06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í B-deild Alþingistíðinda. (111)

14. mál, Búnaðarbanki Íslands

0111Pjetur Ottesen:

Mjer þykir kynlega við bregða, eftir að mál þetta er búið að ganga gegnum þrjár umr. í hvorri deild, og allir flokkar hafa tekið höndum saman um að bæta úr göllum þess og yfirleitt að greiða götu þess eftir föngum, svo óhætt má segja, að altaf hafi verið hin ákjósanlegasta samvinna um það, að þá skuli koma fram raddir, sem deila á einn ákveðinn stjórnmálaflokk fyrir afskifti hans af málinu, sem sje Íhaldsflokkinn. Hafi því hv. þm. V.-Húnv. nokkurntíma slegið vindhögg á æfi sinni, þá hefir hann gert það nú. Hann hefir verið alveg ófyrirsynju og ástæðulaust að burðast við að eigna Íhaldsflokknum illar hvatir í þessu máli. En það er ekkert í þessu frv. annað en það, sem Íhaldsflokkurinn hefir annaðhvort haft forgöngu að að leiða í lög eða hann hefir stutt og unnið að. Enda hygg jeg, að það muni vera auðvelt að fá viðurkenningu fyrir því hjá nefnd þeirri, sem mest verk lagði í það að endurbæta og lagfæra þetta frv., sem sje landbn. þessarar hv. deildar, að fulltrúar Íhaldsflokksins þar hafi síst lagt minna til af þeim endurbótum, sem gerðar voru á frv., en hinir nefndarmennirnir. Og í sambandi við þau ummæli hv. þm. V.-Húnv., að nú sjeu það Íhaldsmenn deildarinnar, sem ætli að bregða fæti fyrir málið með því að greiða framkomnum brtt. atkv. sitt, þá vil jeg benda hv. þm. á, að það er landbn. deildarinnar, sem ber fram till. þær, sem hjer liggja fyrir, og eru flokksmenn hv. þm. V.-Húnv. í meiri hluta í þeirri nefnd, svo sem kunnugt er. En það sýnir rangsleitni hv. þm. að vilja skrifa þær tillögur á reikning Íhaldsmanna einna. Mjer er alls ekki ljúft að deila á hv. þm. V.-Húnv., en hjá því verður ekki komist nú, þar sem hann fer með slíkar firrur sem þetta. Annars held jeg, að hann hafi í þetta sinn látið eitthvað það hlaupa með sig, sem hverjum manni er best að gjalda varhuga við.

Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, því að jeg býst við, að hvað sem ofan á verður um till. landbn., þá muni málinu endast það góða fylgi, sem það hefir haft, til þess að verða afgr. sem lög frá þessu þingi, því að jeg veit, að Íhaldsmenn eru svo þroskaðir, að þeir láta ekki slíkar árásir sem þær, er jeg hefi nú minst á, hafa nein áhrif á afstöðu sína til málsins.