16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

47. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):

Umr. eru nú orðnar svo hóglegar og jeg hefi svo litlu að svara, að jeg gæti í rauninni sparað mjer að standa upp. En jeg get ekki stilt mig um að víkja dálítið að hv. 2. landsk. Jeg hlýt að hafa komið eitthvað óþægilega við kaun hv. þm., þegar jeg mintist á, að fylgi reykvískra kvenkjósenda við frú Bríetu Bjarnhjeðinsdóttur hafi ekki verið einlægt. Í Reykjavík greiddu þá atkv. 1805 konur. En mig minnir, að frú Bríet hafi ekki fengið meira en 500 atkv. af öllu landinu. Það er ekki 1/3 hluti þeirra kvenkjósenda, er kusu í Reykjavík einni saman. Hafi hv. þm. (IHB) nú lagt henni alt það lið, er hún mátti, þá finst mjer hún gera nokkuð lítið úr áhrifum sínum! Mjer er kunnugt um, að frú Bríet fjekk þó nokkurt fylgi úti um land. Jeg hefi fulla vitneskju um það, að á fundi kvenna alllöngu fyrir kosningarnar hrundi fylgið utan af listanum. Sjálfstæðiskonur mæltu þar með lista, sem hv. þm. Dal. var á, íhaldskonur mæltu með hv. 3. landsk. og jafnaðarmenn mæltu með lista jafnaðarmanna. Það voru e. t. v. fáeinar eftir, er hjeldu trygð við lista frú Bríetar. En fylgið var ekki einlægt. — Gegn eindregnum yfirlýsingum hv. þm. (IHB) skal jeg ekki, af kurteisi, vjefengja það, að hún hafi veitt listanum alt það lið, er hún mátti. En hamingjan hjálpi okkur, hve lítið hv. þm. gat áorkað fyrir listann!

Hv. þm. var að afsaka fylgisleysi listans með því, að konur væru ekki að senda menn út um borg og bý til að smala og „agitera“. Þær kynnu það ekki. Þau kynni, er jeg hefi haft af konum í kosningum, eru alt önnur. Jeg held, að þær sjeu einmitt mjög duglegir „agitatorar“, ef þær hafa áhugann. Og ef konur hefðu veitt lista sínum af fullum heilindum, þá hefðu þær komið frú Bríetu að. Eitthvað yfir 6000 konur greiddu þá atkv. á öllu landinu, en þar af fjekk frú Bríet ekki tíunda hluta.

Þá vil jeg mótmæla því, að ræða mín hafi verið árás á hv. þm. En hafi henni fundist rök mín Hljóma sem árás á sig, þá er það af því hún treystir ekki þeim málstað, sem hún ætlar að fylgja.

Hv. frsm. meiri hl. lagði mjer það í munn, að 65 þús. kjósendur væru hjer á landi. Hann vissi vel, að jeg átti ekki við kjósendur, heldur við þá landsbúa, er óhag hefðu af færslu kjördags. Veill málstaður er það, er þarf slíkra hártogana við.

Þegar hv. 2. landsk. fór að lesa upp úr kosningalögunum til að sýna fram á, að brtt. samrýmdust þeim ekki, þá greip jeg fram í og bað hana að lesa upp brtt. mína um leið. Því í 1. brtt. minni, 2. mgr., er gert ráð fyrir, að kosningin gildi frá hinum síðari almenna kjördegi.