19.03.1928
Neðri deild: 51. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Magnús Guðmundsson:

Út af ummælum hv. þm. Dal. vildi jeg beina einni spurningu til hæstv. forsrh. Hv. þm. Dal. hafði það eftir hæstv. ráðh., að hann hugsaði til að koma upp bæði landbúnaðar- og fasteignabanka, en jeg skildi hæstv. forsrh. þannig, að hjer væri aðeins um landbúnaðarbanka að ræða. Jeg vildi því spyrja hæstv. ráðh., hvort jeg hafi skilið hann rjett, því að jeg legg mikið upp úr því, að landbúnaðurinn hafi ekki sömu peningastofnun og aðrir atvinnuvegir landsins. Það hefir jafnan sýnt sig, að landbúnaðurinn hefir farið varhluta í þeim skiftum, og því vildi jeg bera þá spurningu fyrir hæstv. ráðh., hvort það er meining hans að hafa þessar tvær stofnanir saman.

Ennfremur vildi jeg spyrja, hvort stj. ætli sjer bráðlega að taka það lán, sem henni er heimilað að taka eftir 15. gr. frv. Verði það ekki gert, virðist mjer tiltölulega lítið fje vera fyrir hendi til þessara bygginga, svo framarlega sem gera má ráð fyrir því, að þeir, sem ætla sjer að byggja, dragi sig eftir þessum lánum, og ef ekki verður sjeð fyrir meira fje til lánanna en hinu árlega framlagi ríkissjóðs, þá verður þessi ráðstöfun frekar til þess að draga úr byggingum en hrinda þeim áfram.