27.02.1928
Neðri deild: 33. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1801 í B-deild Alþingistíðinda. (828)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Gunnar Sigurðsson:

Mjer þykir leitt, að hv. 1. þm. N.-M. er ekki við, af því að jeg ætlaði að svara honum nokkrum orðum. En jeg skil nú reyndar ekki, að það þurfi að rökstyðja það frekar, að góðar samgöngur eru nauðsynlegt skilyrði fyrir nýbýlastofnun. Það hefir verið tekið alveg rjettilega fram af fleirum en mjer, að það er gersamlega grundvallarskilyrði, hvort samgöngur eru góðar, og sú þjóð, sem lengst er komin í þessu efni, en það eru Ameríkumenn, þeir byrja altaf á samgöngubótum; og svoleiðis á það líka að vera, ef rjett er að farið, eða að minsta kosti verður það að vera samhliða, og jeg er viss um það, að af þeim smáumbótum, sem verið er að gera hjer, er þörfin brýnust hvað þetta snertir. Það er blátt áfram grundvallarskilyrði. Jeg skal t. d. benda á túnræktina. Sumir bændur eru farnir að eyðileggja túnin með því að færa þau of mikið út, og gá ekki að því, að þá vantar áburð. — „Tilbúinn áburð“, segir hv. sessunautur minn (BÁ). Já, hann á auðvitað að bæta úr því, en þá vantar grundvallarskilyrðið, samgöngurnar.

Hv. 2. þm. Skagf. dró það dálítið í efa, að góðar samgöngur væru meginskilyrði fyrir nýbýlarækt yfirleitt, og benti í því sambandi á Öræfin, en því hefir þegar verið svarað. En þar sem sá hv. þm. sagði, að jeg væri svartsýnn, þá vil jeg mótmæla því. Jeg er alls ekki svartsýnn, — eða hvernig halda hv. þm., að myndi líta út fyrir Dönum, ef samgöngutækin, járnbrautirnar væru teknar af þeim? Því er auðsvarað; allur búskapur þeirra mundi fara á höfuðið á örstuttum tíma.