14.03.1928
Efri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (871)

5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka

Jón Baldvinsson:

Það er rjett hjá hv. frsm., að bæði nefndin og aðrir eru sammála um, að ríkissjóður hafi fulla þörf þeirra tekna, sem frv. þetta gæti gefið honum, þótt það væri sambvkt óbreytt. Það er meðal annars fyrir þá sök, hversu margar og miklar framkvæmdir bíða úrlausnar og hve margt er ógert á ýmsum sviðum. Hinsvegar er á það að líta, hvort almenningur er fær um að leggja á sig svo mikil gjöld sem til þarf. — Hjer í hv. deild hafa nú verið samþ. nokkur tekjuaukafrv., og meginástæðan til þess, að jeg gat fylgt sumum þeirra, var sú, að mjer þóttu þau ekki eins ranglát og t. d. kaffi- og sykurtollur. En sá skattur kemur mjög illa við þurrabúðarfólk, sem flest má teljast með fátækasta fólkinu. Mjer finst hv. deild vel geta fallist á brtt. mína. Að vísu er þetta allmikil fjárhæð, um 200 þús. kr., sem ríkissjóður mundi missa árlega. En það vinst margfaldlega upp á hinum tekjuaukafrv., ef þau verða samþykt.

Annars eru kaffi- og sykurtollur gamlir kunningjar í hv. deild, og er væntanlega óþarft að fara um þá fleiri orðum.