar þjóðir, sem miklu lengra eru komnar en við, hafa fetað sig áfram, oft með vissa landshluta fyrst, og gert mismunandi ákvarðanir, eftir því sem til hefir hagað. En við höfum ekkert gert enn í þessu, og það er alls ekki vert í svo þýðingarmiklu máli, að við flýtum okkur að gera tillögur um það án þess að hafa undirbúning, eins góðan og við frekast höfum tök á. Þess vegna er það, að nefndin hefir í þessum bráðabirgðatillögum sínum gert uppástungu um tvennskonar starfsemi, endurbyggingu sveitabæja, og þar myndi opin leið til að byggja nýbýli, þar sem góð skilyrði eru. En þessi tillaga hennar stafaði einmitt af því, að nefndin taldi endurbyggingu svo brýna, að ekki mætti slá því á frest, en vitaskuld er henni það eins ljóst og þeim hv. þm., sem talað hafa, að þótt þessi lántaka, sem heimiluð er samkvæmt þessu frv., yrði að fullu notuð, þá nær hún skamt til allra endurbygginga. En að hún geti þó orðið að nokkru liði, það efast jeg ekki um, og í rauninni er jeg sannfærður um, að það sje ennþá meira aðkallandi að endurbyggja bæi heldur en að stofna nýbýli. Jeg veit, að húsakynnin eru þess ekki síst valdandi, að fólkið leitar í burtu úr sveitunum, en að nefndin hafi um of litið á þessa hlið málsins, get jeg ekki viðurkent, og vil þá, máli mínu til sönnunar, benda á önnur þau atriði, sem prentuð eru í greinargerðinni, sem sýna, að það er sitthvað fleira, sem styður að því, að fólkið leitar í burtu. En það er heldur ekki hægt að ætlast til þess, að fólkið lifi þar við neitt önnur skilyrði heldur en þau, sem tíðkast hjá öllum þorra bæjarmanna. Ummæli hv. 2. þm. Skagf. eiga kannske nokkuð við það, en annars verður maður að segja, að íbúðir manna í kaupstöðum sjeu þó að öllu samanlögðu miklu vistlegri heldur en í sveitum.

Annars finst mjer, að menn geti vel látið sjer lynda, að heimilt sje að sinna nýbýlamálinu þar, sem góð skilyrði eru fyrir hendi. Það vakir líka fyrir hæstv. stjórn, og nefndinni sömuleiðis, að hjer sje ekki um annað en bráðabirgðatillögur að ræða, og skal jeg þar enn á ný leyfa mjer að skírskota til þeirrar greinargerðar, sem fylgir þessu frv., því að þar felst stjórnin beinlínis á tilætlun nefndarinnar um þetta mál. Jeg get líka fullkomlega tekið undir þau ummæli, sem fram hafa komið hjá tveim hv. þm. um það, að bættar samgöngur þurfi, ef slíkar framkvæmdir eiga að koma að tilætluðum notum, og það er alveg rjett athugað hjá þeim, að því aðeins getur maður búist við, að aukin bygð úti um sveitir landsins geti þrifist, að mönnum sje gert hægt að halda áfram starfsemi sinni þar. En í þeim hjeruðum, sem eiga við erfiðastar samgöngur að búa, er það svo, að það er mjög erfitt að halda uppi nokkurri starfsemi, vegna þess að samgöngur eru svo óhægar og dýrar, og það má líka benda á það, að ef verulegt líf á að verða úti um sveitir landsins, þá verður það aðeins með bættum samgöngum. Það má því segja, að grundvöllurinn undir búnaði í sveitum landsins sje góðar samgöngur.

Hv. 2. þm. Skagf. drap á eina sveit, þar sem fólkið virtist una vel hag sínum, þótt við erfiðar samgöngur væri að búa, sem sje Öræfi í Skaftafellssýslu. Það er rjett, að þeir eiga við erfiðar samgöngur að búa, en þó get jeg upplýst það, að þeir fá mikið af sinni þungavöru þar upp að ströndinni og sækja hana svo þangað; og þegar svo þetta er borið saman við það, sem á sjer stað í öðrum sveitum, þá býst jeg við, að þeir þyki ekki eiga við erfiðari samgöngur að búa en aðrir. T. d. kostar það menn víða hjer af Suðurlandsundirlendinu minst 7–8 daga, ef þeir vilja nota hesta, en ef þeir vilja nota bifreiðar, þá mun það kosta þá 70–80 kr. undir smálestina. Þeir, sem bera skyn á það, hve mikið menn þurfa að flytja til heimila sinna, geta skapað sjer hugmynd um það, hve mikið slíkt kostar við rekstur eins bús, þótt ekki sje talið nema að flytja það nauðsynlegasta til framfæris fólkinu, en ef þar við bættist svo, að menn þyrftu að flytja að sjer allskonar byggingarefni, útlendan áburð og ýmsar vinnuvjelar, sem búast má við að verði, þegar jarðræktin kemst á hærra stig, þá er auðsætt, að það verður ekki svo lítill kostnaðarauki. Þau hjeruð, sem við sjó eru, eiga þó miklu hægari aðstöðu, ef skip koma þar á hafnir. En viðvíkjandi Öræfunum ætla jeg að segja það, að vegna sinnar föstu og góðu menningar unir fólkið þar sjer vel, og svo er á annað að líta, að Öræfin standa miklu framar en nokkur önnur sveit á landinu. Þar er búið að raflýsa flesta bæi, og ekki aðeins, að rafmagnið sje notað til ljósa, heldur líka til suðu og hitunar og annars, er með þarf. Og hversu margar sveitir skyldu verá til á landinu, sem svo er ástatt um? Jeg verð að minsta kosti að játa það, að jeg þekki ekki eina einustu sveit, sem svo er ástatt um, og þetta er m. a. þess valdandi, að unga fólkinu dettur ekki í hug að leita burtu. Auk þess er þar sá menningarbragur, að fólkinu þykir það metnaðarsök að setjast að í sinni sveit, og jeg vona, að því meira sem gert er fyrir fólkið til þess að bæta lífsskilyrði þess í sveitunum, þá komist það smátt og smátt á það menningarstig hvað vilja og þrautseigju snertir, að það uni sjer best við landbúnaðinn, og unga fólkinu ætti að vera það metnaðarsök að leita ekki úr sveitunum til sjávarins, til þess að snapa eftir vinnu á mölinni í kaupstöðunum og til að taka þátt í öllu því tildri og hjegóma, sem þar er.

* Ræðuhandr. óyfirlesið.