16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2420 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)
47. mál, kosningar til Alþingis
Jón Þorláksson:
Það var rjett, sem hæstv. dómsmrh. tók fram, að þess fundust dæmi áður, að kosningum til þings hagaði svo til, að þær tóku langan tíma. Nú er frá þessu horfið, og er aðalástæðan sú, að eftir að hraðinn varð meiri í viðburðalífinu, hefir það þótt viðsjárverðara að láta líða svo nokkurn tíma, að ekki væri til löglega skipað þing í landinu. Þessi sama mótbára kemur hjer til greina, því að með brtt. hæstv. dómsmrh. á að tvískifta kosningunni með nokkuð löngu millibili, og sje jeg þá ekki annað en að afleiðingin verði sú, að Alþ. verði vanskipað frá vori til hausts. Mjer finst þetta ekki vera forsvaranleg tilhögun um stjórnarfar landsins eins og nú er komið, þó að tilsvarandi ákvæði hafi verið viðunandi meðan lífið var fábreyttara og störf þingsins minni. Jeg fyrir mitt leyti get ekki fallist á þá brtt. að hafa kjördagana tvo, og auk þess vil jeg minna á þá reynslu, að meðan kjördagurinn var ekki fastákveðinn, þá óskuðu menn eftir að fá einn ákveðinn kjördag fyrir alt landið, því að það þótti valda óþægindum, ef kosning var kunn í einu kjördæmi áður en kosning fór fram í öðru.
Annars ætla jeg ekki að fjölyrða um þetta. Það er búið að taka það fram áður, hver sanngirni það er að færa kjördaginn vegna veðurfars. Það hefir áreiðanlega mikið að segja fyrir sveitirnar. Hinsvegar geri jeg ekkert úr óþægindum kaupstaðabúa eftir að búið er að lögleiða allar þær ráðstafanir, sem nú eru í l. um að menn geti neytt kosningarrjettar síns, þó að þeir sjeu ekki heima í kjördæmi sínu á kjördegi.