16.05.1929
Neðri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2285 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)
101. mál, póstmál og símamál
Jón Auðunn Jónsson:
Hv. frsm. gat um afstöðu aðalpóstmeistara til þessa máls. Það er alveg rjett, að hann heldur því fram, að póststarfið sje aðalstarfið, en þá ætlast hann að sjálfsögðu til þess, að hann taki sjer til aðstoðar æfðan og vanan símritara. En þar með er vissulega fallinn burt allur sá sparnaður, sem þetta frv. er talið bygt á. Þá eru komnir tveir hátt launaðir menn. Símritarar hafa sem sje lítið lægri laun en stöðvarstjórar, því að þeir hafa ekki ókeypis húsnæði. En jeg hygg, að n. hafi ekki viljað fallast á þessa skoðun aðalpóstmeistara, vegna þess að þá fæst enginn sparnaður, ekki einusinni á pappírnum.
Hv. þm. sagði, að stöðvarstjórinn á Akureyri hafi starfað lítið að þeim málum, sem hann veitir forstöðu, áður en honum var veitt. En hann var búinn að vera a. m. k. 12 ár símritari áður. (HJ: Jeg talaði um póstmeistarann). Þar sem hann benti á póstmeistarann á Akureyri, þá var hann búinn að vera í 4–5 ár, þegar hann fjekk starfið, eftir því sem mjer var skýrt frá.
Hv. þm. mintist á, að á Siglufirði væri meiri umsetning á pósti en á Ísafirði. En það er ekki ábyrgðin ein, sem jeg talaði um; það er starfið. Hvað liggja margar aukastöðvar undir Siglufjörð? Ekki ein einasta brjefhirðing, og jeg held ekki neinn aukapóstur. Á Ísafirði eru 20 brjefhirðingar og 14–16 aukapóstar. Og þess vegna er á pósthúsinu á Ísafirði margfalt meira starf en á Siglufirði. Sundurgreining brjefa á Siglufirði er nálega engin, því að það er enginn póstur sendur til Siglufjarðar nema sá, sem á að fara þangað í þorpið. En á Ísafirði er sendur landpóstur til Norðurlands og aukapóstar bæði um norður- og vestursýsluna. Þetta er því alls ekki sambærilegt starf.
Jeg gat þess, að það mætti fremur sameina störfin á Siglufirði og Borðeyri. En á Ísafirði, Akureyri, Vestmannaeyjum og Seyðisfirði mun vera erfitt að koma á þessari sameiningu — eða allsendis ómögulegt, ef sparnaður á að verða, nema því aðeins, að það verði til óhagræðis fyrir viðskiftin.