16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1812 í B-deild Alþingistíðinda. (836)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Hannes Jónsson:

Jeg vil lýsa ánægju minni yfir því, hvað máli þessu miðar vel í gegnum þingið, og þó að jeg hafi ýmislegt við einstök atriði frv. að athuga, þá skiftir það ekki svo miklu máli, að jeg ætli mjer að bera fram neinar brtt. Aðeins vildi jeg benda á, að hv. landbn. hefir sjest yfir, að í 3. gr. frv. er ákvæði, sem kemur í bága við gildandi lög. Í staflið f. 3. gr. stendur, „að húsin sjeu vátrygð fyrir upphæð, er nemi fullu kostnaðarverði þeirra“. En samkvæmt lögum um brunatryggingar má ekki vátryggja nema 5/6 hluta, en 1/6 má hvergi vátryggja. Með þessu er þá útilokað, að jarðeigendur gætu fengið lán til bygginga. Frá formshliðinni sjeð er þetta ein af verri misfellum frv.

En úr því jeg er staðinn upp, vil jeg nota tækifærið til þess að lýsa því yfir, að jeg er algerlega á öðru máli en hv. 2. þm. Skagf. um ákvæði 4. gr. Jeg álít einmitt, að rjett spor sje stigið með því að láta endurbygging eldri bæja sitja fyrir því að reisa nýbýli. Það er að minni hyggju jafnsjálfsagt og að bóndi, sem á þýft tún og illa ræktað, snúi sjer fyrst að því að bæta það, áður en hann fer að rækta utantúns. Fyrst er að gera þær jarðir byggilegar, sem búið er á, og þegar það er gert, er nógur tími að snúa sjer að nýbýlaræktinni. Að vísu má gera ráð fyrir, að jafnframt endurbyggingu sveitabýla fjölgi nýbýlum, en aðaláhersluna á að leggja á endurbyggingu þeirra býla, sem eru að falli komin.

Fleira hefi jeg ekki að segja, en óska, að hv. landbn. athugi, hvort ekki sje rjett að breyta f-lið 3. gr. frv.