02.03.1929
Neðri deild: 12. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2317 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)
47. mál, kosningar til Alþingis
Lárus Helgason:
Jeg tel varla hægt fyrir mig að sitja algerlega hjá, þó slæmt sje að þurfa að lengja þessar umr., því að ekki er hægt að segja, að jeg sje ókunnugur þessu málefni.
Jeg ætla að byrja á að lýsa yfir því, að jeg býst við að fylgja þessu máli eindregið. Flestir, sem skoða vilja þetta mál með gætni, munu sjá, að hjer er um mikið sanngirnismál að ræða. Þó að fyrsti vetrardagur hafi verið valinn um eitt skeið, þá verð jeg að álíta, að það hafi altaf verið skakt. Það er búið að sýna fram á það með rökum, hve margir ókostir fylgja þeim degi sem kjördegi. Mest hefir verið gert að því að sýna fram á, að það komi oft fyrir, að menn komist ekki á kjörstað. Það hefir verið minna gert að því að sýna fram á, hvað miklir örðugleikar geta að jafnaði verið á að komast þangað og hvað mikið það kostar um þetta leyti árs. Það er ekki lítill kostnaður fyrir bóndann að þurfa að láta smíða undir hesta sína skaflajárn til að byrja með. Því að víðast er það svo, að ef árnar eru ekki miklar, þá eru þær skaraðar eða jafnvel íslagðar, og verður ekki farið yfir þær nema með skaflajárnaða hesta. En svo er hitt enn verra, að hestana þarf að taka á gjöf fyrir bragðið, þegar illa viðrar á eftir. Á flestum bæjum mun haga svo til, að fólkið verður að fara í tveimur hópum. Fyrsti vetrardagur er stuttur dagur, og verður að fara illa með hestana á slíku ferðalagi. Hörsl er oft mikið, og hestunum er ákaflega erfitt um gang á þessum tíma, eins og flestir vita, mörgum sinnum erfiðara en í júlí til dæmis. Þá geta menn farið hraða ferð á milli, og þá er ekki svo ákaflega hæpið þó að kvöldi; menn sjá samt til að velja vötnin og fara ferða sinni. Alt annað er að eiga við slíkt í kolamyrkri.
Jeg býst við, að ef einhver hagsýnn maður, kunnugur þessu máli, færi að reikna út, hvað mikill kostnaður landsmönnum er gerður með því að velja þennan dag, þá mundi hann fá út hærri tölur en margan grunar. Hv. jafnaðarmenn telja það annmarka á flutningi kjördagsins, að kaupstaðarbúar sumir þurfi að kjósa áður en þeir fara að heiman. Jeg sje ekki mikla örðugleika á því. Jeg held þeir sjeu sáralitlir á móti þeim örðugleikum, sem jeg hefi nefnt og aðrir fylgjendur þessa frv. Jeg er sannfærður um, að með þessu frv. er farið fram á rjett mál og sanngjarnt, enda verð jeg að mótmæla því, að það sje fram flutt af nokkurri illgirni til nokkurs flokks.