19.03.1928
Neðri deild: 51. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (850)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Frsm. (Jón Ólafsson):

Jeg vildi aðeins segja nokkur orð út af ummælum hv. þm. Borgf. Við höfðum athugað, að ekki var hægt að tryggja þessi býli, sem lánað er út á svo mjög nærri fullu verði, eftir því sem sveitabæir eru brunatrygðir, og eftir þessari grein er því gert ráð fyrir að tryggja býlin fullu verði. En það álitum við alveg sjálfsagt og nauðsynlegt, ef lánið á að vera trygt, enda virðist eiga að heimta, að menn tryggi eignir sínar sem best.

Við litum svo á, að ef þessi grein komi í bága við, að menn geti notað sjer tryggingar brunabótasjóðanna, þá sjeu þær leiðir sjálfsagðar, að breyta svo lögum þeirra, að menn geti trygt eignir sínar fullu verði.

Það er einkennilegt, að slíkt skuli hafa komist í lög, að menn mættu ekki vátryggja eignir sínar fullu verði, en þetta komst illu heilli inn í lög samábyrgðar íslenskra fiskiskipa. Tilgangurinn með þessu mun auðvitað sá, að koma í veg fyrir það, að menn sigli skipum sínum í strand af ásettu ráði, vegna þess að þeir vita, að þeir fá verð skipsins endurgreitt að fullu frá vátryggingarfjelagi. Sama er að segja um það, þegar bannað er að vátryggja húseignir að fullu, þá er það auðvitað tilgangurinn að koma í veg fyrir, að menn kveiki í húsunum með vilja. Mjer finst afaróeðlilegt, að þetta skuli vera þannig sett í lög, enda ekki sanngjarnt gagnvart þriðja manni, sem ef til vill hefir lánað alt það fje, sem húsið hefir kostað. Með þetta fyrir augum ættu engin vandræði að geta stafað af því, þótt menn vátrygðu hús sín annarsstaðar en í brunabótasjóðunum, þar til þeir eru komnir í betra horf, enda virðist eftir lögum þeirra sjóða, að hægt sje fyrir menn að vátryggja hús sín annarsstaðar, ef þeim sýnist svo.