06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (973)
29. mál, jarðræktarlög
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil aðeins taka það fram, að mjer finst sjálfsagt fyrir mitt leyti, að hestaverkfæri gangi fyrir. Ef jeg ætti að gefa út þessa reglugerð, myndi jeg telja það, sem nú er fram komið með yfirlýsingu hv. frsm., næga ástæðu til þess að setja þetta ákvæði inn í reglugerð.