23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (893)
5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Magnús Guðmundsson:
Jeg held, að kaffi- og sykurtollurinn sje eini tollurinn, sem ekki hefir verið hækkaður neitt síðan fyrir stríð, og í því felst í raun og veru mikil lækkun samanborið við aðra tolla.
Það er auðvitað rjett, að sykur er að vissu leyti nauðsynjavara, en hann er notaður hjer langt umfram nauðsyn, og jeg get ekki sjeð neina sanngirni í að taka þessar vörutegundir einar út úr. — Viðvíkjandi afstöðu hv. Ed. til þess máls skal jeg upplýsa það, að það stóð á því einu, að hæstv. fjmrh. væri viðstaddur atkvgr. Ef hann hefði verið við, þá hefði breytingin á frv. fallið, því að jeg skil ekki í, að hann hefði gengið á móti því frv., sem hann hafði sjálfur borið fram. Jeg þykist vita, að hæstv. fjmrh. verði viðstaddur, þegar málið kemur aftur til Ed. og standi við sitt frv., og sömuleiðis hinn ráðh., sem þar á sæti, og er þá málinu óhætt. Mjer þykir ólíklegt, að svo mikil áhersla sje lögð á þetta, að við því megi búast, að Ed. felli frv., ef Nd. gerir breytingu á því nú.
Hæstv. forsrh. lýsti yfir, að mjer skildist, að samkomulag hefði orðið milli flokkanna um þetta mál. (Forsrh. TrÞ: Jeg sagði, að samkomulag hefði orðið um auknar tekjur). Hæstv. ráðh. sagði miklu meira. Hann sagði, að nú væri fengin vissa fyrir, að nægar tekjur fengjust í ríkissjóðinn. (Forsrh. TrÞ: Jeg gerði ráð fyrir því). Slíka vissu getur hæstv. ráðh. ekki haft nema með baktjaldasamningum, og verð jeg að segja, að mjer þykir einkennilegt að lýsa slíku yfir úr ráðherrastóli.