25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (930)
29. mál, jarðræktarlög
Haraldur Guðmundsson:
Jeg get nú ekki lagt mikið til þessa máls, því að jeg hefi ekki haft tækifæri til að athuga það eins og skyldi, en vildi hinsvegar fræðast af hæstv. atvmrh. og milliþinganefndinni í landbúnaðarmálum.
Hjer segir í 31. gr. jarðræktarlaganna:
„Bæjarstjórnir í kaupstöðum landsins, að Reykjavík undanskilinni, og hreppsnefndir í kauptúnum skulu, áður en eitt ár er liðið frá því lög þessi öðlast gildi, senda Búnaðarfjelagi Íslands skýrslu um land það, sem að þeirra áliti liggur best við til ræktunar innan takmarka kaupstaðarins eða kauptúnsins“.
Jeg vildi nú spyrjast fyrir um það hjá hæstv. atvmrh., hvort honum sje kunnugt um, að þetta hafi verið gert, og hvort stjórn Búnaðarfjelags Íslands hafi fengið þessar skýrslur. Jeg álít þetta mjög þýðingarmikið, því að svo áríðandi sem aukning jarðræktar í sveitum er, þá er hún þó engu minna áríðandi í kauptúnum og í grend við þau, til að tryggja lífsskilyrði þeirra manna, sem þar búa, þegar ill afkoma er til sjávar og afli bregst.
Ennfremur vildi jeg beina annari fyrirspurn til hæstv. atvmrh., um skilning stjórnarinnar á jarðræktarlögunum, hvort ákvæði þeirra um rjett til styrks nái aðeins til einstaklinga, en ekki líka til kaupstaða og bæjarfjelaga. Jeg sje ekki, að jarðræktarlögin segi neitt ákveðið um þetta. T. d. segir í 7. gr., að ef einhver framkvæmi verk, er styrkhæft þyki, þá megi veita honum styrk úr ríkissjóði, er nemi alt að einum þriðja kostnaðar: Aftur á móti segir í 8. gr.:
„Nú sljettar maður tún sitt eða eykur eða ræsir fram land til túngræðslu, og má þá veita honum styrk úr ríkissjóði, er nemi alt að ¼ kostnaðar . . . . “.
Þetta er, sem sagt, nokkuð á reiki. Það er ekki gott að sjá, hvort lögin eiga við einstaklinga eingöngu. Síðari greinin, sem jeg las upp, bendir til þess; hin fyrri virðist aftur á móti gera ráð fyrir, að styrkur sje veittur til verksins, hver sem það lætur vinna. Jeg hefi spurt hv. 1. þm. Skagf., hvernig stjórn sú, er hann átti sæti í, hafi hagað sjer í þessu. Sagði hv. þm. (MG) mjer, að kaupstaðir hefðu sótt um slíkan styrk og þeim verið synjað. Jeg vona, ef þetta er tilfellið, að lögin beri að skilja svo, að þá muni hv. deild fljótlega laga þetta. Jeg hygg, að það sje ekki tilgangurinn með lögunum að veita aðeins einstaklingum styrk persónulega, heldur sje það tilgangur laganna að flýta fyrir ræktun landsins, hvar sem er, engu síður í grend við kaupstaðina og innan lögsagnarumdæma þeirra, án tillits til þess, hvort einstaklingur eða bæjarfjelag lætur framkvæma verkið. Fyrir kaupstaðina er jafnvel mest þörfin um góðan framgang ræktunarmála.
Nú geta menn kannske álitið, að einstaklingar í kaupstöðum geti notið þessa styrks, ef þeir eru í búnaðarfjelagi í hreppnum eða bænum, og það er rjett. En nú er það svo, að bæjarfjelögin sjálf ráðast oft í stórkostlegar jarðabætur, og ættu þá ákvæði laganna einnig að ná til þeirra. Eftir ákvæðum 10. greinar laganna eru 10 fyrstu dagsverkin á hvern verkfæran mann á heimili ekki styrkhæf. Margir líta svo á, að þetta beri að skilja svo að því er til kaupstaða kemur, að tölu dagsverka, sem þeir láta vinna styrklaust, beri að miða við alla verkfæra menn í kaupstaðnum. Þyrfti þá bær með 1000 verkfæra menn að vinna 10 þús. dagsverk, áður en hann yrði nokkurs styrks aðnjótandi, ef þessi skilningur á lögunum er rjettur. Kaupstaðirnir gætu þá sjaldnast unnið svo mikið, að þeir yrðu styrkhæfir. Um þetta vildi jeg gjarnan fá upplýsingar hjá hæstv. atvmrh. og þeim mönnum, sem hjer eru og sæti eiga í milliþinganefndinni í landbúnaðarmálum.