29.02.1928
Neðri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í B-deild Alþingistíðinda. (89)

1. mál, fjárlög 1929

Hákon Kristófersson:

Þótt nú sje komið að morgni dags og þess mætti þar af leiðandi vænta, að háttv. deildarmenn væru til þess færir að hefja eða halda áfram umræðum, en þar sem þessi umræða hefir nú staðið hvíldarlaust frá því í febrúar og fram í mars, skal jeg lofa því að vera að þessu sinni stuttorður.

Vænti jeg þess, að hæstv. forsrh. geti óáreittur af mjer að minsta kosti gert að ýsunum, sem hann var að draga í fyrri nótt. Það eru sjerstaklega nokkur ummæli hæstv. dómsmrh., sem jeg finn ástæðu til að þakka fyrir. Ekki af því, að jeg álíti þau sjerstaklega þakklætisverð, heldur af hinu, að þau gefa manni von um, að hæstv. ráðh. hafi með árum og aldri horfið frá þeirri skoðun, er hann hjelt fram í hliðstæðu máli og hjer er um að ræða fyrir nokkrum árum.

Viðvíkjandi Thorcilliisjóðnum, sem hæstv. dómsmrh. lagði talsvert mikið út af og sagði, eins og rjettlátum manni sæmir, að það hefði verið rangt að ráðstafa honum öðruvísi en gefandi hefði ætlast til, þá skal jeg taka það fram, að jeg tel þetta lofsamleg ummæli. Þessi ummæli mín má þó ekki skoða svo, að jeg álíti, að fyrv. hæstv. stjórn hafi gert neinar þær ráðstafanir, er óheimilar væru viðvíkjandi nefndum sjóði, eins og núv. hæstv. dómsmálaráðherra vill gefa í skyn.

Jeg vona því, að hæstv. dómsmrh. láti sig slíkt aldrei henda, hvorki nú nje síðar, og þá heldur ekki með gjafasjóð frú Herdísar Benedictsen. Það er ánægjulegt að heyra þau ummæli af vörum hæstv. ráðh., að hann álíti algerlega óhæfilegt, að nokkurn tíma komi það fram hjá þingi eða stjórn, að raskað sje ákvörðunum gjafabrjefa dáinna manna. Þetta virðist mjer þakklætisvert hjá hæstv. ráðh., af því mjer er ekki grunlaust um, að hann hafi haft nokkuð aðra skoðun á slíkum efnum, og það ekki fyrir löngu síðan, — viðvíkjandi meðferð Herdísarsjóðsins.

Það, sem kom mjer til að standa upp nú, var ein spurning, sem jeg vildi gera til hæstv. landsstjórnar, þó alveg árásarlausa, og vil jeg þakka fyrirfram, ef hæstv. dómsmrh. svarar henni undanbragðalaust og með hugarfari hins rjettláta manns. Spurningin er sú, hvort það er rjett, sem heyrst hefir, að Björn Þorláksson, uppgjafaprestur frá Dvergasteini, hafi nú um hríð unnið að skýrslum um receptagjafir lækna. Ef þetta er nú rjett, sem jeg hygg vera, þá vil jeg ennfremur spyrja hins, sem af því má draga, hvort skýrslur þessar sjeu ekki gefnar út með styrk af fje ríkisins. Tölurnar eru nú að sjálfsögðu hlutlausar og ekkert við þeim að segja í flestum tilfellum. En svo kemur nokkurskonar eftirmáli við þær, og hann tel jeg vera mjög óviðeigandi. Það er raunalegt, ef þetta er gefið út á ábyrgð ríkisstjórnarinnar, en jeg tel víst, að svo sje, og muni hún þá hafa kynt sjer þetta, áður en það kom út á prenti. Þar af leiðandi verður að telja skýrsluna í heild gefna út á ábyrgð stjórnarinnar. Jeg hygg, að í svona skýrslu komi það málinu lítið við, hvort menn hafi einhver líkamslýti eða hvort þeir sjeu hlaupalegir eða ekki. Þó finnur höfundur skýrslunnar sjer sæmandi að fara þannig orðum um Þorvald Pálsson lækni, að hann sje „þó ekki hlaupalega vaxinn“. Þá er þar einnig minst á einn merkan hjeraðslækni, Guðmund Guðmundsson í Stykkishólmi, sem er mesti heiðursmaður og af mörgum þektur sem mikilsvirtur embættismaður. Með leyfi hæstv. forseta vil jeg leyfa mjer að lesa upp nokkuð af þeim mjög svo óviðeigandi orðum, sem standa í þessari skýrslu um þennan heiðursmann og hljóða þannig:

„Guðmundur Guðmundsson er skólabróðir minn. Jeg þekti hann sem saklausan og góðan pilt. Við erum á líkum aldri. Báðir orðnir gamlir. Og eigum hvorugur eftir langa dvöl hjerna megin. Við þurfum báðir að líta yfir liðinn æfiferil og skoða lífið alvarlega. Vill ekki Guðmundur Guðmundsson nú, er hann stendur með mjer á grafarbakkanum, hugsa um það, hvort hann kunni ekki með sínum tíðu áfengisávísunum að hafa kveikt hjá einhverjum áfengisfýsn og gert þannig að ofdrykkjumönnum, að siðferðisþrotum, að reglulegum ræflum og auðnuleysingjum? Reyndar er slík umhugsun sem þessi ekki gleðileg. En fyrir suma er hún þó nauðsynleg — undir lokin“. (Hlátur). Menn hlæja! — En slíkt skyldi maður nú lesa með klökkum huga!

Að sjá og heyra slík ummæli sem þessi, er jeg nú las, í opinberri skýrslu, sem líkist helst skriftamálum, lítur nokkuð einkennilega út og getur tæpast talist viðurkvæmilegt. En þar sem þetta, sem hjer er sagt, kemur síðar fyrir almenningsaugu, þá verð jeg að segja það, þó þessi virðulegi maður, sem þetta hefir skrifað, sje hjer ekki viðstaddur, að þá verði hann að sætta sig við það, að þessi ummæli úr tilvitnaðri ritsmíð hans sjeu gerð hjer að umtalsefni. Maður skyldi ætla, að þessi maður, sem þetta skrifar, álíti sig geta frómt úr flokki talað. Ætli ekkert kunni að finnast líka frá hans liðnu árum, sem honum væri holt að minnast — svona „undir lokin“? Það er eins og skýrsluhöfundur sje þarna að ögra Guðmundi lækni með opnu hliði helvítis og álíti sig ef til vill hafa vald til að ýta honum þar inn fyrir hurðina. Jeg verð að víta það, að þetta skuli vera prentað fyrir fje ríkisins og á ábyrgð landsstjórnarinnar. Ef þessi læknir hefði eitthvað til saka unnið, þá var önnur leið til að hegna honum heldur en þessi, að smeygja slíkum ómerkum orðum í opinbera skýrslu, þegar jeg las skýrslu þessa, kom mjer í hug þessi alkunna vísa: „Fjandi komst hann Kain langt“ o. s. frv.

Jeg lofaði að vera ekki langorður og skal efna það. En jeg vona, að hæstv. stjórn svari þessu, og eins hinu, hvort hún hefir, eins og sagt er, launað þennan heiðursmann í sinni þjónustu með 400 kr. á mánuði, og þá um leið, hvað gert er ráð fyrir, að hann verði lengi hjer eftir í þjónustu landsins til að vinna að skýrslusöfnun. Jeg held, ef svo er, að það sje ósamrýmanlegt þeim sparnaði, er hæstv. stjórn hefir þótst ætla að koma fram á starfsmannahaldi ríkisins.

Það kom fram í ræðu, sem hæstv. dómsmrh. hjelt, að hann taldi, að Íhaldsflokkurinn hefði reiðst svo frv. um loftskeytanotkun á togurunum, að hann hefði ætlað alveg vitlaus að verða. Jeg vil nú vísa þessum ummælum frá mjer og öðrum íhaldsmönnum sem alveg óviðeigandi. Mjer fjell illa að heyra þetta frá hæstv. ráðherra. — Jeg vona, að hæstv. forseti fari ekki að hringja, þó jeg segi sannleikann. Hvar ætti hann að segjast, ef ekki hjer? (Forseti BSv: Forseti hefir ekki hringt!). Mjer sýndist hæstv. forseti rjetta fram höndina í því skyni að hringja. Jeg bið þá auðmjúklega fyrirgefningar, hafi ekki svo verið. Þá sagði sami hæstv. ráðh., að hv. þm. N.-Ísf. hefði fengið flokk sinn til að taka kosninguna gilda. Þetta á að minsta kosti ekki við mig, og jeg leyfi mjer að lýsa þessi ummæli hæstv. ráðh. algerlega ósönn og ómakleg til allra okkar Íhaldsmanna. Mjer sýndist þegar, að rjettmætt væri að Samþykkja kosningu þessa þm. sem annara, sem kosnir voru með miklum meiri hluta, því ekkert hefir komið fram í málinu, sem gæti bent til þess, að hv. þm. N.-Ísf. ætti neinn þátt í kosningasvikum, sem talið er, að fram hafi komið. Hitt er annað atriði, hvort eitthvað hefir komið fram saknæmt við kosningarnar í sumar er leið, sem viðkomandi þm. er algerlega óviðkomandi og gat ekki haft raunveruleg áhrif á úrslit kosninganna.

Þá skal jeg taka það fram viðvíkjandi varðskipalögunum, að jeg átti tal um þau á síðasta þingi og benti þá á, að nokkurt ósamræmi væri á um launakjörin. En mjer blandast ekki hugur um, að þessi lög hafa sumpart verið vanrækt og sumpart brotin. Fyrverandi stjórn hefir vanrækt þau, en núverandi stjórn brotið þau. Á þessu tvennu er mikill munur, en þar sem þegar hefir verið mikið um þetta rætt, þá skal jeg ekki fara lengra út í það nú.

Viðvíkjandi upplýsingum hæstv. dómsmrh. um laun Björns Þórðarsonar hæstarjettarritara hefi jeg nú ekki mikið að segja. Jeg býst við, að honum hafi fundist rjett að verða við þessum tilmælum hæstarjettar, þó þær gerðir hans ríði allmikið í bága við áður uppilátna skoðun hans um þörf á hæstarjettarritara. En jeg vona bara, að ekki komi neitt fleira fyrir síðar af svipuðu tægi. Jeg er því ekki beint að ávíta þetta, en vona, að þetta sje ekki bara af því, að framsóknarmaður á í hlut.

Hv. þm. Borgf. (PO) gat þess, að stjórnin hefði veitt rífan styrk til atvinnubóta hjer í Reykjavík. Mig furðar nú, ef hæstv. stjórn þarf ekki líka að láta styrk í sama skyni til Ísfirðinga og Akureyrarbúa. Það er varla meiri þörf á þessari hjálp hjer en þar. Þetta er nú máske rangt á litið hjá mjer, en jeg get þó ekki varist því að álíta, að þó hjer sje nú máske lítið um atvinnu, þá hefði þó þessu fje betur verið varið til hjálpar ekkjum þeim og börnum, sem mistu fyrirvinnu sína við hið sorglega slys, sem kom fyrir nú nýlega, heldur en að verja hví á þennan hátt.