01.05.1929
Neðri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (1085)
47. mál, kosningar til Alþingis
Sigurjón Á. Ólafsson:
Það var í stuttu máli bent á það af samflokksmanni mínum, hv. þm. Ísaf., hver er tilgangurinn með þessu máli og hvers vegna er lögð svona mikil áhersla og kapp á það að færa kjördaginn. Það er vitanlegt af því, sem kom fram hjá hv. þm. Mýr. við 2. umr. þessa máls, að hjer er alls ekki um góðgirni að ræða. Hann ljet þau orð falla í sambandi við Eyrarbakka og Stokkseyri, að það gerði svo sem ekki mikið til, þó að þar færi eitt og eitt atkvæði í súginn. Þessi ummæli benda til þess, að hjer er ekki verið að gera annað en að draga. kjósendavaldið af öllum verkalýð í kaupstöðunum, og þeim er það ljóst, formælendum þessa máls, að á þessum degi er verst aðstaðan fyrir hann að njóta kosningarrjettar síns. Mjer er það fullkomlega ljóst, að það er óttinn við vald alþýðunnar, sem hjer rekur á eftir, en sæmra væri þeim hv. þm., sem standa að færslu kjördagsins, til þess að stórspilla aðstöðu verkalýðsins í kaupstöðum og sjávarþorpum til þess að taka þátt í alþingiskosningum, að freista að ná atkv. alþýðunnar sjer til handa á heiðarlegan hátt, með því að vinna fylgi hennar; en þessi leið er bæði ómakleg og lítilmannleg. Þetta er með öllu ómaklegt, og ef maður athugar umr. um kosningalögin frá 1915, þá virðist alt öðrum augum litið á þetta mál en nú; en þá voru líka engin verkalýðssamtök komin. Annars verð jeg að segja það, að jeg bjóst ekki við, að slíkar raddir sem þessar kæmu frá þeim mönnum, sem telja sig frjálslynda í öðru orðinu og boðbera betri og nýrri tíma. En jeg gat að sjálfsögðu búist við slíku frá þeim, sem eru lengst til hægri og eru manna þröngsýnastir á alt, sem betur má fara. En þeir menn eru til hjer á þingi í báðum stóru flokkunum. Jeg býst nú við, að mál þetta fari til hv. Ed., en hver afdrif þess verða þar, skal jeg engu spá um. En fari svo, að kjördæmakosningarnar verði hjer eftir 1. laugardag í júlímánuði, þá vil jeg vekja athygli á því, að þar sem landskjörið á að fara fram um líkt leyti, þá getur vel farið svo, að þessar kosningar hvorartveggja beri upp á sama dag. t. d. ef þingrof fer fram, en slíkt er alveg á móti anda kosningalaganna. Ef þingrof fer fram í lok apríl 1930, kjördæmakosning 2 mánuðum síðar yrði þá á sama tíma og landskjörið. Á þann hátt yrðu útilokaðir ýmsir menn frá því að vera á landskjörslista, sem ella mundu verða á hann settir. Jeg verð nú að segja það, að mjer hefir altaf skilist svo, að þeir hv. þm., sem deild þessa skipa, vilji ekki fremja vísvitandi ranglæti, en þó gera þeir það nú, svo framarlega sem frv. þetta verður samþykt, og jeg er þeim mun meira hissa á þeim að fremja slíkt ranglæti, þegar þess er gætt, að það er mjög auðvelt að gera þeim mönnum, sem í sveitunum búa, hægara um en nú er að neyta kosningarrjettar síns, án þess þó, að rjettur þeirra, sem í kaupstöðum og kauptúnum búa, sje skeitur. Að þeir skuli ekki vilja sinna slíku, virðist benda í þá átt, að þeir í insta eðli sínu vilji ekki gera það, sem teljast verður rjettlátast fyrir alla landsmenn í heild sinni.
Það má nú vel vera, að jeg þyki nokkuð heitur í þessu máli, en jeg get ekki annað, þar sem mjer finst, að hjer sje verið að fremja eitt hið mesta ranglæti, sem hægt er að hugsa sjer í þessu máli gagnvart verkalýðnum í landinu.
Þar sem jeg hefi nú orðið þess var, að nokkrir þm. hafa enn kvatt sjer hljóðs í þessu máli, þá get jeg slegið botninn í þessa ræðu mína, þar sem jeg líka á óskertan rjett minn til þess að flytja aðra í viðbót, ef þörf krefur. Nú fer að byrja samkoma verkalýðsins hjer fyrir utan húsið; hann mun þakka þessa gjöf þingsins að verðugleikum, sem einmitt nú er verið að storka honum með.