23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1881 í B-deild Alþingistíðinda. (914)
5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Magnús Jónsson:
Útreikningar hv. 2. þm. Reykv. um það, hvað sykurtollurinn nemi á fjölskyldu, koma ekki þessu máli við. Hann byggir þar á því, að sykureyðslan sje jafnmikil á mann, án tillits til efnahags. Þetta er ekki rjett. Sykur getur verið mönnum nauðsynlegur upp að vissu takmarki. En mikil sykurnotkun er beint skaðleg.
Hv. þm. kom með ný rök í þessu máli. Nú væri komin fram till. um að skipa milliþinganefnd í tolla- og skattamál landsins. Því væri nú ástæða til að breyta út af þeirri grundvallarreglu, sem fylgt hefði verið. En jeg sje ekki betur en hjer sje ný ástæða til hins gagnstæða, sem sje að vera á móti þessari breyting, þegar búast má við, að þessi till. verði samþykt og nefndin skipuð.
Hv. þm. sagði, að hjer ætlaði meiri hl. sjer að ráða. Þetta eru brosleg orð, þegar þau eru sett við hlið raun veruleikans. Raunveruleikinn er sá, að hjer ráða jafnaðarmenn einir. Þeir bera fram till., sem fer á móti ríkisstjórninni, móti Framsóknarflokknum og móti Íhaldsflokknum. Og þó ætlar alt að bogna fyrir nema íhaldsmenn. Stjórnin fær ekki að ráða, meiri hl þings fær ekki að ráða. — Atferli jafnaðarmanna við Framsókn minnir mig á kjóa og ritu. Hafi hún náð sjer í eitthvert æti, eltir kjóinn hana, þangað til hún sleppir því við hann, og hafi hún gleypt það, neyðir hann hana jafnvel til að selja því upp. Jafnaðarmenn eru ekki einu sinni svo vorkunnlátir við stjórnina, að þeir leyfi flokki hennar að snúast, áður en þeir hafa opinberlega látið í ljós afstöðu sína með atkvæðagreiðslu, heldur neyða þeir hann til þess að snúast frá yfirlýstum vilja sínum, eins og glögglega kom í ljós hjá hv. þm. V.-Húnv. og nokkurra daga gamalt nafnakall sýnir.