06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (963)
29. mál, jarðræktarlög
Halldór Stefánsson:
Jeg hefi orðið þess áskynja síðan í gær, að orðalag brtt. minnar á þskj. 324 orkar nokkuð tvímælis, þar sem það er lagt til, að leiguliðar ríkissjóðs fái þriðjungi hærri styrk en aðrir fá samkvæmt jarðræktarlögunum. Jeg skal nú með tölum skýra þetta, svo enginn geti verið í vafa um, hvað við er átt með till. Ef tekið er dagsverk, sem öðrum er greiddur styrkur á, að upphæð kr. 1,50, þá á samkv. minni till. að greiða leiguliðum ríkisins kr. 2,25 fyrir samskonar jarðabót. Jeg miða því við heildarupphæðina, eftir að viðbótarstyrkurinn hefir verið lagður við. — Jeg skal svo bæta því einu við, að till. hv. 1. þm. S.-M. er á rjettum rökum reist og bætir úr því, að ekki var rjett gengið frá minni till.