16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (837)
26. mál, byggingar- og landnámssjóður
Frsm. (Jón Ólafsson):
Það var ekki alveg rjett með farið hjá hv. 2. þm. Skagf., að landbn. hefði sagst hafa svo þrauthugsað þetta mál, að hún tæki engar athugasemdir til greina. Jeg tók það einmitt fram, að nefndin hefði við nánari athugun rekið sig á ýmislegt, sem hún viðurkendi, að betur mætti fara, en væri þó að hennar dómi ekki svo mikilsvert, að hún hefði sjeð ástæðu til að bera fram brtt. og með því ef til vill tefja fyrir afgreiðslu málsins á þessu þingi. Jeg held, að hv. 2. þm. Skagf. hafi heldur ekki stungið upp á neinum þeim breytingum, sem nokkru máli skifta.
Það er rjett, að 4. gr. tekur það fram, að fyrst og fremst eigi lánin að veitast til þess að endurbyggja sveitabýli, en þó er alls ekki útilokað, að efnaminni menn, sem skifta vilja jörð á milli sín og eftirkomenda sinna, geti orðið aðnjótandi láns úr sjóðnum. Ef býlið er illa húsað,? á eru samkvæmt 6. gr. engin takmörk sett um, hvað lánið megi vera hátt, svo það gæti verið það ríflegt, að það nægði til þess að byggja yfir 2–3 fjölskyldur. Annars geri jeg ráð fyrir, að sjóðurinn snúi sjer fyrst og fremst að því að endurbyggja á þeim býlum, sem verst eru farin eða liggur við borð að fari í eyði vegna ljelegra og ónógra húsakynna.
Þá var það hitt atriðið, um stærð landsins. Um það atriði er skýrt ákveðið í 3. gr. Staflið e.: „að býli geti, að dómi trúnaðarmanna sjóðsins, veitt fjölskyldu sæmileg skilyrði til framfærslu, þegar það er komið í fulla rækt“. Að þessu finnur hv. 2. þm. Skagf. og segir, að með þessu sje verið að ýta undir kotabúskapinn. Nú verðum við að kannast við, að það er hjer um bil frágangssök að fá vistráðið verkafólk í sveit, og að alt bendir til þess, að vinnan færist meira og meira í það horf, að unnið verði með vjelum og að mannsaflinu verði ekki á að skipa, þegar stundir líða. Aftur á móti er ekki annað að sjá en að fólkið neyðist til að flýja sveitirnar, af því að það skortir efni til að taka stóru húsalausu jarðirnar. Með þessu frv. er verið að gera fólkinu fært að haldast við í sveitunum og hjálpa því til að stofna sjálfstæð heimili, þar sem það getur framfleytt lífinu á auðveldari hátt en nú á sjer stað. Jeg geri ráð fyrir, að það, sem bankarnir hafa sagt um vandræði þau að lána til nýbýla með litlu landi, hafi verið í sambandi við þá háu vexti, sem veðdeildin tekur, því að það er alt annað að eiga að búa við þau lánskjör eða þau, sem frv. gerir ráð fyrir. Enda mun svo víða vera, að þeir, sem þurfa á veðdeildarlánum að halda, eiga fult í fangi að standa skil af þeim. Það er ekki nema eðlilegt, að peningastofnanirnar líti á þetta; þær þurfa vitanlega að hafa fje sitt alveg örugt og trygging fyrir því, að vextir sjeu af því greiddir.
Nefndin hefir ekki athugað ákvæði það, sem felst í f.-lið 3. gr., á þeim grundvelli, sem hv. þm. V.-Húnv. talaði um. Og það er ekki ætlunin að leggja á neinn eiganda þá kvöð, að þeir eigi ekki að tryggja það verðmæti, er þeir hafa handa á milli. Tel jeg svo ekki ástæðu til þess að segja fleira að sinni.