04.05.1929
Efri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2377 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

47. mál, kosningar til Alþingis

Jón Jónsson:

Hv. 4. landsk. sagði, að jeg hefði ekki haft það rjett eftir sjer, að hann og flokksmenn hans teldu nokkrar rjettmætar ástæður fyrir þessu frv. Þeir hafa þó að nokkru leyti viðurkent, að á Norðurlandi væru rjettmætar ástæður fyrir því að skifta um kjördag til alþingiskosninga. Enda er ekki hægt annað. Eins og jeg hefi áður bent á, þá getur farið svo, að það sje ómögulegt fyrir sveitabúa á Norðurlandi að nota kjördag á haustin. Þess vegna er ekki forsvaranlegt að ætla þeim það. Við síðustu kosningar, 1927, kom það greinilega í ljós, að bændur gátu notað kjörrjett sinn betur en áður, og hefir sennilega aldrei verið jafnmikil kosningaþátttaka í sveitunum og þá. Í mörgum kjördæmum eru bæði sveitir og kauptún, sem eiga sameiginlegt þingmannskjör. Þegar kjördagur er að haustinu, þá þurfa þeir, sem í kauptúnunum búa, aðeins að skjótast í næsta hús til að kjósa, en sveitabúar komast þá máske ekki á kjörstað vegna illveðurs og ófærðar. Sjá þá allir, hve sveitahrepparnir njóta sín illa móts við kauptúnahreppana.

Hv. 4. landsk. taldi, að jeg hefði látið mjer mjög ant um, að þetta frv. gengi sem hraðast í gengum þingið; það er að vísu rjett. En ekki er það af þeirri ástæðu, að jeg búist við almennum kosningum á næsta ári. Þó getur alt komið fyrir. Einhverjir geta líka heltst úr lestinni. (JBald: Það getur alt komið fyrir). Já vitanlega. Annars er það undarlegt, hvernig hv. jafnaðarmenn líta á hlutina, t. d. á þessa breyt. á kjördeginum. Eitthvað hefir þó kvisast um, að hv. 4. landsk. og hans flokkur hafi talið það mjög mikið nauðsynjamál á þinginu í fyrra að flýta fyrir skiftingu á einu kjördæmi, þó að ekki stæði þar nein kosning fyrir dyrum. — Jeg tel nauðsynlegt, að þetta frv. um breyt. á kjördeginum nái fram að ganga á þessu þingi, og verð að álíta það óheppilegt vegna vinnubragða þingsins að fresta því nú, þegar það er búið að ganga í gegnum hv. Nd. — Jeg verð að telja það mjög misráðið af hv. þm. að bera nú á síðustu stundu fram brtt. við frv., um 2 kjördaga. Það sýnist svo, sem hv. samflokksmenn hans hafi haft nógan tíma fyrir sjer til þess að flytja slíka till. í Nd.

Þá taldi hv. 4. landsk., að jeg vildi hespa frv. af sem fyrst; það hefi jeg nú ekki sagt. En jeg beindi þeirri ósk minni til n., að hún settist ekki á málið, heldur afgreiddi það með nægum fyrirvara til þess að það kæmist í gegnum deildina.

Hv. þm. Ak. taldi, að það væri mjög ranglátt gagnvart kaupstöðunum að setja þessi lög um færslu kjördagsins; það kann nú að vera að einhverju leyti óþægilegt fyrir kaupstaðina. En jeg verð að halda því fram, að eins og nú er háttað, þá sje miklu meira ranglæti framið gagnvart sveitunum. Kjósendur í kaupstöðum geta þó kosið víðar en heima hjá sjer, eða hvar sem þeir eru staddir á kjörstað.

Þá taldi hv. þm. heppilegra að hafa kosningar fyr að vorinu. En þá yrði alt of lítill tími til fundarhalda fyrir þm., þegar þingi er ekki slitið fyr en seint í maí. Og ekki er þægilegt að hafa fundi í sveitunum fyrri en eftir miðjan júní venjulega. Jeg tel því mjög vafasamt, að það sje heppilegt að láta kosningar fara fram fyrri en fyrstu dagana í júlí. Ennfremur hafa þessir hv. þm. stungið upp á því, að kosningar færu fram nálægt 10. sept. Áður hafa kosningar einu sinni farið fram í september, og það þótti svo óhentugt, að frá því var horfið aftur. — Meðan eldri kosningalögin voru í gildi, fóru kosningar fram í sept., en þá voru færri, sem höfðu kosningarrjett og gátu sótt kjörfund; þess vegna kom það síður að sök. Jeg tel, að það geti alls ekki komið til greina nú, að kosningar fari fram í sept.