29.02.1928
Neðri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

1. mál, fjárlög 1929

Sigurjón Á. Ólafsson:

Jeg ætlaði ekki að taka til máls að þessu sinni, en nú hafa tveir hv. þm. gefið mjer tilefni til að standa upp. Nóttin er nú liðin og kominn bjartur dagur. Íhaldið hefir nú teflt fram flestum sínum mönnum, alt frá kóngi niður í peð, og mun nú mátleikurinn nærri.

Jeg vil byrja með því að segja hv. þm. Borgf. það, að eitt af því, sem jeg get sagt ekki óvinsamlegt um fyrverandi stjórn, er það, að hún ljet stofna til atvinnubóta síðastliðinn vetur og hún virtist hafa góðan vilja á að láta verða meira úr þeim en raun varð á. En vegna þess, að þar gripu inn svipuð öfl og virtust koma fram hjá hv. þm., þá urðu atvinnubæturnar alt of litlar og framhald þeirra fórst fyrir. Það er ekki nema eðlilegt í bæ, sem telur tæpar 23 þús. íbúa, að þröngt verði í búi hjá mörgum á atvinnuleysistímum. Jafnvel bæjarstjórn Reykjavíkur, þ. e. a. s. meiri hl. hennar, sem eru íhaldsmenn og ekki þykja hafa neitt sjerlega næman skilning í þessum efnum, hefir þó talið óhjákvæmilegt að stofna til þessara atvinnubóta. Bæjarstjórnin og ríkisstjórnin ljetu því stofna til vinnu síðastl. vetur, og var unnið fyrir um 20–30 þús. kr. af ríkissjóðsfje. Til þeirrar vinnu komust 67 menn, og jeg hefi komist að þeirri niðurstöðu, að fyrir vinnu þessara manna fjekst svo mikið, að ekki var um neitt verulegt tap að ræða reikningslega sjeð, því grjótmulningur seldist hart nær fyrir kostnaði. En þessar atvinnubætur voru framkvæmdar beinlínis fyrir kröfu verkamanna hjer í bænum.

Nú í vetur var farið fram á atvinnubætur, og var þörfin tvímælalaus. Bæjarstjórnin daufheyrðist við þessum málaleitunum, hvort sem nú því hefir valdið, að hún hafi ekki talið þörf á atvinnubótum, eða hitt, að fje hafi ekki verið fyrir hendi, skal ekki fullyrt. En jeg hygg, að mest hafi ráðið venjulegt skeytingar- og skilningsleysi á þörfum verkamanna. Var þá leitað til hæstv. stj., og varð hún við þessum óskum. Var gert ráð fyrir að láta vinna fyrir 10 þús. kr. Vegamálastjóri, sem hefir umsjón vinnunnar með höndum, lætur þessa menn vinna hvað sem fyrir kemur, moka snjó af vegum o. s. frv. Jeg skýrði hæstv. stjórn frá því, þegar hún bað mig að tilnefna menn í vinnuna, að jeg væri þess mjög ófús að ráða einn útnefningu manna í þessa vinnu. Það er mjög vandasamt og jafnframt óvinsælt verk að dæma um það, hverjir hafi mesta þörf fyrir þessa atvinnuhjálp. Var þá það ráð tekið, að valdir voru tveir kunnir menn til að annast þessa útnefningu ásamt mjer, svo að jeg er ekki einn um þetta.

Jeg býst nú líka við því, að ríkissjóður fái eins mikið fyrir þessa vinnu eins og hann hefir lagt fram til hennar. Að þetta sje pólitískt, get jeg ekki sjeð, enda er það svo um þá 30 menn, sem komist hafa að vinnunni, að þeir eru úr öllum stjórnmálaflokkum. Það er nú orðið svo hjer á hverjum einasta vetri, að tugir og hundruð manna hafa brýnustu þörf fyrir þessa hjálp. Þörfin er orðin svo mikil, að móti þeim kröfum verður ekki gengið að bæta úr brýnustu neyð, til þess að forða þessum mönnum frá að lenda á fátækrasjóðnum, og jafnframt bænum frá auknum sveitarþyngslum. Og eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið frá fátækrafulltrúunum, mun ástandið aldrei hafa verið verra en einmitt nú í vetur hvað styrkbeiðnir snertir. Enda er það svo, að af öllum heim hv. þm., sem nú hafa gengið til eldhúsverka, hefir enginn annar en hv. þm. Borgf. (PO) haft lund til að gagnrýna þetta.

Þá var hv. þm. Barð. að draga hjer inn í umr. hið sorglega slys, sem orðið hefir, og áleit, að hví fje, sem stjórnin hefir varið til atvinnubóta, hefði verið betur varið til styrktar ekkjum þeim, sem mistu menn sína í sjóinn. Út af þessu vil jeg segja það, að hæstv. stjórn hefir nú þegar sýnt lit á að hjálpa einnig hjer, en það hefir engin stjórn gert áður í slíkum kringumstæðum. Bæjarbúar munu einnig sýna það, að ekki þarf að leita bæjarþjóðs nú fyrst um sinn til hjálpar þessu fólki, sem betur fer.

Jeg verð að segja það hjer til hróss fyrverandi stjórnum, að þær hafa stofnað til atvinnubóta, þegar nauðsyn hefir krafið eins og nú, til dæmis stjórn hv. þm. Dal. (SE) 1918. (SE: Hvenær hefi jeg ekki staðið með alþýðunni?). Það hefir því miður oftar verið, sem hv. þm. hefir verið á móti hagsmunum alþýðunnar en með. Hinsvegar er þetta auðvitað ekki sjerstaklega þakkarvert, því að það er auðvitað bein skylda hverrar stjórnar að

Sjá um, að þegnarnir deyi ekki úr skorti. (HK: Það er ekki sjeð þannig fyrir þegnunum úti um sveitirnar). Það hefir komið fyrir með ýmsum hjálparráðstöfunum. Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta. Jeg hefði alls ekki tekið til máls hjer, ef ekki hefði verið gefið sjerstakt tilefni til þess með því að minnast á þetta mál, sem snertir sjerstaklega verkamenn þessa bæjar og jeg hefi haft nokkur afskifti af.