16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1815 í B-deild Alþingistíðinda. (838)
26. mál, byggingar- og landnámssjóður
Jón Sigurðsson:
Jeg var ekki viðstaddur, þegar hv. þm. V.-Húnv. talaði, en mjer skildist, að ræða hans hafi gengið út á það, hvort betra myndi að liðsinna fólkinu, svo það hjeldist betur við í sveitunum, með því að halda við þeim býlum, sem fyrir eru, eða byggja nýbýli, og virtist hann heldur hallast að þeirri skoðun, að ekki ætti að byrja á nýbýlabyggingu, fyr en búið væri að byggja upp gömlu býlin. Hjer er um tvær stefnur að ræða, sem auðvitað má deila um. Jeg lít þannig á, að þau býli, sem hættast er við, að leggist í auðn, sjeu hálsa- og dalabýli, sem afskekt liggja. Nú er spurningin: Eigum við að þjetta bygðina í þeim sveitum, sem bestar eru, eða kappkosta að halda bygðinni eins víðlendri og unt er, án tillits til þeirra skilyrða, sem fyrir hendi eru? Jeg hallast eindregið að því að þjetta bygðina þar, sem skilyrðin eru góð sökum góðra samgangna og annara þæginda, heldur en að þenja hana út um alla skækla landsins og endurreisa hvert kotbýli til hálsa og heiða, sem fólk unir ekki lengur á. Þetta er mín skoðun, og samkvæmt henni legg jeg það til að skifta stærri og erfiðari jörðunum smátt og smátt, eftir því sem ræktaða landið leyfir, og beina þannig fólksfjölguninni fyrst og fremst að bestu sveitunum í hverju hjeraði. Jeg er hræddur um, að hv. 3. þm. Reykv. hafi misskilið nærri því alt, sem jeg sagði. Jeg sagði ekki, að það væru efnamennirnir, sem græddu út túnin; það fer ekki altaf eftir efnunum, heldur áhuga manna, og það eru því miður ekki efnamennirnir, sem standa þar fremstir í flokki, heldur oft og einatt fátækir, en áhugasamir menn, sem eru þar brautryðjendur. Jeg sagði heldur aldrei, að með þessu væri verið að ýta undir kotbúskap, en þegar um er að ræða býli, sem hefir aðeins tvær dagsláttur af landi til sinna umráða, þá er það auðsjeð, að svo lítið býli getur hvorki rentað byggingarnar nje heldur nægt til þess að framfleyta fjölskyldu, ef ekki er stunduð önnur atvinna jafnhliða. Við víkjandi þeirri ástæðu landbn., að ekki megi koma fram með breytingar við frv., þá verð jeg að segja, að mjer virðist sú ástæða beinlínis hlægileg nú, þegar fjárlögin eru nýfarin til Ed. og eiga án efa eftir að koma aftur til þessarar deildar eftir 3–4 vikur, og fyr en fjárlög eru samþ. verður þinginu þó ekki slitið.