25.02.1928
Neðri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1932 í B-deild Alþingistíðinda. (944)

29. mál, jarðræktarlög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Út af orðum háttv. 2. þm. Skagf. vil jeg taka það fram, að jeg álít, að markmið það, sem að er stefnt í 11. gr. frv. þessa, náist betur eins og greinin er orðuð í stjfrv. En hinsvegar er jeg þannig skapi farinn, að jeg get ekki verið að berja höfðinu við steininn og halda fast við till. stj., þegar öll landbn. verður ásátt um aðra leið, sem stefnir að sama marki. Jeg get því alls ekki verið að ganga á móti nefndinni.

Hv. frsm. vil jeg benda á það, til viðbótar við það, sem áður er nefnt, að það er eitt atriði í 11. gr. stjfrv., sem ekki má falla niður. Það er hámarksákvæðið um, að enginn einstakur bóndi geti fengið meira framlag úr sjóðnum en 300 kr. Þetta ákvæði tel jeg mega til að vera. Annars geng jeg út frá því, að till. nefndarinnar verði samþ., og eins og jeg hefi tekið fram, mun jeg vinna með nefndinni.