24.04.1929
Neðri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2320 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)
47. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. meiri hl. (MagnúsGuðmundsson):
Þakka. — Jeg skal vera stuttorður; get jeg það því fremur, sem þetta mál var rætt svo mikið við 1. umr., og því engin ástæða til að ræða það svo mjög nú.
Það varð að samkomulagi hjá meiri hl. n., að leggja til, að frv. yrði samþ. með þeirri breyt., að í stað orðanna „hinn 1. vetrardagur“ í 23. gr. laganna komi: hinn fyrsti laugardagur í júlímánuði. — Þetta voru þrír af fimm nm. sammála um, en einn um. leggur til, að kosningadagur verði ákveðinn þriðji sunnudagur í septembermánuði, og geri jeg ráð fyrir, að sá sami hv. þm. muni gera sjálfur grein fyrir sínu áliti. En um hv. 2. þm. Reykv. er það að segja, að hann hefir ekki ennþá, frá því að málið var tekið til meðferðar í n., um miðjan marsmánuð, komið með neitt nál. Vona jeg svo, að ekki þurfi langar umr. um málið og að hæstv. forseti geti einmitt lokið afgreiðslu málsins á þessum fundi. Skal jeg svo ekki tefja umr. lengur.