23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (896)
5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Frsm. 2. minni hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Mjer finst það koma úr hörðustu átt, þegar Íhaldsmenn eru að tala um, að Nd. megi ekki láta Ed. taka af sjer ráðin. Hverjir hafa komið þeim sið á aðrir en Íhaldsmenn, að láta Ed. ráða öllu? Það var svo í fyrra, þegar Íhaldsmenn rjeðu lögum og lofum í Ed., að hún hafði völdin, ekki aðeins um almenn mál, heldur einnig fjárlög. En þó að jeg sje yfirleitt andvígur því, að Ed. taki ráðin af Nd., tel jeg það vel farið í þessu máli.
Hvað er óeðlilegt í því, sem hv. 2. þm. G.-K. vítir, að þingið bæði samþykki tekjuaukafrumvörp og jafnframt lækki eða ljetti alveg af öðrum sköttum? Mjer finst þetta ekki aðeins eðlilegt, heldur líka sjálfsagt. Hjer liggja nú fyrir þinginu að minsta kosti ein níu tekjuaukafrumvörp, og eftir því sem fjhn. beggja deilda skila frá sjer nál., og eftir því sem þingið hefir samþykt frv., má ætla, að samþykt verði tekjuaukafrv., er nemi samtals um 1300 þús. kr. Það er sennilegt, að eitthvað af þeim verði felt, en þegar svo miklar breytingar eru gerðar á fjármálum landsins, þá er ekki nema eðlilegt, að tilfærslur sjeu gerðar um leið, lagaðar verstu misfellurnar á núverandi skattakerfi. Annars er það auðvitað ekkert leyndarmál, að sá meiri hl., sem er á þessu þingi, ætlar sjer að ráða því, hvaða skattar verða á þjóðinni yfir fjárhagstímabilið árið 1929.
Það er augljóst, að þegar stjórnarflokkurinn kemur með tekjuaukafrumvörp fram á þingi, en Íhaldsflokkurinn virðist ætla að standa sem klettur á móti því, að flest tekjuaukafrumvörpin nái fram að ganga, þá stendur Framsóknarflokkurinn fast með þeim frumvörpunum, sem hann býst við að sje hægt að fá samþykt. En þegar sjeð verður, að við jafnaðarmennirnir erum að vísu ekki eins og íhaldsmennirnir yfirleitt mótfallnir því að auka tekjur ríkissjóðs og auka framkvæmdir í landinu, en þó hinsvegar ekki tilleiðanlegir til að samþykkja ýms frumvörp Stjórnarflokksins, þá verður auðvitað að fara þær leiðir að hafa samvinnu um þessi mál milli jafnaðarmanna og Framsóknarflokksins. Og þá er ekki nema eðlilegt, að einhverjar tilfærslur sjeu gerðar á einstökum tekjuliðum, eftir því sem hentast þykir. Annars hjelt jeg, að þeir hv. íhaldsmenn, sem talað hafa í þessu máli, hefðu fylgst svo vel með í þeim nál., sem fjhn. beggja deilda hafa sent frá sjer, að þeir hefðu sjeð, að þótt flokksbræður þeirra geri klofning í nefndunum, þá stendur meiri hl. þó fast saman um öll frv. Það þarf ekki að benda á annað en þetta, sem öllum ætti að vera ljóst, til að sýna, að samvinna á sjer að nokkru leyti stað um tekjuaukalög þessa þings milli jafnaðarmanna og framsóknarmanna.
Hv. 1. þm. Reykv. tók upp þann undarlega sið, að berjast á móti sínu eigin kjördæmi, með því að berjast á móti því, að kaffi- og sykurtollurinn væri lækkaður, sem er áreiðanlegt að kemur harðara niður á fáum heldur en alþýðunni í Reykjavík, en hv. þm. býst víst ekki við að eiga mörg atkv. í hópi þeirra manna. Það ætti þó íhaldsmönnum að vera ljóst, að hjer verður að finna einhverjar aðrar leiðir í fjármálunum heldur en þær, sem fylgt var á meðan þeir voru við völd. (MG: En hvað lagði stjórnin til?). Jeg hefi þegar talað um það.
Þá gat hv. 1. þm. Skagf. þess, að hæstv., fjmrh. myndi hafa greitt atkv. á móti brtt. í hv. Ed., ef hann hefði verið viðstaddur. Jeg veit satt að segja ekki, hvaðan hv. þm. (MG) kemur umboð til að koma með yfirlýsingar fyrir hönd hæstv. fjmrh. nje finst mjer honum farast að reyna að verja gerðir hæstv. fjmrh. frá sínu eigin sjónarmiði, því að jeg hygg, að hann hafi nóg að gera við að verja sjálfan sig; en annars hygg jeg, að hv. 1. þm. Skagf. muni vera orðinn svo vanur samvinnu og sambræðslu í nefndum, að hann viti það fullvel, að menn ganga jafnvel inn á mikilvægar breytingar á sínum eigin frv., ef þeim er betur borgið með því, og væri því full ástæða til að ætla, að hæstv. fjmrh. mundi hafa greitt brtt. atkv. heldur en að fá ýms önnur tekjuauka frumvörp sín limlest. Jeg vil taka það skýrt fram, að jeg rengi algerlega ummæli þessa hv. þm. (MG) um fyrirætlanir og hugsanir hæstv. fjmrh., þar til frekari sannanir liggja á borðinu.