23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1885 í B-deild Alþingistíðinda. (917)
5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Jón Auðunn Jónsson : Mjer þótti koma fram óvenjulegur kveifarskapur í síðustu ræðu hv. þm. Mýr. Jeg hafði satt að segja haldið, að hann væri meiri skapfestumaður en hann sýndi sig þar. Hann segir, að tekjuaukafrv. komist eigi fram nema með tilstyrk jafnaðarmanna. Ja, það er svo sem auðsjeð, að jafnaðarmenn ráða mestu hjer um. Í þessu tilfelli var óþarft fyrir stjórnarfl. að láta jafnaðarmenn beygja sig. Það var vitanlegt af atkvgr., að Íhaldsflokkurinn, að einum manni undanskildum, fylgdi stjórninni að þessu máli. Nú gengur hv. þm. Mýr. í móti brtt. Þó veit hann, að þær voru samþyktar með 20:3 atkv. í Nd., og Ed. voru þær feldar með 7:6 atkv., af því að hæstv. fjmrh. var ekki viðstaddur. Þar stóð Íhaldsflokkurinn með stjórninni, en þá höfðu jafnaðarmenn beygt Framsóknarflokkinn og dómsmrh., sem öllum er vitanlega fremur ráðh. jafnaðarmanna en Framsóknar. Alt tal hv. þm. um, að minni hl. eigi að beygja sig o. s. frv. er út í loftið. Hann segir, að eitthvað þurfi að slaka til, til að spilla ekki samkomulagi um frv. sjálft. En hvar lendir þá tilslökun stjórnarflokksins, ef þeir slaka til líka þar, sem þeir eiga vísan stóran meiri hl. fyrir frv. sínum? Er það rjett, að ef lítill minni hl. óskar að gera einhverjar breytingar, þá eigi meiri hl. að beygja sig? En það virðist vera að gerast í þessu máli. Þar sem það er sannað í þessu máli, að meiri hl. Framsóknarflokksins hefir sömu skoðun á málinu og íhaldsmenn og hv. þm. Dal., en ætla samt að beygja sig, þá er það minni hl., sem ræður. Það er hinn fámenni flokkur jafnaðarmanna, sem knýr Framsóknarflokkinn til þess að brjóta á bak aftur till. sinnar eigin stjórnar.
Hvað er nú orðið um hina helgu skyldu þingmannsins og meiri hl. Framsóknarflokksins, að fylgja jafnan sinni eigin sannfæringu?
Hæstv. forsrh. var að bera saman sinnaskifti sín og flokksmanna sinna og hv. 1. þm. Skagf. í öðru máli áður hjer á þingi. En þar er ólíku saman að jafna. Það var á sínum tíma sannað fyrir hv. 1. þm. Skagf., að aukinn tollur á tóbaki mundi gefa meiri tekjur en einkasalan, og þar að auki lægra verð fyrir neytendur, og þetta hefir reynslan staðfest. Og þá gat hann (MG) sem ráðherra ekki staðið á móti því, að einkasalan yrði lögð niður. En nú á að fella niður gengisviðauka af kaffi- og sykurtolli án þess að nokkuð komi í staðinn. Og þeirri breytingu ljær hæstv. forsrh. lið sitt, þó að hann hafi áður, með nafnakalli hjer í deildinni, lýst yfir alveg gagnstæðri skoðun.
Jeg gat vel búist við þessum hringlanda af ráðh., en jeg hefði satt að segja haldið, að hv. þm. Mýr. mundi fremur kjósa að láta sína eigin sannfæringu ráða en beygja sig skilyrðislaust.